Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 3
JOLABLAÐ
iggiígfgji
m
Guðmundur Karlsson og
Sígurður Hreiðar, '
Snorri Friðríksson.
Auglysingastjóri:
Gunnar Steindórsson.
Ritstjórn og auglýsiiigar:
. Sírnar'. 35320, 35321, !
aagwga
IslSlll
<vX
*
JiSM:
feÉl
■ '0 ■
N /t S I A B l r t)
XIL MIAMI FYRIR EINA TERTU. Myndlr
úr verðlaunaferð Elínar Guðjónsdóttur til
Miami — fyrstu verölaun fyrir beztu kök-
una I bökunarkeppni O. Johnson & Kaaber
og Pillsbury's Best.
FATATÍZKA FRÁ NAPÓLEONI TIL NÚ-
TÍMANS. Þriðja og síðasta grein um fata-
tizkuna í fimm þúsund ár. Greinin hefst
að lokinni byltingunni í Frakklandi og nær
til vorra tima.
SÁ ÁTTI ERINDI í LÓNIÐ. Það átti ekki
úr að aka fyrir veslings Andrési í Lóni.
Fyrst lengi vel fékk hann engan kven-
mann, cn síðan þetta líka heks, — og það
á þennan hátt! En að Iokum fannst ráð sem
dugði — og læknaði Drésa grcyið af allri
kvennalöngun. Bráðsmellin smásaga í þjóð-
sagnastíl eftir Terje Stigen.
REIKAÐ UM STRÆTI RÓMAR. Síðari Róm-
argrein Gísla Sigurðssonar ritstjóra. f Róm
kennir margra grasa, bæði af fólki og mann-
virkjum, og Gisli hefur brugðið upp mynd-
um úr nútíð og fortíð.
MINNISSTÆÐ ATVIK FRÁ 14. ÓLYMPÍU-
LEIKUNUM. Við rifjum upp citt og annað
frá fyrri Ólimpiuleikum og birtum þar að
auki myndir frá Tokyo.
Þar að auki: Framhaldssögurnar: ANGE-
LIQUE og MEÐ ÁSTARKVEÐJU FRÁ
RÚSSLANDI, krossgáta, kvennaefni, stjörnu-
spá — og svo auðvitað allt hitt....
Jólamatur við allra hæfi
Það er gamall og góður siður að gera vel við sig
í mat á jólunum og skal vel til þess vanda, sem borið
er á jólaborð. Til þess að stuðla að þvi, hefur
Vikan fengið úrvals matreiðslumann frá Kjötbúðinni
Borg til þess að búa til uppskriftir að góðum
jólamat, svo sem hangikjöti, Roast beef, nauta-
tungu, laxi, kalkún, önd, lambasteik, rjúpum
og Hamborgarhrygg.
Reikað um stræti Rómar
Enginn staður í heiminum öllum á sér svo atburðaríka
sögu sem Róm og engin önnur borg hefur nokkru
sinni getað kallazt höfuðborg heimsins.
„Þar eru jörð og steinar og stræti öli, roðin í heilagra
manna blóði“, en auk þess er Róm nútímans
hrifandi borg með segulsvið, scm spannar um lönd og
höf. Grein eftir Gísia Sigurðsson, ritstjóra.
Vikan heimsækir
Barböru og Magnús Á.
Árnason
Jólaforsíðan er eftir Barböru og
í tilefni þess höfum við heimsótt þau
hjón og rabbað við þau.
„Ég skil ekki að neinn yrki kvæði
á traktor.“
Vikan heimsækir og ræðir við Guðmund Daníelsson,
skáld á Eyrarbakka, og auk þess eru nokkrar
myndir af „Bakkanum“, þessum fornfræga
verzlunarstað, sem ber glans fortíðarinnar fremur en
nútímans.
Eru öll nýfædd börn
eins?
Það er nokkuð sem karlmenn
hafa haldið fram, eða er það ekki
rétt? Vikan fékk leyfi til að
taka myndir af tíu nýfæddum börn-
um á Fæðingarheimilinu við
Eiríksgötu og nú geta allir séð sjálfir
og svarað þessari spurningu.
FORSÍÐAN
Skammdegi, norðurljós, kertaljós. Jólin hafa verið
nefnd hátíð ljósanna enda þótt þau beri upp á svart-
asta skammdegið. Einmitt þess vegna var hátíð um
þetta leyti í heiðnum sið. Til að fagna endurkomu ljóssins, hækkandi sól. For-
síðumyndin er eftir Barböru Árnason, listmálara, og gefur okkur hugmynd
um hátíð ljósanna í árstíð myrkursins.
VIKAN 49. tbl.