Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 33
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VORIÐ
ER í NÁND
PANTIÐ
TÍMANLEGA
VOLKSWAGEN ERÆTÍÐ UNGUR
„BREYTINGAR“ til þess eins „AÐ BREYTA TIL“ hefir
aldrei verið stefna VOLKSWAGEN og’ þess vegna
getur Volkswagen elzt að árum en þó haldist í háu
endursöluverði. — Engu að síður er Volkswagen
í fremstu röð tæknilega, því síðan 1948 hafa
ekki færri en 900 gagnltegar endurbæt-
ur farið fram á honum og nú síðast
nýtt hitunarkerfi ★ Gjörið svo
vel að líta inn og okkur er
ánægja að sýna yður
Volkswagen og af-
greiða hann
fyrir vorið
Ferðist í Volkswagen
VARAHLUTAÞJÓNUSTA VOLKSWAGEN ER ÞEGAR LANDSKUNN.
Sím/
2/240
HEILDVERZLUNIN
HEKLA hf
Laugavegi
170-172
inn, þá getur það orðið nokkuð
miklum vanda bundið að hjálpa
þessu fólki hinumegin, því margt
af því er ruglað og vitlaust, þeg-
ar það kemur yfir um, flest með
fíflalegar skoðanir á öðru lífi,
annað hefur neitað tilveru þess í
jarðlífinu o.s.frv. Þú veizt nú,
hvað það er auðvelt að koma viti
fyrir menn hér á okkar plani,
það er enginn hægðarleikur. Og
ekki verður auðveldara að sansa
þá hinumegin grafar".
„f sambandi við þetta skraf
úm líf eftir dauðann, dettur mér
í hug að spyrja þig: Hvað segir
þú um dulrænar bækur og árás-
irnar á slík rit undanfarið?"
„Ó, vinur, þetta stafar allt af
barnaskap og dogmuþrælkun.
Sumir svokallaðir littererir
afturúrpólitíkusar skrifa eins
og bókum um dularfull efni
sé alveg ofaukið og jafnvel líka
ævisögum og samtalsbókum. En
hvers konar bækur eru það þá
sem hér koma út ,sem hafa það
til að bera, að þær eigi meiri
rétt'á sér en hinar? Þessir sömu
menn dást að þjóðsögum Jóns
Árnasonar, eða þykjast dást að
þeim, og segja, að sér mundi
finnast skarð fyrir skildi, ef þær
vantaði í bókmenntir þjóðarinn-
ar, en bók eins og Gráskinna,
sem kemur út á okkar tímum
og er engu verr skrifuð en þjóð-
sögur Jóns Árnasonar, hefur aft-
ur á móti engan rétt á sér. Hver
skilur svona þankagang? Dular-
fullir atburðir eru ágætir á dög-
um Jáns Árnasonar og fyrir hans
daga, en svipuð fyrirbæri, sem
gerast nú á dögum eru réttlaus.
Ég hef meiri skemmtun af
að lesa dulrænar sögur Brynjólfs
frá Minna-Núpi en þennan þvætt-
ing, sem verið er að skrifa um
bókmenntir og einhverja rithöf-
undá. Og maður veit aldrei, hvað
rétt er eða rangt. Einn segir
svart sem annar segir hvítt. Svo-
leiðis fljótandi della er þvert á
móti mínu eðli. Það er ólíkt
meirá hunang í sögum Brynjólfs
frá Minna-Núpi en flestu því,
sem skrifað er nú til dags.
