Vikan - 22.03.1962, Síða 42
Hann gekk norður Afríku.
Frh.
tjaldið. Fylgdarlið hans virtist ætla
aö ráðast á tjaldið, en þegar byssun-
um var beint að því, lét það kyrrt.
Kóngurinn hélt því fram að hann
væri saklaus, en að lokum bað hann
um leyfi til að tala við tvo af mönn-
um sínum og stuttu seinna komu þeir
með fatnaðinn. En það þótti þeim
félögum ekki nóg. Þeir kröfðust að
fá líka myndavélarnar og mælinga-
tækin, en villimennirnir hristu að-
eins höfuðin. Þá tóku félagarnir upp
annað ráð. Þeir héldu konunginum
og smöluðu saman hjörðunum og
neituðu að afhenda þær fyrr en
tækin væru komin í leitarnar. Liðs-
42 IiIAX
safnaður mikill var i dalnum og
stríðsmenn söfnuðust saman i hæð-
unum. Þeim virtist sama um kon-
ung sinn, en öðru máli gegndi um
nautgripina. Loks komu sendimenn
til Grogans og Sharps og sögðu að
þeir gætu ekki komið með tækin.
Það hefði hvorki verið hægt að
éta þau né nota þau til klæða og
þess vegna hefði þeim verið hent i
hyldjúpt gljúfur, sem ómögulegt
væri að komast niður i. „Við biðjum
ykkur að fara héðan og láta okkur
í friði“, sögðu þessi náttúrubörn
grátandi. — Og Grogan og Sharp
iétu bæði nautgripina og kónginn
lausan og héldu brott eftir að hafa
beðið óbætanlegt tjón.
Niðurlag í næsta blaðL
Bergþóra skrifar ...
Framhald, af bls. 18.
Hafið bið í rauninni aldrei veitt
því athygli hvílíkri tryggð börn taka
við þá, sem hafa tíma, eða gefa sér
tíma til að sinna þeim? Ræða við
þau, segja þeim sögur og hlusta á
þau ræða sín hugðarefni? Þar finna
þau þá svörun, sem þeim er dýrmæt-
ust.
Við getum aldrei keypt okkur und-
an foreldraskyldunni með því að
kaupa börnum okkar góðan fatnað,
veita þeim fyrsta flokks húsnæði, sjá
þeim fyrir dýrum leikföngum og sýna
þeim hina svokölluðu umhyggju. Um-
hyggjan getur aldrei komið í stað
kærleikans. Og við verðum að gæta
þess að börn, jafnvel á imga aldri,
eru glöggskyggnari en við hðldum.
Þau sjá í gegnum allt það hismi og
hjóm, sem við látum blinda okkur
eða villa okkur sýn.
Við ættum því að hugsa okkur
tvisvar um áður en við förum I boð
eða á fund næst og kveðjum barnið,
að sjálfsögðu mjög ástúðlega, með
orðunum: — Ég verð að fara út i
kvöld ... ^
Leynilögregluþraut.
Framhald af bls. 28.
í herbergið þar sem leigjandinn ungi,
ungfrú Longwell lá lífvana á gólfinu
við arininn.
Eftir skyndirannsókn fullvissaði dr.
Walnut sig um það að stúlkan væri
dáin. Hún hafði verið drepin með
höggi á hnakkann.
Skyndilega fór vekjaraklukka að
hringja hátt og hvellt, og dr. Walnut
rétti sjálfkrafa út hendina til að
stöðva hana.
— Snertið hana ekki, hrópaði Hur-
lock snöggiega, en bætti síðan við
lægri röddn: -— Nema því aðeins
að þú viljir komast, á listann yfir
grunað fólk ...
Það er ekkert sérstakt við þessa
vekjaraklukku, sagði frúin. — Hún
hringir ávallt á þessum tíma. Ung-
frú Longweli vinnur í hattabúð og
hún fer ávallt á fætur kl. 7.30.
— Hvenær komust þér að því að
hún væri látin? tók Hurlock fram
i fyrir henni.
— Fyrir stundarfjórðungi síðan.
Ég fór niður i eldhúsið til að hita
te kl. 7. Þegar mjólkurpósturinn kom,
ætlaði ég að fara inn til að ná í
mjólkurflösku ungfrú Longwell, en þá
lá hún hér . ..
— Hvenær kom hún heim i gær-
kveldi? spurði Hurlock.
— Það veit ég ekki, sagði konan.
— Ég var hjá systur minni allan dag-
inn og kom ekki heim fyrr en um
kl. 20, og fór þá beint í rúmið ....
ég er of gömul til að vera lengi á
fótum á kvöldin ....
— Búa aðrir hér I húsinu?
— Nei, ungfrú Longwell var alein
I húsinu í gærkveldi. Einhver hlýtur
að hafa vitað að ég væri ekki heima,
og .... þeir hljóta að hafa haldið
að hún ætti einhverja peninga. En
það átti hún aldrei. Hún skuldaði
mánuð af húsaieigunni.
Snapham sá að sendibréf lá á arin-
hillunni. 1 þvi var tilkynnt að ung-
frú Longwell hefði erft nokkra dýr-
mæta skartgripi, sem hún hafði feng-
ið afhenta daginn áður. Á borðinu
voru nokkrar flauelsfóðraðar ðskjur,
sem sýnilega höfðu verið utan um
skartgripina. Þær voru tómar.
— Gimsteinar og handjárn hafa
Þann eiginieika sameiginlegan, að
hvorttveggja glitrar þegar sólin skin
á það, sagði Hurlock. — Snapham,
ég held að þér verðið að sýna frú
Hilldown armböndin okkar.
Horfið vei á teikninguna og vitið
hvort þér getið fundið lausnina áður
en Þér lesið það sem hér fer á eftir.
Lausn a leynilögregluþraut:
•uxieti uio5f
UMopniH ujj qb jijjo -g -b -a q ‘oggj
'PI Oiurnjj QTJ3A iQjeij QiQjour qb jn
IQBUinej jpoijnn 'ST‘9 'iJi Qipp Jnjeii
u0ú jo ‘unSjoui njsæu O0‘i n uubjb
-fJieA Jnns QBje3 i^jfe jnjeij umunjs
qb jAcj ‘uinunsjA qia jjjfsjq QIjeA
QBAqjjie jnjaq ubqis ue ‘jjnp uriq
JBSeq ‘ipuBquiBs jn uuiQBjqjBj qijij
B2anu£sQnu jnjeq uu>nnjs -gx‘9 JJ
-u£s umuiujB ? UBJjJiniiisuSBuijBH