Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 31
*
Lit'ar sykurkringlur.
250 gr. hveiti, 1 tsk. sódaduft, 100 gr. sykur,
1 matsk. kardimommur, ca. 3 matsk. rjómi, gróf-
ur sykur.
Hveiti og sódaduft sigtað saman og smjörlíkið
mulið ofan í og sykrinum og kardimommunni
bætt í og loks rjómanum. Deiginu rúllað í mjóar
lengjur og búnar til kringlur, sem penslaðar eru
með rjóma og velt upp úr grófum sykri. Bakaðar
við góðan hita í ca. 10 mín.
*
Appelsínutoppar.
250 gr. sykur, 250 gr. smjörlíki, 2 egg, 175 gr.
hveiti, 75 gr. kókosmjöl, rifinn börkur af 1 appel-
sínu, 125 gr. möndlur.
Smjörlíkið hrært með sykrinum, eggin þeytt og
blandað í, síðan kókosmjölinu, apelsínuberkinum
og söxuðu möndlunum. Sett á smurða plötu með
tveim teskeiðum með góðu bili á milli. Bakað við
góðan hita í 10 mín. eða minna, því að þær mega
ekki verða of dökkar.
1 bolli hveiti, IV4 bolli eggjahvítur, >/4 tsk. salt,
1 tsk. cream of tartar, y2 tsk. vanilludropar, y4 tsk.
möndludropar, IV2 bolli sykur.
Eggjahvíturnar þeyttar vel og salti og cream of
tartar stráð yfir og droparnir settir í. Sykurinn sett-
ur smám saman í og síðast hveitið í smáskömmt-
um mjög varlega. Sett í stórt kringlótt mót og
bakað við litinn hita í u.þ.b. klukkutíma. Kakan
ekki tekin úr forminu fyrr en eftir klukkutíma.
Þegar hún er köld er skorið stykki úr miðjunni,
þannig að eftir verði þykkur hringur (betra en
að baka í hringformi, fyllingin fellur þéttar að á
þennan hátt). Fyllingin gerð þannig: 1 stór dós af
kokkteilávöxtum, 5—6 blöð matarlím, V2 bolli vatn,
y4 bolli sykur, 2 matsk. sítrónusafi, y4 tsk. möndlu-
dropar, þeyttur rjómi til að skreyta með.
ar, sykurinn og hálfa eggið, látið deigið standa
dálitla stund á köldum stað áður en það er flatt
út. Gerið kringlóttar kökur úr helmingnum og
úr hinum helmingnum kökur af sömu stærð, en
með stóru gati í miðju. Á hringina er stráð söxuð-
um möndlum og perlusykri eftir að þeir hafa
verið penslaðir með eggi. Kökurnar bakaðar í
meðalheitum ofni. Síðan er sulta eða marmelaði
sett á heilu kökurnar og hringurinn lagður yfir.
Marengsrúlla.
200 gr. smjör eða smjörlíki, 200 gr. hveiti, 2
matsk. rjómi. Fylling: 2 eggjahvítur, 125 gr. sykur,
75 gr. óflysjaðar hakkaðar möndlur.
Hnoðið smjör, hveiti og rjóma og látið deigið
standa nokkra stund. í fyllinguna eru eggjahvít-
urnar þeyttar eins stífar og hægt er, sykrinum
og möndlunum blandað varlega saman við. Deigið
flatt út og marengsdeigið smurt varlega á það
og síðan rúllað saman eins og rúllutertu. Kökur
skornar af rúllunni, sem bakaðar eru í frekar
heitum ofni, þar til marengsdeigið, sem rís svo-
lítið upp úr kökunum, er Ijósbrúnt.
Eng'lakaka með ávaxtafyllingu.
Ávextirnir úr dósinni síaðir vel og kældir, en
vatninu blandað saman við safann, matarlímið brætt
og sett í, síðan sykurinn og sítrónusafinn og hrært
þar til sykurinn er vel uppleystur. Þá er kældum
ávöxtunum bætt í og möndludropunum. Látið hálf-
stífna, en þá er það sett í opið á kökunni. Geymt
á köldum stað í nokkra klukkutíma og skreytt
með þeyttum rjóma áður en kakan er borin fram.
*
Möndlurönd með rommkremi.
125 gr. möndlur, 3 eggjahvítur, 125 gr. flórsykur,
20 gr. hveiti, vanillukorn.
