Vikan


Vikan - 22.03.1962, Qupperneq 47

Vikan - 22.03.1962, Qupperneq 47
Blóm á heimilinu: Nútímakonur njóta lífsins all- an ársins hring, þær velja CAMELÍA dömubindin. Heildsölubirgðir: EGGERT KRISTJÁNSSON. an tiu“, svaraði Tony. „En það get ég sagt þér, að einhvern grun hef ég um að ég muni eiga eftir að sjá eftir þessu ..." „Hver veit það?“ varð Riff að orði. „Hver veit nema þú finnir einmitt það þarna á dansleiknum, sem þú ert að leita að? Það er kominn tími til þess, maður, að þú teygir aftur úr skönkunum. Jæja, við sjáumst klukkan tíu ...“ Frh. í næsta blaði. Tannhvöss tengdamamma eftir Paul V. Michelsen. Eins og sjá má á þessari teg- und, geta jurtir frá heitu löndum Afríku vaxið hér og þrifizt mjög vel. Algengust hér er Sanseveria trifasciata, mjög einkennileg jurt með upprétt, þykk og safarík, sverðlaga blöð, dökkgræn að lit með greinilegum gráhvitum þver- rákum. Hin stinnu, uppréttu, röndóttu blöð gera jurtina mjög sérkennilega. Blöðin vaxa upp af stuttum jarðstöngli, þétt, mörg saman, og geta oft orðið um eða yfir rnetri á hæð. S. Laurentii hefur gular rend- ur með blaðjöðrum og gerir það plöntuna enn sérkennilegri og fegurri. Þetta afbrigði er sjald- gæfara og er seinlegra að fjölga því. Blómin eru gráhvít og frem- ur óásjáleg, mörg saman á löng- um stöngli. Sú tannlivassa er mjög þolin sem stofuplanta og er ágæt i sólarglugga, en þolir samt tölu- verðan skugga, er sérlega góð til samplöntunar í ker. Þolir vel miðstöðvarhita og hið þurra loft stofunnar. Fjölgað með skiptingu rótar- sprota, er koma af og til, einnig má skera blöðin niður í 6—8 sm búta, þurrka þá í nokkurn tíma og láta þá svo i sendna mold, og festa bútarnir þá rætur á skömmum tíma, ef hlýtt er. Moldarblöndu er bezt að hafa úr mómylsnu, garð- og safnhauga mold, gömlum húsdýraáburði og vel af vikursandi. Og muna svo að vökva ekki oftar en nauðsyn krefur, en láta ekki standa vatn lengi í blað- slíðrunum, einkum ekki í kulda, ennars er plantan ódrepandi og dugleg er hún, eins og tengda- mæður eiga að vera. ★ ÍBÚÐARHÓS I I VERKSMl-D JU HUS SAMKOMUWÚS FRYSTIHÚS Siiumgriá Ceiur GEG/V HITA • 06 KULDA +20° Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár- um í spðruðu eldsneytL Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun notalegri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). Lækjargötu . Hafnarfiröi . Sími 50975. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.