Vikan


Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 46

Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 46
FerðavQski með Ro!'-on After Shave, ta!kumi og herrasápu. -O Haír-Cream, Talkum, Roll-on After Shave og „Close Shave“ froða. H ^Krem Cologne fyrir herra, Roll-on After Shave, Iiárkrem, Deodorant, Talkum og ■ „Close-Shave“ handa bezta vininum. O Roll-on After Shave og Talk- um. Krem Cologne fyrir herra, Roll-on After Shave og Talkum. O PRINCE GOURIELLI After Shave Lotion og herrasápa í ferðahylki. <Z>' After Shave Lotion í flöskum með málm- hettum. Eu de Cologne krem — After Shave Lotion og Tonic Hair Groon í flöskum með málmhettum. -O úr klefanum sínum, af því að hann er hræddur við okkur. Ferðinni mið- ar vel áfram og ekkert ber til tíð- inda. Og þó, og þó . . . Kerim hristi höfuðið. — Þessir Rússar eru miklir skákmenn. Þegar þeir stofna til samsæris, er ekkert hálfkák á því. Leikurinn er skipulagður niður í hvert smáatriði og þeir reikna með öllum viðbrögðum óvinarins. Þeir sjá fyrir um þau og reikna með þeim. Einhversstaðar inni í hug- skoti mínu hef ég það á tilfinning- unni, að þú og ég og þessi stúlka séum taflmenn á stóru taflborði, og fáum að hreyfa okkur eins og er, af því að það er í samræmi við leik Rússanna. — En hver er tilgangurinn með leik Rússanna? Bond horfði út í loftið. Hann talaði við spegilmynd sína í glugganum. — Hvað geta þeir áunnið? Við komum alltaf aft- ur að því. Auðvitað hefur okkur öllum fundizt þetta vera einhvers- konar samsæri. Og það getur vel verið, að stúlkan viti ekki einu sinni að hún er flækt í það. Eg veit, að hún dylur eitthvað, en ég held, að það sé aðeins lítið leynd- armál, sem hún heldur að sé ekki mikilvægt. Hún segist skuli segja mér allt, þegar við komum til Lond- on. — Allt? Hvað á hún við? — Hún segir, að ég verði að- eins og hafa trúnaðartraust og það sé engin hætta. Þú verður að við- urkenna, Darko, — Bond leitaði að staðfestingu I augum vinar síns, — að hún hefur hagað sér samkvæmt sögu sinni. Það var engin ákefð í augum Kerims, hann sagði ekkert. Bond yppti öxlum: — Eg viðurkenni, að ég hef fallið fyrir henni, en ég er enginn venjulegur bjáni, Darko. Ég hef verið að leita að einhverjum endum, einhverju, sem gæti orðið okkur til hjálpar. Þú veizt, að mað- ur gefur sagt til um það, þegar ákveðnar hindranir eru að baki. Þær eru að baki, og ég veit að hún er að segja sannleikann, að minnsta kosti 90% af honum. Og ég veit, að hún heldur, að afgang- urinn skipti ekki máli. Ef hún er eitthvað að svíkja, hefur hún einnig verið svikin sjálf. Samkvæmt skák- útskýringunni þinni er þetta mögu- legt. En við komum aftur að þeirri spurningu, til hvers þetta sé allt saman. Rödd Bonds harðnaði. — Og ef þú vilt endilega vita það, er allt, sem ég fer fram á, að við höldum áfram leiknum, þar til við komumst að því. Kerim brosti að þráasvipnum á andliti Bonds. Svo hló hann stutt- aralega. — Ef ég væri í þínum spor- um, vinur minn, myndi ég laumast úr lestinni í Salonici með vélina, og, ef þú endilega vilt, stelpuna líka, þó það skipti ekki svo miklu máli. •Þaðan myndi ég leigja mér bíl til ■Aþenu og taka næstu flugvél til . London. En ég Var ekki alinn upp með það fyrir augum að vera ,,góð- ur • strákur". Það- -var heeðnj .( ar.ð- unum. — Þetta er ekki leikur fyrir mér, þetta eru viðskipti. Það skipt- ir öðru máli með þig. Þú ert mað- ur áhættunnar. Það er M líka. Hann hlýtur að vera það, annars hefði hann ekki gefið þér frjálsar hend- ur. Hann vill líka fá að vita svarið við þessum leik, svo það er bezt að það verði þannig, en ég vildi vera öruggur, vera viss, og láta sem minnst skeika að sköpuðu. Sýnist þér þetta líta efnilega út og þér í hag? Darko Kerim sneri við og horfði beint framan í Bond. Rödd hans var áköf: — Hlustaðu, vinur minn. Hann lagði annan hramminn á öxl Bonds. — Þetta er billjradborð, slétt, flatt, grænt billjardborð og þú ert búinn að slá hvítu kúluna þína og hún renn- ur beint og hljcðlátlega í áttina að rauðu kúlunni. Vasinn er við hlið- ina. Þegar hvíta kúlan er komin alla leið, hittir hún rauðu kúluna og hún fer í vasann. Þetta eru lög billjardborðsins, lög billjardstofunn- ar. En fyrir utan billjardstofuna hef- ur liðið yfir þrýstiloftsflugmanninn og flugvélin hans stefnir beint á billjardstofuna eða þá að gasrörið er í þann veginn að springa eða þá að eldingunni er í þann veginn að Ijóstra niður. Og byggingin hryn- ur yfir þig og bilIjardborðið. Hvað gerðist þá með hvítu kúluna, sem gat ekki farið framhjá vasanum? Hvíta kúlan gat ekki farið framhjá rauðu kúlunni og rauða kúlan ekki framhjá vasanum, samkvæmt lög- um billjardborðsins. En lög billjard- borðsins eru ekki einu lögin, og lögin ,sem stjórna framþróun þess- arar lestar og ákvörðunarstaðar þíns, eru heldur ekki einu lögin í þessum leik. , Kerim þagnaði. Hann gerði ræðu sína að engu með því að yppta öxlum. — En þú veizt þetta svo sem, vinur minn, sagði hann af- sakandi. — Og ég hef ekkert unnið með þessu kjaftæði nema hvað ég er oriðnn þyrstur. Hertu á stelpunni og við sku'um fá okkur að éta, en vertu vel á verði. Ég bið þig þess. Hann gerði krossmark með einum fingri neðan við bringspalirnar. — Ég geri ekki krosmark fyrir hjarta mínu, þá er maður of alvarlegur. En ég geri krossmark fyrir magan- um á mér og það er mér mikil- vægt. Við eigum eftir að komast að ýmsu, öðruvísi en við búumst við. Sígauninn sagði okkur að vera á verði. Nú segi ég það sama. Við getum haldið áfram með leikinn á billjardborðinu en við verðum báð- ir að vera vel á verði fyrir því, sem gerist fyrir utan bil 1 jardstof- una. Nefið á mér — hann klappaði því með vísifingri, — segir mér það. Magi Kerim framleiddi reiðileg hljóð, eins og heyrast í síma, þeg- ar skiptiborðið hringir eftir að tól- inu hefur verið lyft. — Þarna, sagði hann hátíðlega. — Hvað sagði ég ekki? Við verðum að fara að borða. Þeir luku við matinn um leið og lestin kom inn á stöðina í Thessa- lonici. — VIKAN 52. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.