Vikan - 25.06.1964, Blaðsíða 15
Thomas réttir manni eitthvað, tekur maður
við því — og lætur sér vel lika.
— Skál, sagði hann, og við drukkum. Svo
brosti hann. — Þú hefur komið þér vel fyrir
hérna, Pete. Þú ert þinn eigin herra, og
enginn skiptir sér af þér alla nóttina. Það
getur ekki verið betra.
— Til hvers? spurði ég.
— Bara fyrir smá viðskipti, sem ég hef
í huga. Bara þú og ég. Og 80% — 20% skipti.
Ekkert japl, ekkert jaml, engin áhætta.
Ég þurrkaði mér um munninn.
— Ég er heiðarlegur maður þessa dagana,
Al, sagði ég, og reyndi að láta það hljóma
eins og mér væri það leitt. — Læknirinn sagði
mér að forðast geðshræringu. Gangverkið er
ekki eins gott og það var.
Það var engin lýgi. Á þessari stundu ólm-
aðist hjartað í mér meir en nokkurri dælu
er hollt.
— Það er allt í lagi, svaraði Al. — Því
í þessari vinnu er engin geðshræring. Nema,
þegar þú reiknar út ágóðann. Hve hátt
kanntu að telja, Pete minn?
Ég sagðist ekki vita það; ég hefði aldrei
reynt. Svo hló ég, eins og ég hefði sagt
verulegan góðan brandara.
— Þú verður að æfa þig. Æfðu þig að
telja upp í þrjár milljónir.
— Þrjár milljónir DOLLARA? spurði ég.
— Já, og það er ekki skattskyldar tekjur.
Tuttugu prósent eru sex hundruð þúsund.
Heldurðu, að hjartað í þér þoli þá geðshær-
ingu? ✓
Hvað gat ég sagt? Al þurfti ekki annað
en gera mig ábyrgan — kannski setja eitt-
hvað varhugavert drasl upp í íbúðina mína,
og ég væri bókaður lífstíðarfangi. Það var
ekki girnilegt.
— Jamm, sagði ég. — Já, Al, ég held það.
Og þannig hófst bankaránið.
Nei, það byrjaði raunar ekki þannig. En
þannig byrjaði þátttaka mín í málinu. Næsta
kvöld fór ég að hitta Al. Hann bjó í sóða-
legum leiguhjalli niðri í borginni. Hann bjó
þar vegna þess, að það var næstum beint
á móti bankanum. Hann var til húsa í tveggja
hæða múrsteinabyggingu, og umhverfis hús-
ið var hár múrsteinaveggur. Inn fyrir hann
var ekki hægt að komast, nema gegnum
rammgerð járnhlið, sem voru tryggilega læst.
Við hliðina á bankanum var auð lóð, og
þar var vélskófla að vinna. Vörubílar komu
og fóru, krakkarnir voru í París á götunni,
og konurnar hrópuðu á þau. Þetta var við-
feldið og hávaðasamt umhverfi.
Al leiddi mig út að glugganum og hnykkti
höfðinu í áttina að múrsteinabyggingunni.
— Þetta lítur svo sem ekki út eins og
banki, sagði hann. — En á útborgunardög-
um hafa þeir milli tvær og þrjár milljónir
í geymsluhólfunum.
— Þeir hafa líka að minnsta kosti fimm
vopnaða verði með vélbyssur þarna inni
dag og nótt, sagði ég.
— Sex, sagði Al. — Og veizt þú, að það
eru óskráð lög í þessum banka, að sá vörð-
ur, sem skýtur einhvern, sem reynir að næla
sér í aura, fær verðlaun?
— Það er gott. Sex náungar með vélbyss-
ur, sem allir reyna að verða fyrstir til að
gera góða loftræstingu í okkur.
