Vikan - 25.06.1964, Síða 30
UNGFRU YNDISFRIÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá N Ó A.
HVAR E R ORKIN HANS NOA?
l»að cr alltaf saml leikurlnn í hénni Ynd-
isfríð okkar. Hún hcfur falið örkina hans
Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir
góðum verðlaunum handa þeim, sem getur
fundið örkina. Verðiaunin eru stór kon-
fektkassi, fullur af bezta konfekti, og
framleiðandinn er auðvitað Sælgætisgerð-
in Nói.
Nafn
Ileimlli
örkln er & bls.
Síðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Sigurgeir Þorvaldsson,
Mávabraut 8c, Keflavík.
Vinninganna má vitja á skrifstofu
Vikunnar. 26. tbl.
MATUR
Framhald af bls. 20.
Appelsínukrem.
3 egg, % bolli sykur eða tæp-
lega það, 2 appelsínur, Vz sítróna,
6 blöð matarlím.
Þeytið eggjarauðurnar og syk-
urinn mjög vel saman, pressið
safann úr sítrónunni og appelsín-
unum og rífið appelsínubörkinn
og blandið öllu í eggjablönduna.
Bræðið matarlímið íneð örlitlu
af vatni og látið það aðeins kólna
áður en það er sett í eggjablönd-
una. Síðast eru eggjarauðurnar
stífþeyttar og blandað saman við.
Látið standa á köldum stað með-
an það kólnar. Gott er að skera
örþunnar skifur af súkkulaði og
leggja ofan á kremið. Líka má
nota þeyttan rjóma með.
Fiskur soSinn í græn-
meti.
Rífið gulrætur og sellerí og
eitt súrt epli á rifjárni og sker-
ið eina púrru í sneiðar. Leggið
roðlaus fiskflök ofan á, saltið og
kryddið með pipar. Hellið nokkr-
um matsk. af tómatsósu eða
chilisósu og blöndu af vatni og
mjólk yfir. Margskonar krydd
má nota, t.d. karry og timian.
Smjörbitum raðað ofan á og bak-
að í ofni í ca 25 mín.
Etonkaka.
200 gr. smjörl., 175 gr. flór-
sykur, 4 egg, 250 gr. hveiti, 1 tsk.
lyftiduft, 100 gr. kokkteilber, 100
gr. sykursoðinn ananas, 75 gr.
stórar rúsínur, 50 gr. grófsaxað
súkkat, 100 gr. grófsaxað suðu-
súkkulaði, svolítill sítrónusafi.
Smjörlíkið og flórsykurinn
hrært vel saman, eggin þeytt vel
saman og þeim bætt í, lyftiduft-
inu blandað í hveitið og það
sett smám saman í eggjablönd-
una. Ananasinn á að að skera í
smástykki og öllum ávöxtunum
velt upp úr hveiti áður en þeir
eru settir i deigið ásamt súkkat-
inu og sítrónusafanum. Bökunar-
mót penslað með bræddu smjöri
og raspi stráð innan í það allt
og deigið síðan sett í. Bakað við
hægan hita (175 gr.) í lVz—2
tíma.
Bláherjabúðingur.
Bláber í sykurlegi eru notuð
í búðinginn. Kringlótt skál er
þakin með skorpulausum frans-
brauðsneiðum, síðan er sett í
hana til skiptis bláberjamauk og
skorpulausar fransbrauðsneiðar,
þar til skálin er full, en efst á
að vera fransbrauðssneiðalag.
Geymt i ísskáp í sólarhring áður
en það er borið fram. Borðað
með þeyttum rjóma.
Valhnetukaka frá
Portúgal.
Þetta er dýr kaka í landi þar
sem valhnetur eru jafndýrar og
hér, en einhver hefði kannski
samt gaman af að reyna hana.
4 egg, 100 gr. flórsykur, 125
gr. valhnetukjarnar.
Eggjarauðurnár hrærðar í 10
mín. með flórsykrinum. Hnetu-
kjarnarnir hakkaðir í möndlu-
kvörn og settir saman við. Eggja-
hvíturnar stífþeyttar og settar
síðast í. Bakað í tveim vel smurð-
um lagkökuformum í 30 mín.
Annan botninn á að þekja með
kaffiglassúr, og gott er að hafa
kaffismjörkrem á milli þeirra.
