Vikan - 02.08.1962, Blaðsíða 24
Ungfrú
Yndisfríð
Hvar cr
örkín bans
NÓÆ?
Nú er það Örkin hans Nóa, sem ungfrú Yndis-
fríð hefur falið í blaðinu. Kannske í einhverri
myndinni. Það á ekki að vera mjög erfitt að
finna hana og ungfrú Yndisfríð heitir góðum
verðlaunum: Stórum konfektkassa, sem auðvit-
að er frá Sælgætisgerðinni Nóa.
Nafn
Heimilisfang
Örkin er a bls. slmi
Síðast þegar dregið var hlaut verðlaunin:
SÓLRÚN KRIST.IÁNSDÓTTIR,
Vífilsstöðum.
Alfreð Clausen: Ömmubæn og [>
Mamma mín. Nýlega er komin út
hljómplata, þar sem hinn gamal-
kunni söngvari Alfreð Clausen syng-
ur. Fyrra lagið heyrðist nokkrum
sinnum í óskalagaþáttum útvarpsins
seinni hluta siðasta árs, útvarpað af
sgulbandsupptöku sem þar var, en
nú er það komið á iiljómplötu í ann-
arri útsetningu. Jan Morávek hefur
útsett bæði lögin af sinni alkunnu
smekkvísi, og eru útsetningar lag-
anna, þó ekki séu þær miklar í snið-
um, nýstárlegar og nokkuð frum-
legar. Bæði eru lögin og textarnir
eftir Jenna Jóns. Og þess ber að
geta, að þrjár dömur aðstoða Al-
freð á plötunni, þær Ingibjörg Þor-
bergs, Svala Nielsen og Sigríður
Guðmundsdóttir og hefur þeim af
því tilefni verið gefið nafnið Tóna-
lísur. Söngur Alfreðs er ekki jafn-
góður og fyrr á árum, þegar hann
söng inn á liverja plötuna á fætur
annarri, sem metsölu náði, en hann
hefur þetta „eitthvað“ í röddinni,
sem gerir það að verkuin að söngur
hans fellur öllum i geð, og því mun
plata þessi áreiðanlega verða vin-
sæl mjög. Platan er gefin út af ís-
lenzkum tónum og fæst i öllum
plötuverzlunum.
Þetta er hljómsveit Árna ísleifs
og myndin líklega tekin á Hótel
Birninum í Hafnarfirði 1948 eða
1949. Á myndinni eru í aftari röð:
Þorsteinn Eiríksson, trommur (nú
iiljómsveitarstjóri í Breiðfirðinga-
búð), Jón Sigurðsson, bassi (nú í
Sinfóniuhljómsveitinni) og Árni ís-
leifs, píanó (nú í Breiðfirðingabúð).
Fremri röð: Pétur Jónsson, tenór-
saxófónn (Pétur lék með ýmsum
hljómsveitum síðan, en hefur búið
í Noregi undanfarin tvö ár þar sem
hann er starfandi prentari og hljóð-
færaleikari) og Þorkell Jóhannes-
son, trompet (Þorkell lék ekki mikið
með hljómsveitum og hefur sagt skil-
ið við hljómlistina, rekur nú eigin
prentsmiðju og bókaforlag í Hafn-
t> arfirði).
„Hey, Baby“
gerði hann frægan
Nýjasta nafnið, sem
skotið hefur upp í dæg-
urlagalieiminum, er
Bruce Channel. Hann
söng lagið „Hey, Baby“
inn á plötu, sem ekki
var framleidd nema i
200 eintökum, því ekki
var búizt við því, að hún
næði neinni sölu, og
svo mikið var sparað til
útgáfunnar, að hljóm-
sveitin var höfð eins líl-
il og framast var hægt,
og meira að segja var
eitt hljóðfærið munn-
harpa.
En platan náði vin-
sældum, og var það
kannski vegna hins ó-
venjulega undirleiks,
Framhald á bls. 42.
— Má ég kynna ... þetta er konan
mín Jón Jónsson ... og eh, — Næst verð ég víst að spandéra
eh, eh ... þið þekkist ef til vill ... ? í nýjan brúðarkjól.
— Hættu að setja ösku á gólfið, ég
endurtek: Hættu að ...
— Hvað er það sem hún hefur em
við ekki____?
24 VIKAN