Vikan - 21.06.1962, Qupperneq 12
Wft
Það, sem þið sjáið á þessum mýndum, er meðalstórt ein-
býlishús, nánar tiltekið 142 fermetrar að flatarmáli. Það eru
þrjú svefnherbergi, bað, stór stofa, eldhús með borðkrók og
þvottahúsi á hæðinni, en i kjallara er rúmgóð geymsla ásamt
kyndingarklefa.
Skipulagsvandamálið er óvenju vel leyst i þessu húsi, og
þegar tekst að sameina það góðu útliti, er árangurinn þess
virði að athuga hann örlitið nánar. Húsið er norskt og einnig
arkitektinn, Inge Dahl. Það stendur á mjög fallegum stað
utan í brekku, en hér á íslandi er margt sjaldgæfara en brekkí-
ur, svo það ætti ekki að verða til fyrirstöðu. Nytjaskóginum
á bak við sieppum við, en hann verður kannski kominn eftir
500 ár á einstaka staði, ef Skógrækt ríkisins verður ekki
afskipt, þegar deilt er úr rikiskassanum. En nú er það sjálft
húsið, sem máli skiptir og það er í þessu tilfelli úr timbri.
Norðmenn nota eðlilega timbur mjög mikið til bygginga, þar
sem það er nærtækt byggingarefni hjá þeim og ekki nándar
nærri eins dýrt og hér. Timburklæðningin gefur húsinu mjög
sérstæðan svip og þarf varla að efast um, að það er fallegra
með þessu móti en steinsteypt. Þó gæti steinsteypa að sjálf-
sögðu mæta vel gengið, ekki sízt i bæjum, en úti í guðsgrænni
Framhald á bls. 43.
Útlit hússins einkennist af stórum, hreinum flötum, en
timhurklæðningin gefur þvf hlýlegan svip. Kjallari er
steyptur. Þak hússins er mjög flatt og hefur hingað til
ekki þótt ráðlegt að byggja þess háttar þök á íslandi,
en fagmenn fullyrða að öllu sé óhætt með réttum frá-
gangi. Myndin til vinstri er úr stofunni, og að neðan
sést sú hlið, sem veit undan brekkunni.
VEL
SKIPULAGT
EiNBÝLISHÚS
ÚR TIMBRI
Hús
og
húsbúnaður
12 VIKAN