Vikan


Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 3

Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 3
JOLABLAÐ iggiígfgji m Guðmundur Karlsson og Sígurður Hreiðar, ' Snorri Friðríksson. Auglysingastjóri: Gunnar Steindórsson. Ritstjórn og auglýsiiigar: . Sírnar'. 35320, 35321, ! aagwga IslSlll <vX * JiSM: feÉl ■ '0 ■ N /t S I A B l r t) XIL MIAMI FYRIR EINA TERTU. Myndlr úr verðlaunaferð Elínar Guðjónsdóttur til Miami — fyrstu verölaun fyrir beztu kök- una I bökunarkeppni O. Johnson & Kaaber og Pillsbury's Best. FATATÍZKA FRÁ NAPÓLEONI TIL NÚ- TÍMANS. Þriðja og síðasta grein um fata- tizkuna í fimm þúsund ár. Greinin hefst að lokinni byltingunni í Frakklandi og nær til vorra tima. SÁ ÁTTI ERINDI í LÓNIÐ. Það átti ekki úr að aka fyrir veslings Andrési í Lóni. Fyrst lengi vel fékk hann engan kven- mann, cn síðan þetta líka heks, — og það á þennan hátt! En að Iokum fannst ráð sem dugði — og læknaði Drésa grcyið af allri kvennalöngun. Bráðsmellin smásaga í þjóð- sagnastíl eftir Terje Stigen. REIKAÐ UM STRÆTI RÓMAR. Síðari Róm- argrein Gísla Sigurðssonar ritstjóra. f Róm kennir margra grasa, bæði af fólki og mann- virkjum, og Gisli hefur brugðið upp mynd- um úr nútíð og fortíð. MINNISSTÆÐ ATVIK FRÁ 14. ÓLYMPÍU- LEIKUNUM. Við rifjum upp citt og annað frá fyrri Ólimpiuleikum og birtum þar að auki myndir frá Tokyo. Þar að auki: Framhaldssögurnar: ANGE- LIQUE og MEÐ ÁSTARKVEÐJU FRÁ RÚSSLANDI, krossgáta, kvennaefni, stjörnu- spá — og svo auðvitað allt hitt.... Jólamatur við allra hæfi Það er gamall og góður siður að gera vel við sig í mat á jólunum og skal vel til þess vanda, sem borið er á jólaborð. Til þess að stuðla að þvi, hefur Vikan fengið úrvals matreiðslumann frá Kjötbúðinni Borg til þess að búa til uppskriftir að góðum jólamat, svo sem hangikjöti, Roast beef, nauta- tungu, laxi, kalkún, önd, lambasteik, rjúpum og Hamborgarhrygg. Reikað um stræti Rómar Enginn staður í heiminum öllum á sér svo atburðaríka sögu sem Róm og engin önnur borg hefur nokkru sinni getað kallazt höfuðborg heimsins. „Þar eru jörð og steinar og stræti öli, roðin í heilagra manna blóði“, en auk þess er Róm nútímans hrifandi borg með segulsvið, scm spannar um lönd og höf. Grein eftir Gísia Sigurðsson, ritstjóra. Vikan heimsækir Barböru og Magnús Á. Árnason Jólaforsíðan er eftir Barböru og í tilefni þess höfum við heimsótt þau hjón og rabbað við þau. „Ég skil ekki að neinn yrki kvæði á traktor.“ Vikan heimsækir og ræðir við Guðmund Daníelsson, skáld á Eyrarbakka, og auk þess eru nokkrar myndir af „Bakkanum“, þessum fornfræga verzlunarstað, sem ber glans fortíðarinnar fremur en nútímans. Eru öll nýfædd börn eins? Það er nokkuð sem karlmenn hafa haldið fram, eða er það ekki rétt? Vikan fékk leyfi til að taka myndir af tíu nýfæddum börn- um á Fæðingarheimilinu við Eiríksgötu og nú geta allir séð sjálfir og svarað þessari spurningu. FORSÍÐAN Skammdegi, norðurljós, kertaljós. Jólin hafa verið nefnd hátíð ljósanna enda þótt þau beri upp á svart- asta skammdegið. Einmitt þess vegna var hátíð um þetta leyti í heiðnum sið. Til að fagna endurkomu ljóssins, hækkandi sól. For- síðumyndin er eftir Barböru Árnason, listmálara, og gefur okkur hugmynd um hátíð ljósanna í árstíð myrkursins. VIKAN 49. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.