Möndlurnar malaðar í möndlukvörn og eggja-
hvíturnar þeyttar vel og sykrinum bætt smám
saman í þær og síðan möndlunum og hveitinu,
ásamt vanillukornunum úr einni vanillustöng.
Hringform er smurt og raspi stráð innan í og
möndludeigið sett í það, bakað við hægan hita
í ca. 35 mín. Losað varlega með hníf þegar kakan
er tekin úr forminu, en þegar hún er köld er
hellt yfir hana bráðnu hjúpsúkkulaðí og að ofan
er hún skreytt með valhnetukjörnum og kokkteil-
berjum, rauðum og grænum. Þegar hún er borin
fram er raðað í kringum hana niðursoðnum ávöxt-
um og kokkteilberjum og búið til gott krem með
rommbragði (úr rommi eða rommbragðefni), sem
borið er með kökunni.
*
Bananabrauð.
1% bolli hveiti, 2% tsk. lyftiduft, V2 tsk. kanill,
V* tsk. múskat, V-z tsk. salt, Vz bolli saxaðar hnet-
ur, Vs bolli smjörlíki, 2/s bolli sykur, 2 egg, 1 bolli
marðir bananar (ca. 3—4 stk.), 1 bolli sykraðir
ávextir, y4 bolli rúsínur.
Smjörið hrært með sykrinum og eggjunum, þurru
efnunum blandað í með bönununum, en ekki hrært
meira en nauðsynlegt er. Síðan eru ávextirnir, hnet-
urnar og rúsínurnar látið saman við, og deigið
sett í smurt, ílangt form og bakað í 60—70 mín.
við meðalhita.
*
Hunangs-ávaxtasmákökur.
Vs bolli hunang, Vz bolli púðursykur, 1 egg,
IV2 tsk. sítrónusafi, 1 y2 bolli hveiti, i/4 tsk sóda-
duft, Ve tsk. salt, V2 tsk. kanill, Va tsk. múskat Va tsk.
negull, Vs bolli steinlausar rúsínur, y4 bolli saxaður
ananas, y4 bolli saxaðir valhnetukjarnar.
Hitið hunangið að suðumarki, takið það af eld-
inum og bætið sykrinum í og hrærið þar til hann
er bráðnaður. Þeytið eggin í skál þar til þau eru
létt og freyðandi, bætið sítrónusafanum 1 þau og
síðan hunangsblöndunni og hrærið vel. Bætið síð-
an þurru efnunum í og ávöxtunum og hnetunum.
Öllu blandað vel saman og deigið síðan geymt á
köldum stað í 3—4 klst. eða yfir nótt. Flatt út
í meðalþykkt og gerðar úr kökur með því lagi,
sem óskað er eftir. Bakað í 12—15 mín. í meðal-
heitum ofni, eða þar til þær eru ljósbrúnar. Glassúr
úr flórsykri má nota ofan á ef vill.
Framhald á bls. 64.
Kanilhjörtu.
250 gr. hveiti, 125 gr. smjörlíki, 2 matsk. kanill,
200 gr. púðursykur, 2 egg, kanill og sykur.
Hveitið og smjörlíkið mulið saman, kanil og
púðursykri bætt í og svo eggjunum. Flatt þunnt út
og búnar til hjartalagaðar kökur (e.t.v. hægt að
fá þannig form). Kanil og sykri stráð yfir og bakað-
ar við góðan hita í 8—10 mín. Skreyttar með glassúr
ef vill.
*
Gráfíkjukaka.
4 egg, 1 bolli sykur, 1 bolli saxaðar gráfíkjur,
1 bolli saxaðar valhnetur, 3 matsk. hveiti, V2 tsk.
lyftiduft.
Eggjahvíturnar þeyttar vel og helmingur sykurs-
ins settur smám saman í, þeytt áfram þar til það
er stíft en ekki þurrt. Eggjarauðurnar hrærðar með
afganginum af sykrinum og í þær er settar grá-
fíkjurnar, hveitið og lyftiduftið, en eggjahvíturnar
settar varlega saman við síðast. Sett í smurt, lágt
og breitt form og bakað í næstum klukkutíma.
Þegar kakan er köld er hún skorin í ferhyrnda
bita og gott er að hafa rjóma með henni eða ís.
VIKAN 49. tbl. — gj