Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 20
g! JÖIAGETRAUN
VIKUNNAR 1964
Nú gefst lesendum VIKUNNAR einstakt tækifæri til að taka þótt í glæsilegri verðlaunakeppni, og e.t.v. eignast
vandað sjónvarpstæki, stórt og fallegt útvarpstæki, eða traustbyggt og þægilegt transitor-ferðatæki.
Verðlaunin verða afhent vinnendum fyrir jólin, enda verður getraunin aðeins í þessu eina tölublaði, en lausnir
þurfa að berast í síðasta lagi fyrir 20. desember n.k. Síðasti móttökudagur lausna verður þannig 19. desember,
en dregið verður um verðlaunin daginn eftir.
Ef vinnendur eru búsettir í Reykjavík eða næsta nógrenni, þó munum við afhenda þeim vinninginn þegar í stað,
en ef þeir eru búsettir annars staðar ó landinu, verður hringt til þeirra og tilkynnt um vinningin þann 20. des.
Jafnframt því að menn senda lausnir til VIKUNNAR, þurfa þeir að taka þótt í skoðanakönnun, sem VIKAN gengst
fyrir um efni blaðsins. A getraunaseðlinum eru nokkrar spurningar, sem lesendur eru beðnir að merkja við eftir
eigin smekk, og lóta þannig vita hvaða tegund efnis þeir óska helzt eftir að birtist í VIKUNNI.
Það skal tekið fram að getraunaseðillinn er aðeins tekinn gildur, að hann
sé klipptur út úr blaðinu, - útfylltur greinilega, og að spurningum í skoð-
anakönnuninni sé einnig svarað.
v_________________________________________________________________________________________________________________________V