— Sá, sem í henni situr, er Marty O'Bann-
ion. Náunginn, sem keyrir trukkinn, er Legs
Judson. Fingralangi Maxie, Súpu Boner og
Fljóti föstudagur eru allir einhvers staðar í
nágrenninu. Marty hefur verið að vinna í
þessu í meira en ár. Hann hefur verið að
bíða eftir því, að koma einhverjum að í
bankanum, en nú er það klárt. Nú er allt til-
búið. Á fimmtudagsnóttina, þegar þeir eru
að telja útborgunarpeningana, lætur Marfy
til skarar skríða.
— Vinnið þið Marty saman? spurði ég,
þótt ég vissi betur.
— Að nokkru leyti, Pete minn. Ég var að
þvælast niður í borg fyrir þrem mánuðum,
þegar ég sá að Legs Judson var kominn
á vöurbíl. Ég varð forvitinn. Ég komst að
því, að Marty á byggingarfyrirtæki niður í
borginni — undir öðru nafni. Hann á líka
lóðina þarna. Marty er ekki alls varnað.
Þegar menn hans áttu að vera að styrkja
múrsteinsveggina utan um bankann, svo að
hann hryndi ekki ofan í grunninn, gengu
þeir þannig frá honum, að hann myndi
steypast niður, ef köttur hnerraði. Og þá
eiga þeir greiðan aðgang.
Ég sagði, að Al væri svo sannarlega bú-
inn að reikna þetta út. Mér tókst að láta
það hljórna eins og ég dáðist að honum.
— Þeir búa allir saman, hinum megin í
borginni. Ég komst að því og leigði næstu
íbúð og setti nokkra hljóðnema inn til þeirra.
í tvo mánuði hef ég heyrt hvern minnsta
andardrátt þeirra, svo þú þarft ekki að velta
fyrir þér hvað ég viti mikið. Ég veit það allt.
Ég sagðist ekki vera að velta neinu fyrir
mér. Ég lét það hljóma sennilega. Al sagði,
að það gleddi sig.
- Eg veit hvar þeir komast inn og út
aftur, sagði ég. — En þetta hverfi er byggt
á eyju. Það liggja aðeins fjórar brýr hingað,
og hvað nú ef það er gefið þjófamerki?
Lögreglan verður búin að loka þessum brúm
áður en þú getur snýtt þér.
— Pete minn, sagði Al, með þjáningu. —
Láttu mig um smáatriðin. Svaraðu bara einni
spurningu: Treystirðu þér til að aka likvagni?
Það sem eftir var dagsins nagaði ég
neglurnar. Þegar ég var kominn upp í kviku
hætti ég. Svo Al Thomas hafði í hyggju að
láta Marty O'Banaion og félaga hans gera
mesta rán sögunnar, svo ætlaði hann að
sölsa undir sig fenginn. Og ég einn átti að
hjálpa honum. Pete Wilson, 170 cm nær-
sýnn, hef aldrei skotið úr byssu á allri minni
ævi. Ég hafði aldrei komizt lengra en að
dirka upp bakdyr í bensínstöð eða verzlun.
Ég tók fram bankabók mína til að reikna
út, hve langt ég gæti komizt, ég kæmist
ekki langt á tvö hundruð þrjátíu og fimm
dollurum, alls ekki nógu langt. Al Thomas
þarfnaðist hjálpar minnar. Það sem Al ætlaði
sér, fékk hann. Hvers vegna hann valdi mig,
vissi ég ekki. En hann hafði einhvern veginn
komizt að því, hvar ég var niðurkominn, og
þegar hann komst á bragðið hjá Marty,
hafði hann ákveðið að blanda mér í málið.
Og smám saman greip hugmyndin um þess-
ar þrjár milljónir mig fastari tökum. Hver
hafði nokkurntíman heyrt talað um, að tveir
menn rændu öðru eins? Og það meira að
segja frá harðsvíraðosta glæpamannaflokki
landsins. Hugmyndin skelfdi mig, en ég gat
ekki hætt að hugsa um það. Tuttugu prósent
af þremur milljónum eru sex hundruð þúsund.