Sé kakan notuð sem ábætisrétt-
ur, er ljúffengt að hafa vanillu-
ís milli laganna. ★
HVERT STEFNIR
STÍLLINN?
Framhald af bls. 11.
legt að lögun. Sum eru tigullaga,
önnur allt að því þríhyrnd, loft-
unum hallar á ýmsa vegu og
sem sagt allt gert til að forð-
ast þetta venjulega kassalag.
Enda þótt Norður-Ameríka og
Vestur-Evrópa séu meira og
minna ein menningarleg heild, þá
hafa einstakar þjóðir ríka til-
nneigingu til að halda fast við
gamlar erfðavenjur, hvað sem
alþjóðlegri tízku líður. Það á ekki
sízt við um Fransmenn. Þeim
virðist það í fleiru en einu tilliti
mikilvægt að standa á eigin fót-
um sem sjálfstætt og óháð stór-
veldi og telja sig bæði geta kom-
izt af án þess að kunna enska
tungu eða innrétta hús sín eftir
amerískri tízku. Þeim eru þeir
Napóleon og Lúðvík XIV miklu
hugstæðari, og húsgögn þeirra og
innréttingar standa föstum fótum
í glæsilegri fortíð. Nýlega kynnti
stórblaðið Paris Match nýja
tízku í húsbúnaði og innrétting-
um eins og það var kallað: Le
style 1900. Eftir myndinni að
dæma hefði hún getað verið frá
einhverju reykvíksku hefðar-
heimili frá því um aldamótin, en
þá var Reykjavík hálfdanskur
bær og Danir gengu dyggilega
fram í því að stæla franska tízku.
Svo kom einskonar „hláka“ á
Norðurlöndum og það má segja,
að þær þjóðir hafi gengið í far-
arbroddi fyrir nýjum stíl. Sem
hluti af þeirri velferðarpólitík,
sem rekin hefur verið á Norður-
löndum, hefur það verið gert að
þýðingarmiklum hlut, að hús,
húsgögn og innréttingar séu hag-
kvæm og við hæfi fjöldans. Aft-
ur á móti er hætt við því, að
antík-stíll Fransmanna sé dýr í
framleiðslu og fremur fyrir fáa
útvalda.
Hér á íslandi virðist erfitt að
lækka byggingarkostnaðinn eða
finna hentugra byggingarefni en
steinsteypuna. Meðan svo er,
mun stíllinn verða svipaður. Ekk-
ert bendir til skjótra breytinga.
Það er ekki líklegt, að hér verði
farið að byggja Hans og Grétu-
hús og franskt endurhvarf til
aldamótanna eða aftar er heldur
ekki líklegt. Mér þykir líklegt,
að húsagerð hér og á hinum Norð-
urlöndunum muni haldast tals-
vert í hendur því hugsunarhátt-
ur er líkur í þessum löndum. Þó
hafa þeir múrsteininn umfram
okkur og nota hann mikið. Það
er skaði, að hér skuli ekki völ
á neinu hliðstæðu efni, sem ekki
þarf að húða. Með bættum að-
ferðum við að verja timbur fyrir
fúa, mætti segja mér, að notkun
þess færi vaxandi. Það hefur
ýmsa kosti framyfir steininn þeg-
ar að öllu er gætt. Vísindamenn
álíta að andrúmsloft verði heil-
næmara í timburhúsum en stein-
húsum og þau hafa einhvern sér-
stakan þokka sem steinhúsum er
fyrirmunáð að hafa. Auk þess
er auðvelt að breyta þeim eða
jafnvel rífa þau alveg. Og hver
þorir að fullyrða, að barnabörn
okkar vilji yfirleitt sjá að búa
i þessum járnbentu steinkumb-
öldum okkar, sem við byggjum
með ærnum kostnaði?
Gísli Sigurðsson.
NEVA, SÍÐASTI MÖGU-
LEIKINN
Framhald af bls. 29.
í staðinn fyrir Moskvu, en eng-
inn spurði neins. Aðeins fáeinir
/v<\ LÍKA ’A
Aakvöldin
HEFURN
OPAL VÖLDIN !^o
( OPAL hressir.bœtir og kœtir! )
------------
3Q — VXKAN 26. tbl.