Vikan - 22.03.1962, Síða 24
Á forsíðu Vikunnar rennur Bryndís Schram ljúflega í splitt
eins og ekkert sé auðveldara og sjálfsagðara. Dansherra
hennar er Jón Valgeir Stefánsson, sem verið hefur atvinnu-
dansari í Kaupmannahöfn og rak dansskóla hér í Reykjavík
í fyrravetur ásamt Eddu Scheving. Jón hefur dansað frá
blautu T>arnsbeini og er bæði þjálfaður og mjög glæsilegur
dansari. Bryndís varð íslenzk fegurðardrottning fyrir fimm
árum og hún er vafalaust bezta balletdansmær okkar um
þessar mundir. Búningarnir eru fengnir að láni frá Kaup-
mannahöfn eins og allir aðrir búningar í söngleiknum.
Myndirnar til hægri sýna erfið augnablik, þegar herrarnir
svipta dömunum upp og halda þeim á beinum handleggjum.
Tíu tugir
leikara,
söngvara
og dansara
r • *C • r
a sviði i
Þjóðleik-
húsinu
Nú hefur My Fair Lady verið
sýnd í nokkur skipti á sviði Þjóð-
leikhússins. Söngleikurinn sjálfur,
hin glæsta umgjörð hans,
andi G. B. Shaw á bak við verkið
og heillandi fögur sönglög hafa
hrifið leikhúsgesti hér eins og
hvarvetna ananrs staðar, þar sem
þessi ágæti söngleikur hefur verið
sýndur. En fegurð dansanna og
fimi dansfólksins hefur þó ekki
hvað sízt vakið athygli og þætti gott
efni í sýningu þótt ekki væri
hægt að bjóða upp á annað.
Það er nú búið að birta svo mikið
niyndum af aðalpresónum þessa
söngleiks, að varla er á bætandi
í bili, en Vikan dregur tjaldið
frá enn einu sinni þar sem
dansararnir standa einir á sviðinu.
DÁTT
STÍGINN
DANSINN
Það er engin smávegis íþrótt að dansa í My Fair Lady.
Til þess þarf gífurlega æfingu, fimi og öryggi. Það varð
að leita fanga í nágrannalöndunum, því æfðir dansarar
eru ekki á hverju strái á íslandi. Það voru þó eingöngu
karlmenn, sem sóttir voru út fyrir pollinn; allar stúlk-
urnar eru íslenzkar og þær hafa vissulega náð skemmti-
legum tökum á þcssari erfiðu kúnst. Að ofan
lætur Bryndís Schram síðpilsin sviftast, en að neðan
eru allir dansararnir á brún sviðsins í Þjóðleikhúsinu
og dansa eitthvað sem líkist Can Can, en er þó ekki
sá dans að því er Bidsted sagði.
Erik Bidsted var fenginn til þess að
k'-æfa dansana í My Fair Lady og raun-
- ar gerði hann meira en æfa þá: Hann
Cjhefur sjálfur samið þessa dansa og
'fært þá upp í Danmörku, Þýzkalandi
og hér. Hér sjáuiu við Bidsted á æf-
ingu nokkru fyrir frumsýningu, en
dansararnir að baki eru þau hin sömu
og á forsíðunni.
U