Vikan


Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 50

Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 50
Tvö E'ieimsfyrirtæki FRAAEG: SJÁLFVIRKAR ÞVOTTAVÉLAR, ELDAVÉLAR, ELDAVÉLASETT, GRILLOFNAR OG OG ÚRVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA. FRÁ BOSCH: KÆLISKÁPAR, FRYSTIKISTUR, ÞEYTIVINDUR OG HRÆRIVÉLAR. SÖLUUMBOD: Reykjavík: Akranes: Patreksf jörður: ísafjörður: Sauðórkrókur: Akureyri: Húsavik: Austurland: Vestmannaeyjar: Keflavík: Húsprýði h.f., sími 20446. Staðarfell h.f. Vesturl|ós. Verzl. Kiartans R. Guðmundssonar. Kaupfélag Skagfirðinga. K.E.A. Kaupfélag Þingeyinga. Verzl. Elísar Guðnasonar, Eskifirði. Haraldur Eiríkssonar. Stapafell. Bræðurnir Ormsson h.f. Vesturgötu 3 — Sími 11467. Til virðulegs bróður vors Hóla- biskups." - 14 - Póll páfi II gaf ekki forðað því, að Jón Arason beið lægri hlut í þessum átökum og dó píslarvættis- dauða einu ári og átta mánuðum eftir að hughreystingarbréfið var samið í Páfagarði. Þetta litla bréf hefur sjálfsagt verið með hinum minniháttar embættisverkum Aless- andro Farnese á róstusamri öld í lok Endurreisnartímans, en stór stund hefur það verið engu að síður, þegar „Síðasti íslendingurinn" eins og Jón Sigurðsson kallaði hann, lét lesa það upphátt í Hóladóm- kirkju. Gísli Sigurðsson. Niðurlag greinarinnar birtist í næsta blaði. ENGINN STARFSLEIÐI Á ÞESSU HEIMILI Framh. af bls. 25. — Aðlareglan er sú, að það er engin regla. Ég skipulegg daginn ekki öðruvísi en svo, að ég veit nokkurnveginn hvað ég muni gera næsta klukkutímann. Að undan- förnu hef ég verið óvenjulega ár- risul,- byrjað að vinna við þessi teppi upp úr klukkan sex á morgn- ana. Það er vegna þess að mér var boðið að taka þátt í sýningu erlendis, og nú er ég orðin helzt til sein. Eftir fáeina daga eiga teppin að fara í póst. — Það hefur verið talsvert um það rætt, hvort hægt sé að venja sig á það að ganga að listsköpun eins og hverri annarri vinnu; byrja til dæmis klukkan níu að morgni og vinna stanzlaust til kl. þrjú eða lengur eftir atvikum. Ég veit ekki betur en sumir frægir rithöfundar hafi þetta vinnulag. Eða á að bíða eftir því að maður verði upplagður; bíða eftir því að andinn komi yfir mann? Hvað segið þið um það? Magnús: — Ég er á þeirri skoð- un, að andinn komi miklu fremur yfir þann sem er að vinna. Hins vegar eru allir misjafnlega upp- lagðir og það á ekki við mig að hafa alveg ákveðinn vinnutíma. Ekki nema því aðeins að ég sé á ferðalagi og sé ákveðinn í því að nota tímann vel. — En hvað segir þú um þetfa, Barbara? — Ég man ekki til þess að ég hafi þurft að bíða eftir því að verða upplögð. Ég get alltaf unnið þegar ég hef aðstöðu til þess og ég gæti alveg eins byrjað klukk- an níu að morgni og unnið til klukkan sex til dæmis, ef ég mætti vera að því fyrir einhverju öðru. En nú er ég húsmóðir líka og það tekur sinn tíma. — Ertu yfirleitt með margt í tak- inu í einu, veggteppi, ofnar mynd- ir og málverk? — Nei, aðeins eitt í einu. Það á ekki við mig að hlaupa á milli óskyldra hluta. — Nú eruð þið bæði víða kunnug í heiminum og ættuð að hafa hug- mynd um það, hvernig það er að helga sig listinni hér á móti því sem það er annarsstaðar úti í þeim stóra heimi. Magnús svaraði: — Ég veit, að það er betra að vera hér að því leyti að allur almenningur hefur miklu meiri áhuga á því að eiga frummyndir eftir listamenn þjóðar- innar og það er að mörgu leyti miklu betur að þeim búið hér. Ég skaut inn í, að margir væru nú orðnir svo leiðir á eftirprent- unum vegna þess að þær fáu myndir væru allsstaðar: í opin- berum byggingum og heimahús- um. Kannski væri það ástæðan. Barbara: — Ég tek undir það, að það er betra fyrir listamenn að vera á Islandi en víða annarsstað- ar að minnsta kosti. Þeir virðast komast betur af, en eru aftur á móti mjög sundraðir. Sumstaðar í útlöndum, þar sem þeir eiga erfitt uppdráttar, þar standa þeir meira saman. En mér finnst það athyglis- vert við íslenzka menningu og ís- lenzkt þjóðfélag, að þar er gert ráð fyrir listamönnum sem sjálf- sögðum meðlim í þjóðarfjölskyld- unni, ef svo mætti að orði komast og það er ef til vegna þess, að almenningur hér sýnir lofsverðan áhuga og sækir sýningar í tals- verðum mæli. Það er ekki bara fjárhagslega hliðin, sem skiptir máli; hitt er líka mikils virði að finna, að það sem maður gerir er einhvers virði fyrir fólkið. —■ Hefur þú nokkuð reynt að nema land í Ameríku? — Það kom til tals, að þekkt gallerí í New York hefði veggteppi eftir. mig. Þeir vildu láta mig hafa ákveðið verð, sem kannski var ekki svo slæmt, en síðan lögðu þeir ofan á verðið tolla og flutnings- gjald og þar ofan á 100% álagn- ingu. Þar með er það orðið innan við helmingur af verðinu, 'sem rennur til höfundarins. Ég kærði mig ekki um það að taka þátt í þess- konar samstarfi. — En þið hafið verið vestur í Mexíkó? ' 1 ,.i, Magnús: — Já, og ef allt-. fer eins og gert hefur verið ráð fyrir, þá förum við þangað aftur eftir áramótin. Mexíkó er að mörgu leyti gósenland fyrir málara. Ég álít að sumir þeirra menn séu meðal hinna snjöllustu í heiminum og það ber mikið á verkum þeirra, því það er til siðs þar að skreyta opinberar byggingar, stundum bæði að utan og innan. Þess vegna 'eru þetta oft risastórar freskómyndir. — Hvaða áhrif hefur það að standa frammi fyrir góðu verki, hvort heldur það er á safni, sýn- ingu eða skreyting í byggingu? Barbara: — Það héfur þau áhrif á mig, að mig langar stra'x til að fara að gera eitthvað. Ekki eins, kannski gagnstætt. Ég hef fundið þessa tilfinningu eftir að hafa séð gQ — VIKAN 49. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.