Vikan - 25.06.1964, Qupperneq 11
0
Þarna eru Fransmenn lifandi komnir. Þetta er „Le style 1900“,
sem cr eftir því sem frönsk blöð segja, tízka í Frakklandi, en
gæti þó einungis verið loftbóla, sem antík-kaupmenn
reyndu að blása upp. Hitt er svo annað mál, að Frans-
menn hafa altlaf verið veikir fyrir öllu því í
húsbúnaði, scm kcnnt er við Lúðvíkana þeirra.
Hér höfum við andstæðu við myndina að ofan: Allt
einfalt og látlaust, hreinir fletir, gler, viður og stílhrein hús-
gögn. En ef til vill er þetta samt dálítið nakið og skortir það að
geta orðið heimilislegt, ef eingöngu er hugsað um
áferð efnis og flata.
c»
byggingarefnið ræður miklu um stíl og útlit. Réttlínu-
byggingar nútíðarinnar eru skilgetin afkvæmi þeirra
skilyrða, sem steinsteypa setur. Talsverðar vonir eru
tengdar við plast eða einhver ámóta efni og það kynni
að hafa í för með sér verulegar stílbreytingar. Samt
sem áður er alltaf rík tilhneiging til að nota náttúru-
efniviðinn, timbur og grjót. Trúlegt er að það haldi
áfram með aukinni borgarmenningu. Einskonar ,,Hans
og Grétu“ stíll virðist eiga ítök í fólki úti á megin-
landi Evrópu. Þeir sem efni hafa á því að byggja
■ sér dýrar villur utan við borgirnar, byggja sem sagt
ekki endilega í Kaliforníustíl með heilum glerveggj-
um. Þeir byggja ef til vill alveg eins hús með firna
háu stráþaki og koma því fyrir í fallegu rjóðri í
skógi. Þarna gætir mikillar íhaldssemi við gamalgróið
byggingarlag, sem tíðkazt hefur á meginlandi Evrópu
og víðar síðan á miðöldum.
Réttlínur steinsteypunnar hafa líka kallað á bylt-
ingu, en hún er veikluleg og hjáróma enn sem komið
er. Sumir arkitektar hafa gert tilraunir með hringlaga
form, „hið fullkomna form“ og „hið náttúrulegasta
allra forma“ eins og það hefur verið kallað. Danski
arkitektinn Arne Jakobsson, teiknaði eitt slíkt hring-
laga hús, sem síðan var byggt og virðist vera afbragðs
hús á margan hátt. Önnur byltingartilraun við rétt-
línurnar er að hafa hvert herbergi í einu húsi óreglu-
Framhald á bls. 30.
.
swl
. -q|
■tai i
lllilippi
8
f
illltil
s s \'s" s\' sss 'S \SS
\s' \ ' \ SK:
:
«■' *■r. s» ' :
........
PlliPl
iSliillíi
■ ■