Vikan - 03.12.1964, Blaðsíða 57
ekki lengur hlustað á sögur á
kvöldin. Menn eru annað hvort
úti i sjoppu að súpa kóka kóla
eða horfa á dátasjónvarpið eða
eitthvað annað, og það er ekki
rökkur lengur á kvöldin, og fjöl-
skyldan á ekki lengur samstöðu;
lmn er dreifð. Húsakynnin eru
svo stór og góð, hér áður fyrr
var ekki nema einn lítill hús-
krókur einhversstaðar, sem liægt
var að lifa í, og allir söfnuðust
þar og maður varð einhverja
skemmtun að hafa og þarna var
hún, það var eins og að skrúfa
frá útvarpinu, að setjast hjá
ömmu sinni og biðja hana um
sögu. Þá kom sagan. Ég hef not-
að í sumar mínar bækur þráð-
inn úr sumum ömmusögum, og
ýmsar mínar bækur eru alger-
lega upprunnar frá þessari lind.
— Þú sagðir áðan, að það
hefði verið eins og að skrúfa
frá útvarpinu að setjast hjá
ömmu sinni og biðja um sögu.
Getur útvarpið komið að ein-
hverju leyti i staðinn fyrir ömm-
urnar?
— Ja það er allt annað.
Útvarpið er gott út af fyrir sig,
en — nei, — það getur ekki kom-
ið í staðinn fyrir þær. Við get-
um ekki beðið útvarpið um
þetta eða hitt, við getum ekki
róðið neinu um það, livað við
fáum að heyra i þvi, eða yfir-
leitt ekki. Ég veit ekki hvort þú
þekkir þessar gömlu konur -—
sko — þær kunnu svo mikið.
Og maður gat valið á milli þess,
sem þær liöfðu reynt sjálfar, séð
og heyrt — þær voru búnar að
lifa mörg ár — eða þá þær fluttu
kvæði og sögur, sem þær höfðu
lesið á bók eða gengu manna ó
milli. Maður gat valið um margs
konar efni, hjá þessum fróðustu
og minnugustu, og þeim sem
höfðu tamið sér að segja börnum
frá. Ég bað ömmu mina yfirleitt
að segja mér sögu úr lifinu
sjálfu, sannar sögur úr lífinu.
Sögur, sem höfðu gerzt, í hennar
umhverfi, snemma á liennar ævi
til dæmis.
— Eftir þessu er ungum manni,
sem hyggur á rithöfundarferil nú,
erfiðara um vik en jafnaldra
hans fyrir tuttugu, þrjátíu árum,
sem óx upp við sögur ömmu
sinnar.
—- Ég veit það hefði orðið
erfiðara fyrir mig, en ég fullyrði
ekki, að þetta eigi við um alla.
Það getur vel verið, að sumir
Þurfi ekki á þessu að lialda, til
þess að fá áhuga eða getu til
ritstarfa eða skáldskapar. Það
getur vel verið, ég þekki það
ekki. En ef ég á að byggja á
minni reynslu, vil ég segja að
amma mín og sögurnar hennar
höfðu mjög mikil áhrif í þá átt,
að ég fór að skrifa sjálfur.
— Myndirðu vilja segja, að
hetri liúsakynni, meiri birta og
meira skemratanalíf hefði nei-
kvæð áhrif á bókmenntirnar?
— Nei, ég vil ekki halda þvi
Husqvarna
flHiqvarna eldavélin er ómissandi í hverju
nútíma eldhúsi — þar íer saman nýtízkulegt útlit og allt
það sem tækzii nútímans getur gert ti! þess að matargerð-
in verði húsmóðurinni auðveld og ánægjuleg. Husqvarna
eldavélar fást bæði sambyggðar og með sérbyggðum
bökunarofni.
KVENSKÚR
D A N S K I R
Þ Ý Z K I R
SVISSNESKIR
ÍTALSKIR
HOLLENZKIR
KVENSKÓR eingöngu KVENSKÓR
LAUGAVEG 11
------------------1
VIKAN 49. tbl. — ^rj