Vikan - 25.06.1964, Síða 22
FramhaEdS’
sagan
11. hilutl
Brattinn varð stöðugt meiri. Þau
sóu gráa næturskimu gegnum rif-
una í skotvörninni. Dögunin var í
nánd. Uti fyrir var að hefjast ann-
ar dagur steikjandi hita, amoníaks-
mettaðs vinds og stybbu af fenja-
uppgufun. Bond hugsaði um Quarr-
el, hetjuna sem ekki mundi sjá
nýjan dag. Þann dag þegar þau
áttu aftur að fara til strandarinnar
á leið til óhultari staðar. Hann
minntist líftryggingarinnar. Quarrel
hafði skynjað dauða sinn. Samt
hafði hann fylgt Bond í blindni.
Traust hans á Bond hafði verið
sterkara en ótti hans. Og Bond hafði
brugðizt honum. Mundi Bond einnig
verða orsök dauða þessarar stúlku?
Ökumaðurinn hallaði sér fram
að mælaborðinu. Fyrir framan vél-
ina heyrðist stutt hljóð úr lögreglu-
vælu. Rétt í sama bili nam vélin
staðar og malaði í lausagangi.
Maðurinn þrýsti á rofa og tók hljóð-
nema af krók við hliðina á sér.
Hann talaði í hann og Bond heyrði
málmkennda röddina í hátalaran-
um fyrir utan: — Ókey. Náðum
Bretanum og stelpunni. Hinn er
dauður. Þetta er allt óg sumt. Opn-
ið þið.
Bond heyrði að rennihurð á járn-
rúllum var opnuð. Ökumaðurinn
sleppti kúplingunni og þau runnu
hægt áfram fáeina metra og námu
svo staðar. Maðurinn drap á vél-
inni. að heyrðist skellur þegar járn-
hurðin var opnuð að utanverðu.
Ferskt loft og bjart Ijós komu inn
í klefann. Hendur gripu í Bond og
drógu hann skeytingarlaust afturá-
bak og niður á steingólf. Bond stóð
upp. Hann fann byssuhlaup þrýst-
ast inn í hlið sina. Rödd sagði: —
Vertu kyrr þar sem þú ert. t'ngar
brellur. Bond leit á manninn. Þetta
var einn Kínnegrinn enn, alveg eins
og hinir. Gul augun rannsökuðu
hann forvitnislega. Bond sneri sér
kæruleysislega undan. Annar maður
potaði í stúlkuna með sinni byssu.
Bond sagði hvasst: •— Láttu stúlk-
una vera. Hann gekk til hennar og
staðnæmdist við hlið hennar. Menn-
irnir tveir virtust undrandi. Þeir
stóðu kyrrir og héldu byssunum
reiddum.
Bond litaðist um. Þeir voru inni
í einu húsinu, sem hann hafði séð
neðan frá ánni. Þetta var verkstæði
og verkfærageymsla. „Drekinn"
hafði verið stöðvaður yfir smur-
gryfju í steinsteypunni. Sundurtek-
inn utanborðsmótor lá á einum
bekkjanna. Hvítar flouresentl jós-
ræmur lágu eftir endilöngu loftinu.
Það var lykt af olíu og útblásturs-
reyk. Ökumaðurinn og aðstoðar-
maður hans voru að skoða drekann.
Nú komu þeir.
Annar varðmannanna sagði: —
Sendi skilaboðin. Við fengum fyrir-
mæli um að senda þau í gegn. Allt
í lagi?
Aðstoðarökumaðurinn, sem virt-
ist vera æðsti maðurinn á staðn-
um sagði: — Auðvitað. Svolítil skot-
hríð. Ljósin farin. Geta verið ein-
hver göt á dekkjunum. Látið þið
strákana fara alveg yfir hann. Ég
skal fara með þessi tvö og svo ætla
ég að fá mér blund. Hann sneri sér
að Bond: — Aílt í lagi, hreyfðu
þig. Hann benti út að aðaldyrun-
um.
Bond svaraði: — Hreyfðu þig
sjálfur. Og reyndu að haga þér
skikkanlega. Og segðu þessum öp-
um að hætta að benda á okkur
með byssunum. Þeir eru svo tauga-
óstyrkir, að það er ómögulegt að
segja nema þeir skjóti. Þar að auki
virðast þeir vera afskaplega heimsk-
ir.
Maður kom nær. Hinir þrír komu
fast á hæla hans. Augu þeirra voru
rauð af hatri. Formaðurinn lyfti
krepptum hnefa, stórum eins og
slaghamri, og hélt honum undir
r.ofi Bonds. Hcnn átti fullt í fangi
með co halda stjórn á sér. Hann
sagði tltvandi af bræði: — Viltu
h'jrfa á mig herra minn. Stundum
er okkur strákunum lofað að fylgj-
ast mcð ánægjunni til enda. Ég
ætla aðeins að,vona, að það verði
að þessu sinni. Einu sinni létum við
það endast heila viku. Og drottinn
minn, ef ég fæ þig . . . Hann þagn-
aði. Augu hans endurspegluðu fúl-
mennskuna, sem inni fyrir bjó. Hann
leit framhjá stúlkunni. Augun urðu
að munnum, sem sleiktu út um.
