Vikan - 25.03.1964, Qupperneq 32
Allir dásama
... gírlausa bílinn, sem nú fer
sigurför um alla Evrópu
40 nýjiingar í
en hann er nú fyrirliggjandi
SÖLUUMBOÐ:
Vestmannoeyjar: Már Frímannsson.
Akureyri: Sigvaldi Sigurðsson, Hafnarstræti 105, sími 1514.
SuSurnes: Gónhóll h.f. — Ytri-Njarðvík.
Akranes: Gunnar Sigurðsson.
AIIíp dásama
Söluumboð, viSgerSa- og varahlutaþjónusta
0. JOHNSON & KAABER H.F.
Sætúni 8. — Sími 24000.
32 — VIKAN 13. tbL
II
4
'bnpnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — ?0. apríl);
Vikan verður síður en svo gleðisnauð, ef til vill
græðirðu smávegis í happdrætti, hingó eða veð-
máli. Ást og rómantík haldast í hendur, hvort sem
þú ert lofaður eða ekki. Ekki er ólíklegt að þú
lendir í skemmtilegu samkvæmi.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Útlit er fyrir að þú komir áformum þínum í fram-
kvæmd. Þú verður aðili í leyndarmáli, sem þú þarft
að gæta mjög vel. Þú endurvekur samband þitt við
gamla vini, öllum viðkomandi til mikillar ánægju.
Reyndu. að ávaxta fé þitt.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Margir þeir sem fæddir eru undir þessu merki,
munu lifa upp eitthvað ógíeymanlegt, það gæti
verið gamall draumur er rætist eða vonir bundn-
ar við eitthvað háleitt. Þú munt njóta vinsælda
og vera hrókur alls fagnaðar innan þínp hóps.
Krabbamerklð (22. júní — 23. júlí):
Gamalt vandamál skýtur upp kollinum og nú skaltu
í eitt skipti fyrir öil gera út um það, það er ótækt
að hafa óþægindi svona oft út af sama hlutnum.
Gerðu engar ráðstafanir með verðmæti, sem til-
heyra þér. Þú gerir góða verzlun fyrir vin þinn.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Ef þú ert iðinn og samvizkusamur og ef til vill
dálítið hugkvæmur geturðu komið þér mikið betur
fyrir, ef ekki beint þá óbeint, álit manna hefur
ekki svo lítið að segja. Þú verður minntur dáiítið
óþægilega á gamalt ævintýri.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Ákveðin lausmælgi um hagi þína keraur þér illa nú
i bili. Vertu umburðarlyndari við umhverfi þitt,
menn eru bara menn og því miður ekki fuii-
komnir. Þú þarfnast félagsskapar og tilbreytni. Þú
getur haft mikla ánægju af heimilislífi þínu.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Vertu ekki hræddur við að taka djarfar ákvarð-
anir, þótt þú megir vinna baki brotnu. Þú mætir
erfiðleikum, en ert maður til að sigrast á þeim.
Láttu ekki feimni eða óframfærni spilla fyrir þér,
reyndu heldur að drífa þig upp.
Drekapierkið (24. október — 22. nóvember):
Ef þú hugsar aðeins um framfarir á vinnustað,
verðurðu brátt utanveltu og einmana. Hresstu þig
upp og náðu aftur því sem tapazt hefur. Þú færð
bréf eða sendingu langt að. Vegir ástarinnar eru
oft þyrnóttir og flestir stinga sig einhvern tíma.
©Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú átt erfiðleika í vændum. Hafðu gott samband
við vini þína og haltu gamlar tryggðir. Þú getur
notfært þér reynslu þína, en ráðfærðu þig samt
við einhvern. Þú munt ef til vjll hafa eitthvert gagn
af persónu, sem þú kynnist í samkvæmi Bráðlega.
©Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Ef þér finnst þú eitthvað pirráður og vanstilltur
skaltu taka þér hvíld. Þó þú sért störfum hlaðinn
máttu ekki haga þér eins og þú værir úr járni.
Þú verður þátttaktndi í miklum mannfagnaði. Þú
færð rangar upplýsingar um eitthvað er snertir fjármál.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
®Þú kynnist betur samstarfsfólki þínu, sem á
eftir að verða góðir félagar þínir, ef þú gefur
betra færi á þér. Stofnaðu ekki til neinna nýrra
ástarsambanda. Reyndur, eldri maður gefur þér
ráð, sem þú skalt ihuga vandlega.
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Þú getur lent í einhverju, sem nefna má ævintýri
þegar það er um garð gengið. Hafðu ekki of mikl-
ar áhyggjur af einkalífinu, vandamálin á því sviði
munu gufa upp. Vertu skemmtilegur og upplifgandi,
því vinir þínir þarfnast uppörvunar.
m