Vikan


Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 46

Vikan - 25.03.1964, Blaðsíða 46
ÁVALLT NÝTÍZKU KVÖLDKJÓLAR VÖNDUÐ EFNI þingholtsstræti 3 simi 11987 með Paul. Hún er móðir hans og hún mundi bera blak af honum. Og hún mundi segja honum allt. Paul mundi fara með mig til taugalæknis, og hann mundi vilja fá sannanir fyrir að Paul hefði sýnt mér banatilræði. En ég hef engar sannanir. Þetta atvik í gær var ekki annað en óhapp, sem þó fékk góðan endi. Þau mundu halda að ég væri brjáluð. Við matborðið fannst Marian hún vera sem tvær manneskjur. Önnur talaði við Florence frænku um daginn og veginn, en hin reyndi að finna iausnina á gátu. Þegar kaffið var borið fram, hafði hún loks tekið ákvörðun. Hún varð að fara og skoða gamla turninn. En hvernig átti hún að komast þangað án þess að vekja tortryggni frænku sinn- ar? Hún litaðist um í herbreginu og sá, að hálfvisnuð blóm stóðu þar í einum vasanum. — Er þér ekki sama þó að ég tíni svolítið af blómum úti í garð- inum? spurði hún frænku sína. •— En góða barn! Florence frænka brosti. — Þetta hús og allt sem því tilheyrir er þín eign. Þar á meðal blómin í garðinum. Marian brosti líka. — Já, auð- vitað. Ég er bara ekki búin að venjast tilhugsuninni ennþá. — Annars getur garðyrkju- maðurinn tínt fyrir þig þau blóm, sem þig langar í, og komið með þau hingað inn. — Ég —■ ég vil helzt tína þau sjálf, sagði Marian fljótmælt. — Þú skilur — mér finnst svo gam- an að blómum, og ég hef aldrei átt garð fyrr. Joe frændi hafði sannarlega séð til þess, ?ð Adams héldi garð- inum í góðri hirðu. Undir öðr- um kringumstæðum hefði Mari- an notið þess að horfa á snyrti- legar grasflatirnar, breið blóma- beðin og rósatrén, sem brátt — VIKAN 13. tbl, mundu standa í fullum blóma. En nú tíndi hún nokkur blóm án þess að hugsa um að velja þau og gekk hratt út að matjurta- garðinum. Hún gekk á stígnum til vinstri, því að þá komst hún fyrr úr augsýn úr gluggum húss- ins. Adams var við vinnu þarna skammt frá og hún stanzaði til þess að hrósa honum fyrir það, hve garðurinn var fallegur. Þá kom hún auga á hliðið á múr- girðingunni. —• Ég er að hugsa um að ganga út fyrir og sjá, hvernig þar er umhorfs, sagði hún kæruleysis- lega. — Það er mishæðótt lands- lag, fröken, sagði hann. — Það er erfitt yfirferðar fyrir kven- fólk. — Ég skal vera mjög varkár, sagði hún. Þegar hún kom út að hliðinu, leit ^hún aftur til þess að sjá, hvort hann fylgdist með ferð- um hennar. En hann hafði þeg- ar byrjað aftur að vinna og sneri í hana baki. Þannig er það, þegar tortryggnin hefur gripið fólk. Þá heldur maður að allir séu að njósna. Meira að segja gamlir og meinlausir garðyrkju- menn. Hún stóð fyrir utan hliðið og horfði yfir landið frammi fyrir sér. Það var hrjóstrugt og eyði- legt, þakið steinum og grófu grasi. Enginn gróður var á bjargbrúninni sem slútti þar þverhnýpt niður að sjónum, sem skall á bergið þrjátíu til fjörutíu metrum fyrir neðan. Krókóttur stígur lá þar milli steinanna og sýndist enda út á brúninni, og skammt þar frá stóð gamli, grái turninn, en neðsti hluti hans var í hvarfi bak við klett, svo að það var eins og hann svifi í lausu lofti. Marian gekk eftir stígnum og geðshræring hennar óx með hverju spori. Sjávarniðurinn varð hærri þegar hún nálgaðist brún- ina og hún fann hvernig jörðin titraði undir fótum hennar. Stíg- urinn endaði snögglega út við brúnina. Þrjú höggvin steinþrep lágu niður á klöpp, og frá henni var greið leið að turninum eftir einstigi framan í berginu. Marian stanzaði og leit í kring- um sig. Stórum stöngum hafði verið komið fyrir út við brún einstigisins og milli þeirra var strengd þunn, hvít járnkeðja, sem myndaði grindverk eftir endilangri klöppinni en brún hennar var þverhnýpt niður að syllu um það bil tuttugu metrum neðar. Frá þeirri syllu var svo bergið snarbratt niður að sjó. Hinum megin við stíginn var sprunga, full af steinum og möl. Hún horfði á turninn, sem gnæfði hátt í loft upp, einmana og einangraður úti á enda skag- ans. Hann gat verið um það bil hundrað ára gamall og hafði ef til vill verið útsýnisturn fiski- manna, eða kannski ljósmerkja- sendistöð smyglara. Kúpullinn efst sýndi, að þar hafði Joe frændi haft stjörnurannsóknar- stöð sína. Það var hér, sem hann hafði unnið að þessu áhugamáli sinu — hafði skoðað stjörnurnar og unnið að bók um stjörnufræði. Þetta viðfangsefni hafði tekið hug hans allan ,og það var það, sem hafði óbeinlínis orðið hon- um að bana. Framhald í næsta blaffi. UNNU FLOTANN ÓSIGRANDI ÚR LANDI Framhald af bls. 18. höfuðið iítið eitt, draga sverð sitt úr slíðrum og rétta Dowling það. Dowling leit aðeins á sverð- ið, rétti Crocker það svo til baka og spurði: —• Hvern fjandann ætti ég svo sem að gera við sverð? Það eina, sem bankastjóri Bakkusarbankans hafði upp úr þessari fræknu vörn, var öriítið aukin aðsókn að þankanum, sem hann hélt áfram að reka næstu þrjú árin, eða þar til gulan felldi hann með leifturárás þremur ár- um seinna. Um síðir voru honum þó reist tvö minnismerki. Annað á fáfar- inni ströndinni, þar sem hann hrakti 15000 manna flota óvin- anna á flótta, en hitt í Hermann Park í Houston. En þar sem sagnaritarar hlaupa venjulega yfir hlutdeild hans í borgara- styrjöldinni, og sögukennarar skólanna veigra sér við að segja börnum og unglingum hetjusög- ur af vínsölum og viskísvelgjum, eru þeir auðtaldir, sem vita af hverjum þessi stytta er, eða fyrir

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.