Hann þurrkaði sér um hendurnar
á buxnaskálmunum. Tungubroddur
hans var fölbleikur milli skarp-
rauðra varanna. Hann sneri sér við
og leit á hina þrjá: — Hvað segið
þið, strákar?
Hinir mennirnir horfðu einnig á
stúlkuna. Þeir kinkuðu kolli og voru
eins og börn, sem standa fyrir fram-
an jólatré.
Bond langaði til að ganga bers-
erksgang. Berja á andlit þeirra með
hlekkjuðum úlnliðunum og taka á
móti blóðugri hefnd þeirra. En stúlk-
unnar vegna vildi hann ekki gera
það. Allt, sem hann hafði unnið
nú, með hreystilegum orðum sín-
um, var að gera hana skelfda. Hann
sagði: — Allt í lagi, allt í lagi. Þið
eruð fjórir og við erum tvö og við
erum bundin á höndum. Komið nú.
Við skulum ekki meiða ykkur. Far-
ið þið bara svolítið sæmilega með
okkur. Dr. No verður kannske ekki
of ánægður ef þið gerið það ekki.
Þegar hann nefndi þetta nafn,
breyttust andlit mannanna. Þrenn
augu litu af Bond á formanninn. [
um það bil mínútu starði formaður-
inn grunsemdaraugum á Bond,
hann var hugsi; það var eins og
hann væri að velta því fyrir sér,
hvort Bond hefði einhver tök á yfir-
manni þeirra. Hann opnaði munn-
inn til þess að segja eitthvað, en
sá sig um hönd. Hann sagði óákveð-
inn: — Allt í lagi, allt í lagi. Við
vorum bara að stríða. Hann sneri
sér að hinum mönnunum, til þess
að fá staðfestingu þeirra: — Er það
ekki rétt, strákar?
— Vist svo, víst svo, muldruðu
þeir allir í kór. Svo litu þeir undan.
Næstum með virðuleika sagði
formaðurinn: — Þessa leið.
Bond tók um úlnlið stúlkunnar og
fylgdi eftir. Hann tók vel eftir þeim
áhrifum, sem nafn dr. No hafði. Það
var rétt að minnast þess, ef þau
ættu eftir að hafa frekari viðskipti
við starfsliðið.
Þau komu að þykkum viðardyr-
um. Það var bjölluhnappur við hlið-
ina á þeim. Maðurinn hringdi tvísv-
ar og beið. Svo heyrðist smellur
og dyrnar opnuðust. Frá þeim voru
klettagöng um það bil tíu metra
löng að öðrum dyrum, fallegri og
máluðum í rjómagulum lit.
Maðurinn steig til hliðar: — Beint
áfram. Berjið á dyrnar þarna. Það
verður tekið á móti ykkur. Það var
enginn kuldi í röddinni og augu
hans voru tjáningarlaus.
Bond leiddi stúlkuna inn í gang-
inn. Hann heyrði dyrnar lokast fyr-
ir aftan þau. Hann nam staðar og
leit á hana. Hann sagði: — Hvað
nú?
Hún brosti veikt: — Það er gott
að finna gólfteppi undir fótum sér.
Bond þrýsti hönd hennar. Hann
gekk hratt í átfina að rjómagulu
dyrunum og barði.
Dyrnar opnuðust. Bond fór inn
og stúlkan á eftir honum. Hann
snarstanzaði. Hann fann ekki, að
stúlkan gekk aftan á hann. Hann
aðeins stóð og glápti.
13. KAFU.
SYKURHÚÐ Á PILLUNNI.
Þetta var móttökusalur, eins og
gerist í stærstu bandarísku fyrir-
tækjum fyrir forstjóraherbergjunum
í skýjakljúfunum í New York. Sal-
urinn var um sex metrar á kant. Á
gólfinu var þykkt vínrautt wilton-
teppi og veggirnir og loftið voru
máluð í fölgráum lit. Litprentanir
af ballettmálverkum Degas héngu
á veggjunum og lýsingin kom frá
stórum, nýtízku standlömpum með
dökkgrænum silkiskermum.
Hægra megin við Bond var stórt
mahogníborð með grænu leðurá-
klæði ásamt þokkalegum stólum og
á borðinu var dýrasta gerð af inn-
anhústaltæki. Tveir stórir gamal-
dags stólar voru fyrir gesti. Hinum
megin í herberginu var sóffaborð
22 — VIKAN 26. tbl.