Vikan


Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 19

Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 19
220 manns starfa hjá Flugfélagi íslands á 25 ára afmælinu Nú hefur Flugfélag Islands fagnað 25 ára afmæli með tilhlýðilegum hátíðahöldum og hefur þess verið minnzt rsekilega í flestöllum blöðum landsins. Vinsældir Flugfé- lagsins hafa aldrei verið meiri en einmitt nú, enda hafa Þær samgöngur, sem Flug- félagið hefur haldið uppi við landsbyggðina, gerbreytt lífi manna Þar. Það er hú einu sinni svo, að góðar samgöngur eru meðal Þeirra lífsgæða, sem nútímamenn vilja sízt af öllu vera án. Það er erfitt fyrir ókunnuga að gera sér grein fyrir Því, hversu umfangsmikill rekstur Það er að gera út flugvélar og halda áætlunum, iiinanlands og utan. Um Þesh- ar mundir eru starfandi 220 manns hjá Flugíélagi Islands og yfirgnæfandi meirihluti Þess fólks starfar hér heima. Eins og allir vita,' fer fram mjög nákvæm skoðun á flug- vélum með ákveðnu miilibili. Allt Það eftirlit framkvæmir Flugfélagið hér heima. Til Þess Þarf félagið fjölda manns og allt eru Það fagmenn. EÍndurnýjun og viðgerðir fara einnig fram á verkstæðum Flugfélagsins á Reykjavíkurflugvelli. Þarna er um- fangsmikill rekstur, sem sparar Þjóðinni miklar fúlgur í erlendum gjaldeyri á ári hverju. Mörg störf hjá Flugfélagi Islands eru með Þeim hætti, að vinna verður á tveim vöktum. Þess vegna var mjög erfitt að ná saman öllu fólkinu í svo fjölmennum starfs- hópi. En VIKAN hefur litið inn hjá flestum deildum Flugfélagsins og hér birtast myndir af öllum Þeim sem til náðist. Þær eru flugfreyjur hjá Flugfélagi íslands Sigrún Sigurðardóttir, Unnur Gunnarsdóttir, Hólmfríður K. Hansen, Sigrún Marinósdóttir, Brynja Pétursdóttir, Helga Henckel, Helga Zöega, Bylgja Tryggvadóttir, Brynja Kristjánsson, Elsa Jónsdóttir, Katrín Arna- dóttir, Björg Ingólfsdóttir, Hólmfríður Gunnarsdóttir, yfirflugfreyja, María Jónsdóttir, Hrafnhildur Ólafsdóttir, Anna Þorkelsdóttir, Hrefna Pétursdóttir, Hrafnhildur Schram, Hafdís Árnadóttir, Sigríður Jakobs- dóttir og Nína Þórisdóttir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.