Vikan


Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 15

Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 15
Við Henrik sátum við morgun- verðarborðið. Henrik stakk upp á því, að við færum i leikhús á laug- ardaginn. Einhver vinnufélaga hans hafði sagt, að þar væri mjög skemmtilegt leikrit sýnt núna. Svö töluðum við um Mariönnu og nýja skólann. Við töluðum lika um að kaupa ný svefnherbergishús- gögn. Svo nefndi Henrik það, að ristaða brauðið væri alveg mátu- lcgt í dag. Og rétt áður en hann fór, sagði liann að við hefðum sjólfsagt ráð á þvi, ag kaupa handa mér nýjan kjól. En mig langaði til að æpa: Tal- aðu við mig, segðu eittlivað! Þrátt fyrir þessar óvenjulega vingjarnlegu samræður fann ég jafn sárt til fjarlægð'arinnar og tónileik'ans á milli okkar og þegar hann sat nið- ursokkinn og þögull bak við dag- blaðið og yrti ekki á mig. Þennan morgun stanzaði hann i dyrunum og horfði á mig, eins og hann hefði allt i einu gert sér það Ijóst, að ég var enn lagleg bg að- laðandi kona. Hann gekk til min, tók inig i faðm sér og kyssti mig ástriðuþrungið. En ég losaði mig. Ég hefði getað öskrað. Hanu leit undrandi á mig og fór. Það var ekki vegna þess að mér sé hætt að þykja vænt um Henrik, að ég losaði inig úr faðmi hans. Ég er enn á þeirri skoðun, að hann sé eini maðurinn, sem ég hefði get- að hugsað mér að giftast. En koss hans særði mig, þvi mér fannst að það væri aðeins hluti af mér, sem hann hefði áhuga fyrir. Andlega var eins og veggur milli okkar. Koss hans særði mig, þvi hann var aðeins vottur um skyndi- lega girnd. Hver ég er, hefur enga þýðingu. Hvað ég hugsa og liverj- ar tiifinningar mínar eru hefur liann ekki hugmynd um og langar ekkert að vita það. Ég er eins og bók, sem hann er búinn að lesa, og langar ekki til að opna aftur. Hann getur lialdið henni i hendi sinni og strokið fallegt bandið — en ekki annað. Ég gerði mér Jjóst, að það er nauðsynlegt fyrir konu að endur- nýja sig. Það lief ée líka reynt að gera. Ég byrjaði að Jæra frönsku, ég sótti fyrirlestra um stjórnmál, og ég breytti um liárgreiðslu. Ég bjó til nýja rétti á miðdegisborðið. Stundum keypti ég rauðvínsflösku og bar jiað fram í staðinn fyrir teið á kvöldin. En þetta breytti engu. Annað hvort sá hann ekki tilraunir mínar eða hann jióttist ekki sjá þær, til að geta ótruflaður lesið lilöðin og Jifað í sínum eigin heimi. Við fórum, eins og ráð var fyrir gert, í leiklnisið um laugardags- hvöldið. Henrili. var kurteis pg vin- gjarnlegur eins og venjulega, en mér fannst við vera ókunnugt fóJk, sem væri að dylja kæruleysið hak við uppgerðar alúð. Ég reyndi að kryfja Jeikriðið til mergjar, en Henrik lét sem liann heyrði það ekki. Þegar við komum út, kom Henrik auga á nokkra samvérkamenn úr bankanum. Hann virtist svo glað- ur yfir að hitta þá, að ég fékk sting í hjartað af öfund. Þeir byrjuðu að tala um leikritið af miklum áhuga og ég var útilokuð frá samræðun- om. Svo stakk einn af þeim upp ó því, að við færum inn á iitlu leik- húskrána og fengjum okkur eitt- hvað að borða. Henrik fók þvi feg- ins liendi. HÉR ER ÉG! Þú sérð mig og þú talar við mig. Hjá því getur þú ekki komizt. En þó sérðu mig ekki og segir ekkert við mig. Það væri er til vill ekki rétt að halda þvi fram, að Henrik liafi sniðgengið mig þetta kvöld, en það var eins og ég skipti hann engu, þótt hann væri kurteis við mig. Ég óskaði jiess, að ég væri heldur einn af Jiessum vinuin lians, sem greini- lega áttu sömu áhugamál og hann. Sá yngsti þeirra, Larsson gjald- keri, dansaði nokkrum sinnum við mig. Mér fannst hann óvenjulega skemmtilegur og aðlaðandi. Meira að segja meðan við sátum við borð- ið, töluðum við niikið saman um alla heima og geima. Mér datt i hug, hvort Henrik mundi ekki verða afbrýðisamur. En það leit frekar út fyrir, að hann væri móðj;aður, eða að hann skammaðist sín fyrir, að ég skyldi gripa fyrsta bezta mann glóðvolgann. Þegar við ók- um lieim, var Henrik þögull, og ég vissi ekki hvort J)að var af þvi liann væri þreyttur, móðgaður eða stæði á sama. Aftur langaði mig til að kalla: Segðu eitthvað við mig! Þegar Henrik kom heim af skrif- stofunni daginn eftir, var hann vin- gjarnlegri en hann átti að sér. Hann kyssti mig i forstofunni og sagði að nýi kjóllinn færi mér mjög vel — en það hafði hann ekki minnzt á áður. Dálitla stund hélt ég að Henrik hefði loks orðið afbrýðissamur. En þá sá ég að ástúð hans var kæru- leysisleg, eins og hann væri ann- ars luigar. Ef til vill var þetta bara vottur um slænía samvizku. Nú datt mér i fyrsta sinn i hug, að Framhald á bls. 29. VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.