Vikan


Vikan - 21.06.1962, Qupperneq 10

Vikan - 21.06.1962, Qupperneq 10
EFTTR gTETNUNNT $. FyRSTl HLUT1SF SRTEM ÞRE/U Orðið „yoga“ þekkja flestir, en það hefur margar og ólíkar merkingar i hugum manna. Sumir halda, að það tákni eingöngu líkamsæfingar og þær heldur af fáránlegra taginu, aðrir bendla það við loddaralistir og galdrabrögð, og enn aðrir hugsa sér yogaiðkendur sem meiniausa geðsjúklinga, er ekki hafa annað fyrir stafni en að sitja í afkáralegum stellingum með fótleggina í eins konar rembihnút og stara án afláts á naflann á sér. Nú má vera, að þessar hugmyndir séu ekki að öllu leyti á misskilningi byggðar, en það eru til aðrar og göfugri hliðar á yogavísindunum. Yoga táknar bæði leiðirnar að markinu og markið sjálft. Og hvað er þetta mark? Hvorki meira né minna en sameining mannsins við guðdóminn, einstaklingsvitundarinn- ar við alheimsvitundina, lægra sjálfsins við æðra sjálfið. Allt fólk, sem á annað borð hugsar, hlýtur ósjálfrátt að brjóta heilann um ráðgátur tilverunnar, og flestir — ef ekki allir — virðast sammáia um, að eitthvað liggi að baki hins sýnilega heims. Þetta „eitthvað" hefur verið nefnt mörgum nöfnum: allífið, hið algjöra, orsök sköpunarinnar, hið allsvaldanda, Guð — orka, efni, náttúra, o. s. frv., en nöfnin eru ekki annað en tilraunir mannanna til að skilgreina hið óskýranlega og gefa yfirskilvitlegum raunveruleik heiti. Við erum svo leikin í að búa til kreddur og kennisetningar, hugmyndakerfi og fræðiheiti, að okkur hættir til að gleyma kjarna málsins í tilgangslausum þræt- um um aukaatriði. Ef æðri máttarvöld eru til. þá em þau til, hvort sem mennirnir trúa þvi eða ekki. Yogaheimspekin heldur því fram, að þau séu til. Og meira en það. Hún staðhæfir, að hægt sé að læra að þekkja þennan yfir- skilvitlega raunveruleik af eigin reynslu, vegna þess að við séum öll hluti af honum; innsti kjarni hvers einstaklings sé eitt með alheimsvitundinni. Og yoga er aðferð til að komast að þessum innsta kjarna, finna hinn raunverulega innri mann, æðra sjálfið, andann, guðdómsneistann, þetta eitthvað innra með okkur, sem veit. En leiðin að þvi marki er löng og ströng. Það er ekki nóg að standa á höfði svo sem hálftíma á dag eða anda eftir ein- hverjum vissum reglum; við verðum að ná algeru valdi yfir huga okkar og tiifinningum, tii þess að æðra sjálfið geti birzt í fuilri dýrð. Og í andlegum fræðum gildir hið sama um sálina eða æðra sjálfið og hið aigjöra eða Guð; okkur er ekki fyrirskipað að trúa á eitt eða annað, heldur ráðlagt að bíða með að segja af eða á, þar til við höfum kynnt okkur málið til nokkurrar hlítar. Það er eitt af grundvallaratriðum yogaheimspekinnar og allra dulvísinda, að engu er haldið fram, sem ekki er hægt að sann- reyna með eigin tilraunum. Að visu eru kröfumar harðar og skilyrðin ekki sérlega aðgengileg, en við getum naumast ætlazt til, að alvizkan detti fyrirhafnarlaust í kjöltu okkar af himnum ofan. Við verðum að lesa og læra, brjóta heilann og draga álykt- anir af því, sem borið er á borð fyrir okkur, og við megurn hvorki vera svo trúgjöm, að við gleypum gagnrýnislaust við öllum dulrænum kenningum, né svo tortryggin, að við lokum öllum Ieiðum til frekari skilnings. Yoga bendir okkur á brautina til æðri skilnings og innsæis, en sjálf verðum við að feta hana. En vissar kenningar yogafræðanna og dulvísindanna er gott að hafa í huga, hvort sem við kjósum að trúa þeim eða ekki. Að minnsta kosti getum við stuðzt við þær sem leiðsögutilgátur, þangað til við finnum annað betra í staðinn. Þessar kenningar eru þrjár að tölu og mjög einfaldar, en þær útskýra ýmislegt

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.