Vikan - 02.08.1962, Blaðsíða 7
Girkassi: 3 girar áfram allir syncroniser-
aðir.
Rafkerfi 12 volta.
Breidd 1.59 og þyngd 960 kg.
Hjólbarðastærð 590x15.
Verð með miðstöð, öryggisbeltum, vatns-
sprautu á framrúðu og aurhlífum er kr.
159.540,00.
Umboð: Gunnar Ásgeirsson h.f., Suður-
landsbraut 16.
Gangverð á sams konar notuðum bilum ár-
gerð 1961 ca. 140 þús. kr., 1960 ca. 125 þús.,
1959 ca. 100—110 þús. kr. En ekki virðist
vera mikið af þeim á markaðnum. ★
Norðurpól, 1. ágúst 1962.
Kæri Brandur.
Mér skilst á bréfi þinu, hinu siðasta, að þú ger-
ir nú allt f einu greinarmun á þvi fólki, sem
flytur alfarið til annarra landa og yfirgefur
ættjörð sína og þeirra, sem leita sér frama og
fræðslu með öðrum þjóðum, en koma svo heim
og taka til starfa tvíefldir. Þarna er ég þér al-
gjörlega sammála. En þetta gerðir þú ekki, þegar
þú minntist fyrst á utanferðir. Þú lýstir þvi bein-
línis yfir, að þú værir að hugsa um að flytja
alfarinn burt, — og út frá þvi sjónarmiði var
svar mitt gefið. Þú talar um, að ég hafi sagt
sögu af mannræfli, en undantekningin er þó
eitt dæmi — og þvi miður þekki ég fleiri dæmi.
Eitt sinn var ég um borð i islenzku skipi i er-
lendri höfn. Eitt kvöldið kom margt gesta i
skipið úr landi — og flestir voru það íslendingar
búsettir ytra. Allt i einu kom ég auga á mann,
sem ég hafði þekkt vel hérna heima. Hann sneri
baki við mér og ég kallaði: „Þórður“. Mér fannst
eins og maðurinn stirðnaði. Hann sneri sér
hægt að mér, brosti ekki, en kom, rétti mér
höndina og sagði: „Ég heiti ekki Þórður, ég
heiti John Galton“. — „Hver andskotinn“, varð
mér að orði. „Ertu orðinn of góður til að bera
þitt gamla og rammislenzka Þórðarnafn?“ —
„Ég hef komið mér vel fyrir hér“, svaraði hann,
„ég hef losað mig við músarholusjónarmiðin úr
Reykjavík, ég þarf ekki á íslandi að halda“. —
Svo gekk hann burt, skömmin á honum, enda
hafði ég ekki meira við hann að tala og heils-
aði honum heldur ekki, þó að ég rækist á hann.
Þetta er aðeins annað dæmi. En þau eru fleiri ..
Um endurnýjun islenzkrar tungu í sambandi
við gjörbreytta lifnaðarhætti og landnám tækn-
innar þurfum við ekki framar að tala, því að
við erum sammála og raunar tók ég allt fram
í síðasta bréfi mínu um það atriði, sem ég hef
fram að færa.
Og þá kem ég að smásagnaskortinum. Þú seg-
ir að það sé mikil kreppa 1 islenzkri smásagna-
gerð og þetta hefur mér lengi verið ljóst. Ég
get hins vegar ekki gert mér fulla grein fyrir
því af hverju þetta stafar. Ég hef verið að
spyrja sjálfan mig um það, hvað geti valdið
þessu. Ég held, að aðalástæðan sé sú, að draum-
urinn sé búinn. Ég á við það, að við hrærumst
of mikið i dagsins önn, okkur skortir hina
heilögu glóð. Við elskum ekki heitt og hötum
ekki af heilum huga. Við eigum ekki hugsjónir,
sem við viljum fórna okkur fyrir. Kaupstreita,
gróðahyggja, setur svip á daglegt lif okkar. Róm-
antikin er vesöl og vanmegnug í hugum okkar.
Þarna held ég að undirrótina sé að finna. En
ég vil af þessu tilefni spyrja þig: Er ekki sömu
niðurlæginguna að finna i skáldsagnagerðinni
i heild? Mér finnst það. Höfundarnir virðast
alltaf vera að leita að hinu abstrakta. í smá-
sagnagerðinni kemur það fram, er þeir remb-
ast eins og rjúpan við staurinn við að vera
sem frumlegastir, en það leiðir þá frá lífinu
sjálfu, frumstæðu og hráu en þó með sína glæstu
drauma blundandi undir yfirborðinu. Það er
alveg víst, að ef söguefnið er sótt i lífið sjálft,
þá getur orðið úr þvi perla. Ef við hins vegar
sjálfir erum alltaf að reyna að búa til eitthvað
án þess að vita hver grunnurinn er, án þess að
þekkja jarðveginn, þá verður úr þvi gerviperla,
eða hvað á ég að kalla það. Ég vona að þú skilj-
ir hvað ég á við. — Hefur þú tekið eftir því,
hvernig Halldór Laxness reynir að afla sér efn-
is úr fortiðinni? Hann hefur verið þar lengi
undanfarið. Hann hefur hins vegar síðan hann
fékk Nobelsverðlaunin leitað til leikrænnar
túlkunar, sem hann getur ekki, sem hann veld-
Framhald á bls. 42.
r*4-
fi
Eru endingargóðir og mjúkir f akstri
Flestar stærðir f/rirliggjandi
Söluumboð:
H j ólbarðaverkstæðið
HRAUNHOLT
við Miklatorg. - Sími 10300.
Einkaumboð:
GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16. - Sími 35200.
VIKAN 7