Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 2
I fullri alvöru
EGILSSTAÐIR?
í síðustu viku seldum við farmiða til Tóldó,
Narssarssuak og Egilsstaða.
Við erum alla daga reiðubúnir til að veita við-
skiptavinum okkar hina bezíu ferðaþjónustu.
Seljum farseðla um allan heim með flugvélum,
skipum, járnbrautum og bílum.
EKKERT ÞJÓNUSTUGJALD
við Ingólfsstræti
gegnt Gamla Bíói.
Tíu eða tólf
milljónir
MaSur, sem aðstöðu liefur til a'ð
vita, og ég lief ekki ástæöu til að
væna um ósannsögli, sagði mér þá
sögu úr frekar fámennu og af-
•skekktu liéraði, að þar hefði fyrir
nokkru verið fullbyggður vandað-
ur barnaskóli, verið væri að ljúka
þar við stórt og glæsilegt félags-
heimili — og í undirbúningi að
reisa þar gistiliús, þar eð þjóðbraut,
að minnsta kosti að sumarlagi, ligg-
ur þar um sveitir. Ég spurði hann
hvað allar þessar byggingafram-
kvæmdir mundu kosta. „Skólahús-
ið var lullgert fyrir nokkrum ár-
um, og félagsheimilið að miklu
leyti fyrir gengisfellinguna — en
það verða samt alltaf tiu—tólf
milljónir; að minnsta kosti það —.“
Fjarri sé mér að telja eftir þótt
menningarlega sé byggt í dreif-
býlinu - en jafnan liefur þótt hag-
kvæmara að slá tvær flugur i einu
höggi en tveim, og enn hagkvæm-
ara ef unnt var að' slá þrjár, og
þarna virðist sem þrjár hefðu ein-
mitt legið allsæmiíega við. Að
minnsta kosti tvær, og það svo að
nokkrar miUjónir spöjruðust, án
þess nokkur setti ofan.
Gistihúsið verður ekki starfrækt
nema yfir sumarmánuðina — þann
tima ársins, sem barnaskólinn er
ekki starfandi. Með dálítilli fyrir-
hyggju lielði eflaust mátt gera skóla-
húsið þannig úr garði að þar mætti
starfrækja gott sumargistihús —
t. d. með því að leiða rennandi vatn
í iivert heimavistarherbergi. Ótrú-
lcgt virðist líka að ekki tiefði mátt
liafa félagsheimili i ekki fjölmenn-
ara héraði undir sama þaki, og
hefðu þá kannski sparazt þarna
nokkrar milljónir.
Annars hefur það komið fram frá
ábyrgum aðilum, sem mótbára
gegn því, að byggð væru félags-
heimili í sambandi við barnaskóla,
að skemmtanir þær, sem þar væru
haldnar, færu ekki fram á þann
liátt að fyrir börnum væri hafandi.
Það skal ekki vefengt, en ekki virð-
ist það þó koma lieim við það
menningarhlutverk, sem þessum
hcimilum er ætlað að gegna, og
varla getúr tatizt viðeigandi, að
verja árlega tugum milljóna af al-
mannafé til þess að koma upp
glæsilegum samkomubyggingum úti
í sveitum landsins, svo slíkar
skemmtanir gætu farið þar fram.
Það skal þó skýrt fram tekið, að
hér cr ekki verið að drótta neinu
að þeSsu ónafngreinda héraði, i
sambandi við væntanlega starf-
rækslu lélagsheimilis sins, þegar
það verður tckið í notkun.
Það er og vitað, að hinir nýju
barnaskólar og félagshcimili eru
mörgu byggðarlagi svo J>ungur
baggi efnahagslega, að híutverk
Jjcirra snýst öfugt við það, sem
áætlað er — i stað þcss að sporna
við flóttanum úr dreifbýlinu verða
þessar byggingaframkvæmdir bein-
línis og óbeinlínis til að ýta undir
hann. Þótt þcim, sem ráðstafa þarna
almannafé, þyki ekki muna mikið
um tíu til tólf milljónir, getur fá-
mennt byggðarlag munað verulega
Framhald á bls. 36.
2 VIKAN