Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 18
Hús og húsbúnaður
Myndir og frósögn af athyglisverðu einbýlishúsi við Stigahlíð. Arkitekt: Guðm. Kr. Kristinsson.
H'ER FÆR STEINNINN
AD Ni'OTA SiN
jg _ VIKAN 49. tbl.
Úr stofunni. Glugginn nær niður í gólf, útveggirnir eru úr mát-
steini. Arinninn „hangir" niður úr loftinu. Til vinstri: Grunn-
teikning. Myndin að ofan: Séð úr borðstofunni og inn í stofuna.
Veggurinn til hægri er innveggur, en hlaðinn úr mátsteini.
Einhverntíma hef ég minnzt á
það áður í þessum þætti, að bygg-
ingariðnaðurinn virðist hafa orðið
viðskila við tækniþróunina í veiga-
miklum atriðum. Þó eru gerðar
einstaka tilraunir, sem eiga ef til
vill eftir að hafa þýðingu síðar —
en það er hljótt um þær eins og
er. í fyrravor var grein um ein-
býlishús í Kópavogi hér í þessum
þætti; það hafði verið byggt á ný-
stárlegan hátt úr járngrind og plöt-
um. Höfundur þess var Guðmund-
ur Kr. Kristinsson, arkitekt. Um
svipað leyti fréttist manna á meðal,
að búið væri að byggja nýstárlegt
hús við Stigahlíð og margir lögðu
leið sína þangað í forvitnisskyni.
Sannleikurinn er sá, að það er
mikill og almennur áhugi fyrir
byggingum og bygginganýjungum
í þessari byggingaborg. En nýjung-
ar eru svo sjaldgæfar, að fólk þyrp-
ist á staðinn, þegar um eitthvað
nýtt er að ræða og starir eins og
naut á nývirki.
Vikan er ekki minna forvitin en
aðrir, og má raunar alls ekki vera
það. Þess vegna höfum við farið
á staðinn, tekið myndir og fengið
upplýsingar hjá eiganda hússins,
Pétri Péturssyni, forstjóra, og
einnig höfum við talað við arkitekt-
inn, sem reyndist vera sá hinn
sami Guðmundur Kr. Guðmundsson.
Hann á heiður skilið fyrir það að
reyna nýjar leiðir og hrista menn
af svefnmóki vanafestunnar. Og
Pétur á heiður skilið fyrir að fram-
kvæma hugmyndir hans. Ég man
varla til þess að ég hafi orðið
jafn hrifinn af nýju húsi og þessu.
Ekki bara vegna þess að þar væru
nýjungar á ferðinni, heldur fremur
vegna þess, að mér fannst arki-
tektúr hússins mjög athyglisverður
að utan jafnt sem innan og svo
hitt, að húsið var jafnframt því
einstaklega hlýlegt og heimilislegt.
Það nýstárlega við þetta hús er
fyrst og fremst það, að útveggir
þess — og reyndar sumir innvegg-
ir líka — eru hlaðnir úr ís-
lenzkum mátsteini og hvorki
múrhúðaðir að utan né inn-
an. Grunnurinn og platan eru gerð
á venjulegan hátt, en útveggirnir,
sem samtals eru 25 cm þykkír, eru
hlaðnir úr tveim lögum af 9 cm
þykkum steini (hver steinn er 20x40
cm). A milli platanna verður þá
7 cm bil, en 5 cm þykkar einangr-
£"1! föt . vinma 0« líiKum
HCJUH