Aldrei hef ég skilið mikil-
leik þessa rússneska skálds
Jévtúsjenkós. Að vísu hef ég
ekki lesið annað eftir hann en
það, ,sem ég hef séð á íslenzku,
og vera má að þýðingarnar séu
ekki góðar. Ég veit það ekki. En
það veit þó guð, að heldur vil ég
lesa smásögur Brynjólfs á Minna-
Núpi en þetta gambur eftir hann
—■ hvað heitir hann nú aftur,
Jevtúsjenkó. Heldur vil ég lesa
ævisögu Sigurðar míns frá Bala-
skarði en Afríkurlýsingar Karen-
ar Blixens, þó að þær séu með
því skárra, sem maður les nú á
dögum af svokölluðum littera-
túr. Bækur virðist mér eigi að
dæma eftir því, hvað fólk í
greindara lagi hefur lengi gam-
an af að lesa þær, en ekki sam-
kvæmt þeirri reglu, í hvaða flokk
bókmennta einhverjir kenninga-
þrælar setja þær. En nú ætla
ég, áður en við hættum samskrafi
okkar þessu sinni, að drepa á
það allra merkasta sem ég hef
upplifað síðan við töluðum saman
fyrir fimm árum. Það er frásögn-
in af vísindastofnun de la Warrs
í Oxford, sem hefur tekizt að
Ijósmynda geislasviðið bak við
atómvísindi okkar tíma. Þetta er
svo furðulegt afrek í eðlisfræði-
vísindum, að talið er, að það muni
með tímanum kollvarpa hinni
hefðbundnu fræði um gerð til-
verunnar, en auk þess hafa þau
áhrif á læknavísindin að þar
muni varla standa steinn yfir
steini, þ.e. ef þetta er eins og
frá er skýrt. Um^þessa stofnun
hefur skrifað merka bók enskur
verkfræðingur, Langston Day, og
nefnir hana „New worlds beyond
the Atom“, eða „Nýir heimar
handan atómsins". Auk þessa
hefur einn af merkustu læknum
í London, Kenneth Walker,
snúizt til fylgis við kenningar
de la Warrs, eftir að hafa fengið
ótvíræðar sannanir fyrir gildi
þeirra. Danski heimspekingurinn
Poul Goos fór til Oxford og
dvaldist mánaðartíma hjá stofn-
uninni til að kynna sér störf
hennar. Hann skrifaði síðan bók
um hana, sem hetir „Hinsides
denne verden“, eða „Handan
þessa heims“, en þar er ekki átt
við annan heim sem verustað
manna eftir dauðann. Ég gerði
mikið til að ná í þessa bók í
Kaupmannahöfn í sumar, en hún
var gersamlega uppseld. Aftur á
móti náði ég í aðra bók eftir
Poul Goos, sem kom út seinna
og heitir „— og alt bliver sare
godt“, en í einskonar undirtitli
stendur: „Á þröskuldi viður-
kenningar á hinum sanna heimi
handan tilverunnar". Sú bók
fjallar um þróun lífsins og vís-
indanna. Ég vil að öðru leyti
ekki fara frekari orðum um stofn-
un de la Warrs, það yrði of langt
og of flókið í þessu rabbi, en vil
benda þér á greinargóðan úr-
drátt úr bókinni „Hinsides
denna verden" í tveimur
suhnudagsblöðum Tímans í maí
s. 1. vor. Minn málstaður er
að sigra. Það er ekki af
því, að ég sé öðrum hraðari eða
vitrari. En forsjónin hefur gef-
ið mér innræti til að slampast
oft á það rétta. Ég hef sem sé
farið á mis við þverúð hjartans.
Þar liggur hundurinn grafinn".
Þórbergur var kvíðinn fyrir
kvöldinu. Þeim Margréti hafði
verið boðið í Iðnó að sjá Fang-
ana í Altona eftir Sartre, og hann
hafði heyrt að sýningin tæki eitt-
hvað fjórar klukkustundir.
„Ég vona að þú lifir þetta af“,
sagði ég. Meistarinn svaraði bros-
andi:
„Ef ég finn að dauðinn er að
fara á mig, þá geng ég út. Kioma
horo esta?“ bætti hann við, og
spratt á fætur.
Ég leit á klukkuna. Hún var
sextán mínútur yfir sex. Þór-
bergur skrapp fram í eldhús og
tók veðrið. Síðan fór hann út á
svalirnar. Unnskiptingastofunni
var á augabragði breytt í veður-
athugunarstöð og skáldið setti
upp jónseyþórssonarsvip: „Ég
varð of seinn“, sagði hann.
Ég kvaddi og sagðist mundu
taka aftur upp þráðinn, þegar
hann yrði áttræður.
„Þá verðurðu að skreppa til
mín á astralplanið, og þér verður
ekki mikið fyrir því“, svaraði
sá ódauðlegi. ★
FORMSINS VEGNA - Frh. af bls. 15.
— Þú ert búinn að þinglýsa
afsali? spurði hann.
— Já, fyrir löngu, sagði ég.
Þetta er víst það síðasta. Svo
biðum við eftir því að röðin
kæmi að okkur hjá fógetanum
og ég stytti mér stundir við að
horfa niður í fangelsisgarðinn, en
þar voru engir fangar. Það voru
rimlar fyrir þakgluggunum og
uppi á steinveggnum var báru-
járnsgirðing, sem hallaðist inn
fyrir sig.
— Hvað var það?
■— Aflýsa þessu bréfi og þing-
lýsa þessu nýja bréfi, sagði Völ-
undur.
Embættismaðurinn fór sem
snöggvast, en kom fljótt aftur og
sagði:
— Afsalið var ófullnægjandi
fyrir þessa íbúð. Það vantar
fleiri eintök. Viljið þér ekki út-
33
vnux u. tu.