Vikan


Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 22

Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 22
Kvikmyndasagan Það var komið fram undir miðnætti þegar Tony sneri heim aftur. Þau þrjú, Ally, Soffía og Marío sátu á veröndinni og biðu hans. Þar höfðu þau setið allt kvöldið. — Nú eru þau sennilega að drekka kaffið, hafði Soffía sagt, iðandi af for- vitni og eftirvæntingu. — Kaffi, hermdi Marío eftir henni. Eins og þau séu að drekka kaffi allan Þennan tíma. Það skaltu segja öðrum en mér. — Ég er ekki að tala við þig, svar- aði Soffía. Ally hafði lika beðið i eftirvænt- ingu. Og nú var faðir hans kominn. — Tony, hrópaði Soffía upp yfir sig og reis á fætur. Hvernig fór þetta? Tony kleif út úr bílnum. — Fór Myndin verður sýnd í Trípólíbíói þetta, hvað? Hann hló. Við skemmtum okkur dásamlega. —- Hvers vegna kemurðu þá svona snemma heim? Tony sneri sér að syni sinum. — Hún sendi þér hunangsköku. Ég sagði henni að þér þætti ekkert eins gott og hunangskaka. Ally starði á hann og vonbrigði hans leyndu sér ekki. — Hvers vegna sagð- irðu það? Ég get alls ekki bragðað hunangsköku .... Það leyndi sér ekki heldur að nú varð Tony fyrir vonbrigðum. Þessi drengur, þessi drengur. Soffía veittist að honum. — Nú verður þú að segja okkur allt, Tony. Hvernig féll þér við hana? Ákváðuð þið að hittast aftur? Hvernig er út- litið? — Fyrst verðið þið að bragða á kökunni, mælti Tony stoltur. Hún er ljúfmeti. Þetta er nú kvenmaður sem veit hvernig hún á að fara að hlutun- um. Ally starði á föður sinn. Gat Þessi hrifning verið honum alvara, hugsaði hann. Þau Soffía og Mario f'engu sér bita af kökunni. — Helzt til mikið krydd, sagði Soffía. Aldrei nota ég svona mikið krydd. — Dásamlega góð kaka, sagði Mario. — Þið ættuð að sjá ibúðina hennar, mælti Tony enn. E'itt lítið herbergi, en öllu komið svo haganlega fyrir, að það er eins og maður sé inni í höll. — Mario . . . meinar hann þetta? spurði Soffia. — Því trúi ég ekki fyrr en ég tek á, svaraði Mario. — Ég get svarið það. svaraði Tony. Ally stóðst ekki lengur mátið. Hann fleygði sér i faðm föður sínum. Og allt í einu varð Soffía gripin slíkri hrifningu, að hún faðmaði Mario að sér og kyssti hann. Síðan kyssti hún Tony. Ally hafði fallið frú Rogers vel í geð, strax þegar hann sá hana, en þó var það annað, sem fyrst og fremst olli fögnuði hans. Nú mundi hann geta dvalizt áfram hjá föður sínum — eign- azt raunverulegt heimili. Ekki það, að Soffía og Mario mundu ekki reynast honum vel, en þetta mundi samt verða allt annað. Bara að föður hans væri þetta alvara. Og þarna stóðu Þau öll. Soffia var að sjálfsögðu farin að gráta og Mario var bersýnilega hrærður. Og nú tók Soffía Ally í faðm sér, þrýsti honum að sér og kyssti hann. Og grét. — Ég er ákaflega ánægður, Tony, sagði Mario. Stoltur af þér . . . í fyrsta skipti á ævinni. — Hvað gengur eiginlega að ykkur? spurði Tony. Eruð þið öll farin að grenja . . . Ekki nema það þó! DAGINN EFTIR ákvað Tony að gera alvöru úr því að hitta fornvin sinn, Jerry, að máli, skýra honum frá hug- mynd sinni og sýna honum myndirnar og teikningarnar. Það dróst þó fram- undir kvöldið. Þegar hann kom í gisti- húsið, þar sem Jerry bjó, frétti hann 'að Jerry hafði teki? bæði sundlaug gistihússins og samkvæmissal á leigu um kvöldið og efnt til dýrlegrar veizlu. Þjónarnir stöðvuðu Tony og báðu hann sýna boðskort sitt. Og nú fyrst veitti Tony því athygli, að allir gest- irnir voru samkvæmisklæddir. Hann svipaðist um og sá hvar Jerry stóð uppi á stökkbrettinu, en blaðamenn- irnir voru í óðaönn að taka ljósmynd- ir af honum. — Jerry, kallaði hann. Jerry . . . Jerry varð litið þangað, sem hann stóð. — Tony, hrópaði hann fagnandi. Hleypið honum inn, kallaði hann til þjónanna. Hann er gamali og góður vinur minn. Síðan kleif Jerry ofan af stökk- brettinu, hélt beint til Tony, vafði hann örmum og bauð hann hjartan- lega velkominn. Ljóshærða fegurðardís í flegnum samkvæmiskjól bar að. Hún minnti Jerry á að tveir eða þrír menn, sem hann hefði beðið um að tala við sig, biðu hans í símanum. — Segðu þeim að ég sé ekki við og verði ekki við í kvöld, svaraði Jerry. Ég hef ekki séð þennan grallara i hundrað ár . . . Svo leiddi hann Tony á brott með sér. Þú kemur eins og kallaður sagði hann. Ég er að fara að horfa á hundaveðhlaupin. Og ég verð að skipta um föt. Komdu með mér og spjallaðu við mig á meðan. Hvað hefst þú erginlega að hérna? —- Ég bý hérna, svaraði Tony. Hef búið hér undanfarin tíu eða tólf ár . . . — Segðu satt. Hvað hefurðu fyrir stafni? Leynivínsöiu? Hvers kojiar brask er það, sem þú stundar? — Ég rek gistihús. •— Segirðu satt? Þá erum við I sama báti. Ég hef keypt nokkur gistihús Framhald á bls. 40. — Númer níu vann! 22 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.