Ég reyndi að vera raunsær. Al myndi aldrei
láta mig hafa tuttugu prósent. Kannske tíu
prósent. Nei, líklega ekki nema fimm prósent.
Það var samt eitt hundrað og fimmtíu þús-
und. Hann gat ekki látið mig hafa minna
en fimm prósent.
Eg lagði niður fyrir mér, hvað var með
og hvað var á móti og það var fleira með.
A1 var með og ég var móti, með lífstiðar-
fangelsi yfir höfði mér, ef ég væri ekki góð-
ur.
Eg vissi ekki enn, hvað Al ætlaði mér að
gera og hann sagði mér það ekki. Þetta
sama kvöld, eftir miðnætti, skaut hann aftur
upp kollinum í líkbrennslunni. Ég sýndi Al
staðinn. Það var þögult á nóttunni, að
minnsta kosti borið saman við daginn. Að
vísu var þetta lítil likbrennsla, en ný og
fullkomin. Bakdyramegin voru kisturnar tekn-
ar inn, rennt á rúllum beint inn í móttöku-
herbergið, og þaðan inn í likbrennsluofninn,
nema ef einhver skyldi óska þess að haldin
væri athöfn í kapellunni fyrst.
Ég sýndi honum gaskyntan ofninn og
hreinan bláan logann, sem vann allt verk-
ið. Viðskiptavinunum var rennt inn í ofninn
í Ijósum viðarkistum og skömmu seinna gat
umsjónarmcsðurinn sópað öskunni saman í
krukku og afhent fjölskyldunni. Danny elsk-
aði þennan ofn, og hann var aldrei ánægð-
ari, en þegar við tókum svo sem tíu til tólf
viðskiptavini og gengum þannig frá þeim, að
þeir komust allir fyrir í einni tösku. Auk þess
að ræða offjölgunarvandamálið, gat hann
talað tímunum saman um það, að landið
yrði fljótlega einn allsherjar kirkjugarður, ef
líkbrennsla yrði ekki tekin upp í ríkari mæli.
Hann hafði einhverntíman lesið grein um
þetta, og það var það eina, sem hann
gleymdi ekki aftur.
Danny þvældist í kringum okkur og hélt
fyrirlestra fyrir AI, þangað til ég rak hann
burt. Svo fór ég upp á skrifstofu með Al,
af því hann langaði að fá að sjá skjölin,
sem voru nauðsynleg til þess að líkbrennsla
mætti fara fram.
Þvert ofan í mótmæli mín, tók Al eitt ein-
tak af hverju eyðublaði.
— Þú færð þau aftur, sagði hann. — Ég
þarf á þeim að halda. Við hittumst aftur um
miðnættið á fimmtudagskvöldið á meðan
skaltu hafa taugarnar í lagi. Gerðu ekkert
sem þú iðrast eftir síðar.
Ég vissi hvað hann var að fara. Ég sagð-
ist ekki mundi gera það. Þegar hann var far-
inn reyndi ég að halda áfram að lesa glæpa-
söguna mína en festi ekki hugann við hana.
Ég hélt áfram að velta því fyrir mér, hvernig
Al ætlaði að snúa á Marty O'Bannion og
félaga hans, með aðeins mig sér til hjálpar.
Hvernig? Hvernig? HVERNIG?
Og myndi ég geta ekið líkvagninum?
Eða myndi mér verða ekið í honum?
Fimmtudagskvöldið kom með ógnarhraða.
Ég tók fram bankabókina mína hvað eftir
annað og velti henni fyrir mér. Það voru
samt ekki nema tvö hundruð þrjátíu og
fimm dollarar í henni. Það var ekki nærri
nóg. Ég komst ekkert. Éa var á mínum stað,
þegar Al kom aftur á fimmtudagskvöldið.
Framhald á bls. 39.
VIKAN 26. tbl. —