Vikan


Vikan - 02.08.1962, Blaðsíða 28

Vikan - 02.08.1962, Blaðsíða 28
II T '4 ’bUPnar Hrútsmerkið (21 marz — 21. aprílj: Þetta veröur vika, sem svipar mjög til viku í síðasta mánuði. Það gerist ýmislegt skemmtilegt, en líklega verð- |H| ur eitthvað um helgina til þess að áform þín breyt- ast nokkuð, og líkar Þér það illa í fyrstu, en brátt kemur í ljós, að þessi breyting hefur verið til batnaðar. Þetta er mikil heillavika fyrir konur undir þrítugu. NautsmerkiÖ (21. apr. — 21. maV: Það gengur ýmislegt á í þessari viku, og Þú munt hafa í ýmsu að snúast. Hætt er þó við að þú komist engan veginn fram úr þessu öllu og látir þá kannske það þýðingarmesta sitja á hakanum. Vinur þinn kem- ur þér þægilega á óvart um helgina. Þú hefur vanmetið þennan vin þinn nokkuð til þessa. Tviburamerkið (22. maí —■ 21. júní): Þetta veröur undarleg vika, og ekki verður fyllilega lesiö úr stj'örnunum, hvort hún er þér til góðs eða ills. Þó máttu búast við því að helgin verði þér heilla- drjúg, ef þú kemur fram af háttvísi og kurteisi. Vandaðu allt það, sem þú skrifar eða segir í margmenni. 'Hætt er við, að ýmsir reyni að færa orð þín á verri veg. KrabbamerkiÖ (22. júní — 23. júlí): Þú verður ein- kennilega lánsamur í vikunni — og ekki er Það því að þakka að þú farir gætilega og skynsamlega að hlutunum, heldur virðist lánið beinlínis leika við þér í einu og öllu. Og þó — peningalega máttu vissulega vara þig. Fimmtudagurinn er dálítið varasamur á því sviði. Þú færð skemmtilega heimsókn um helgina. ---LjónsmerkiÖ (21t. júlí ■— 23. ágúst): Þú skalt var- ast allt óhóf hvað snertir mat og drykk í vikunni. J Það er eins og það sé eitthvert slen í þér, og þú ! þarft viljaþrek til þess að fá þig út í að gera ! smæstu hluti. Þó er eins og þetta horfi til bóta eftir helgina, og veldur því atburður, sem gerist um helg- ina, líklega á sunnudag. Líkur á stuttu ferðalagi. _______ Meyjarmerkiö (?Jh ág. — 23. sept.): Þér berast j skemmtilegar fréttir fyrir helgina og verður þetta | til þess, að þú verður að breyta áformum þinum I varðandi næstu viku mjög, og verður það áreið- anlega til bóta. Þú hefur verið að glima við eitt- hvert örðugt verkefni undanfarið, og til þessa hefur það ekki gengið sem bezt, en nú er eins og rofi eitthvað til. VogarmerkiÖ (21/. sept. — 23. okt.): Það steðja að þér alls kyns freistingar í þessari viku, og þú mátt vara þig, ef þú fellur fyrir einhverri þeirra, þvi að ef svo fer, bitnar það ekki einungis á þér, heldur miklu fremur á ástvini þínum. Amor verður tals- vert á ferðinni i vikunni, einkum meðal fólks innan við tvi- tugt. Líklega verður þó ekki um neina stóra ást að ræöa. DrekamerkiÖ (21h okt. — 22. nóv.): Líkur á mjög skemmtilegri viku, þótt helgin verði áberandi skemmtilegust. Þér býðst skemmtilegt tækifæri i vikunni, sem þú skalt reyna aö taka, ef þú hefur _ nokkurn tíma til. Ef ástvinur þinn hefur eitthvað á móíT þessu, skaltu samt láta þetta eiga sig í bili. Þú hittir persónu, sem þú hefur ekki séð í a.m.k. ár, liklega á sunnud. Bogmannsmerkiö (23. nóv. — 21. des.): Þú ert far- inn að verða fullruddalegur gagnvart þeim, sem sízt eiga slíkt skilið. Skapið viröist ekki vera sem bezt. Þú verður að reyna að rífa Þig upp úr þess- um fjára, og um helgina gerist eitthvað, sem kem- ur þér í gott skap, og láttu það nú ekki eftir þér að komast í vont skap á ný. Þér berst góð gjöf fyrir helgina. Geitarmerkiö (22. des. ■—- 20. jan.): Þú eignast nýtt j og skemmtilegt áhugamál í þessari viku, og mun þetta áhugamál þitt eiga hug þinn allan næstu j vikunnar, og er það vel, því að þú hefur mikið gagn af þessu. Þú hefur vanrækt einn kunningja þinn fullmikið undanfarið, og er ráðlegt að þú bætir úr því hið fyrsta. Þú skalt gæta heilsu þinnar vel í vikunni. Vatnsberamerkiö (21. jan. — 19. feb.J: Þú ætlast til of mikils af náunganum þessa dagana og vilt allt of lítið gera sjálfur. Þú verður að venja þig af þessu — það vill enginn gera neitt fyrir þig, nema þú gerir eitthvað í staðinn. Þú ferð i sam- kvæmi í vikunni, sem verður lítið skemmtilegt, nema hvað þar kynnist þú óvenjulegri og skemmtilegri persónu. MpMMi FiskamerkiÖ (20. feb. — 20. marz): Þú virðist vera heldur óþolinmóður þessa dagana, en þú flýtir eng- ►TZSjjl an veginn fyrir því, sem þú ert að bíða eftir með **** óþolinmæðinni einni saman — nema síður sé. Það er eins og þú vitir ekki fyllilega hvað þú átt að gera við allar tómstundir þínar. Þú verður að reyna aö skapa þér ný áhugamál Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. 28 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.