Vikan


Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 7

Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 7
karlinn í bælinu hjá þér það sem eftir er. En ég er ekki svo illa gerður, að ég vilji ekki ráð- leggja þér eitthvað. Láttu ein- hvern kunningja skrifa honum og tilkynna að þú hafir látizt af slysförum — helzt týnzt á hafi úti, svo hann komi ekki til að vera við jarðarförina. HVAÐ Á AÐ GERA VIÐ SVONA MENN? Kæra Vika! Ég hefi ljóta sögu að segja, Póstur sæll, af kynnum mínum við ýmsa háttsetta embættis- menn í henni Reykjavík. Þeir virðast geta haft það eins og þeim dettur í hug og leikið sér að vild á kostnað annarra. Sagan er þannig, að ég fór til bæjarins núna fyrir nokkrum vikum, og átti erindi við nokkra menn á opinberum skrifstofum. Mér bráðlá á að hitta þessa ná- unga og aðrir en þeir sjálfir gátu ekki leyst mín vandkvæði. En viti menn. Ég reyni dag eftir dag að ná í fírana, en ár- angurslaust. Einn þeirra virtist bara hreint og beint aldrei vera á skrifstofunni. Alltaf á eilíf- um fundum eða bara alls ekki mættur. Annar var erlendis og engin von á honum fyrr en eftir þrjár vikur. Sá þriðji var veik- ur heima í bæli og einn enn náði ég loks í eftir fjóra daga — eftir vinnutíma. Hvað á að gera við svona menn? Ég bara spyr! Sveitamaður. --------Ljótt er að heyra, manni minn. En hefur þér nokkurn tíma dottið í hug, að maðurinn, sem var alltaf á fundum, hafi í raun og veru að vinna sitt starf — að sá, sem var erlendis, hafi verið þar vegna starfsins — að sá þriðji hafi raunverulega verið veikur og að sá fjórði hafa bara hreint ekki viljað við þig tala .. ? Kannske þú sért svona óskap- lega leiðinlegur, eða að þú hafir verið að fara fram á eitthvað við þá, sem þeir gátu ekki eða vildu ekki gera, en haft þetta lagið á til að móðga þig ekki. Annars er það því miður mjög algengt, að opinberir starfsmenn noti sér aðstöðu sína og forrétt- indi á miður æskilegan máta, svo ekki sé meira sagt. EKKISENS HÁVAÐI. Minn elskulegi Póstur! Viltu ekki koma því á fram- færi fyrir mig við leigubílstjóra hér í bæ, að það eru ekki allir farþegar, sem hafa gaman af því að hafa útvarpið öskrandi í bílnum á meðan ekið er milli húsa. Ég hef tekið eftir því að bíl- stjórar hafa yfirleitt tækin sín í gangi meirihluta dagsins, og ef ekki er einhver músik í Reykja- víkurútvarpinu, þá stilla þeir á Keflavík og láta glamra þar í staðinn. Ég hef hreinustu and- styggð á þessu glamri, og vafa- laust eru fleiri svo. Mér finnst að bílstjórar ættu að sýna far- þegum þá kurteisi að spyrja þá hvort þeir vilji hafa útvarpið hærra, en stilla það annars svo að nægi fyrir bílstjórann, eða slökkva bara alveg. Ófeigur Þ. S. --------Þetta er vafalaust alveg hárrétt hjá þér, Ófeigur, og ég kem þessu hér með til réttra aðila. En harla finnst mér mál- efnið samt lítið, og ef þú hefir ekki eitthvað stórvægara til að kvarta yfir, þá líður þér vafa- laust vel. Eða kannske þú bara þurfir að kvarta yfir öllu. Ekki vorkenni ég þér að hlusta á bítlasöng meðan þú rúllar í leigu- bíl milli húsa. Og svo getur þú líka haft það lagið á, ef þetta er erfitt hjá þér, að biðja bíl- stjórann um að lækka — eða skrúfa fyrir. ÓNÝTAR PILLUR? Kæra Vika! Hvernig var það þarna með þessar blómapillur, sem þið vor- uð að auglýsa í haust? Ég fékk mér strax svona pillur af öllum gerðum og hef hakkað þær í mig nótt og nýtan dag síðan, en samt er ég búin að fá hvotið og háls- bólgu og margt fleira. Auk þess er ég orðin blóðlaus og alveg út- haldslaus. Vissuð þið nokkuð hvað þið voruð að auglýsa? Pollý. --------Við vorum ekki að aug- lýsa neitt. Þetta var aðeins við- tal við mann, sem hafði reynslu af þessum pillum. En þú hefur bara ætlazt til allt of mikils, og þess vegna hefur þú orðið fyrir vonbrigðum. Það er réttara að gæta sín, þótt góðra lyf ja sé neitt, Hinnýju STRETCH STRAP brjóstahöld frá eru öðruvísi STRETCH STRAP brj.óstahöldin hindra ekki eðlilegar hreyfingar, snúast ekki, særa ekki og þér getið breytt hlíralengd að vild. Skálarn- ar gefa yður fallegar línur. Teygja á hliðum og baki fyrir- byggir fláa og heldur þeim stöðugum. — Hvar sem teyg- ist á brjóstahöldunum er Lycra. — Fást í hvítum og svört- um lit og öllum stærðum. * Einu Alltaf HEILDSÖLUBIRGÐIR: Verzlunarfélagið SIF Laugavegi 44 — Sími 16165 VIKAN 52. tbl. — Ijr

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.