Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 13
ingaí fyrir ýmsar tegundir af vörum eða þjónustu skuli vera.
A þessu sviði eru íslenzkir kaupsýslumenn yfirleitt mjög langt
•á eftir; halda margir i það gamla íslenzka kaupsýslusjónar-
mið: Allir þekkja mig o. s. frv. Svo vakna þeir við það einn
góðan veðurdag, að ný kynslóð byggir landið og hún hefur
snúið sínum viðskiptum til fyrirtækja, sem halda uppi skyn-
samlegri auglýsingastarfsemi. Engin vara er svo góð, engin
þjónusta svo víðfræg, að nokkru sinni megi halda, að héðan
,i frá sé auglýsing óþörf. Glöggt dæmi um þetta eru þrjár
tegundir jeppabifreiða, sem fluttar hafa verið til landsins,
síðan bílainnflutningurinn var gefinn frjáls. Ein þessara teg-
unda var mjög algeng á Islandi og viðurkennd svo góð, að
verð á henni var nálega utan við öll skynsamleg takmörk.
Önnur jeppategund frá öðru landi var líka til hér og talin
;að minnsta kosti allsæmileg, en umboðsmaður þeirrar teg-
3
undar tók sig til og auglýsti af þvilíkum krafti, að hinir átt-
uðu sig þá fyrst, þegar hann var búinn að selja á þriðja
hundrað bifreiðar. Og þá byrjuðu þeir að láta heyra í sér svo
.einhverju næmi.
Þegar Loftleiðir fá teknar myndir af starfseminni, sem fé-
lagið notar .til kynningar eða í auglýsingar, þá fá þeir til
iþess sænskan ljósmyndara, sem er í fremstu röð í öllum heim-
inum. Hann heitir Lennart Jensen-Carlén, og hefur tekið
allar myndirnar, sem hér fylgja með. Hann kom sl. sumar
til Islands og komið hafði hann í sömu erindum að minnsta
kosti einu sinni áður.
Loftleiðir gætu sjálfsagt fengið sæmilega ljósmyndara til
þess að taka þessar myndir fyrir ef til vill tíunda hluta af
því sem Carlén tekur fyrir það, en það er ekki þeirra stefna
•að spara í þessum efnum. Ef Loftleiðir hefðu þá stefnu að
:skera niður auglýsingar sem hvern annan óþarfa, að fúska
Framhald á bls. 37.