Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 41
sem væri jafnheimskulegt. En
telpan? Já, Súsanna hlaut það
að vera — en Jane hafði kannski
stungið upp á þessu.
Hann skundaði út í garðinn
til þess að rífa skrautið af trénu,
en svo gat hann ekki fengið sig
til þess. Hann vissi ekki hvers
vegna. Honum fannst allt í einu
verða svo undarlega kyrrt í
kringum hann og sem snöggvast
sýndist honum Önnu bregða fyr-
ir. Var hún að hlægja að hon-
um? Nú var eins og jólatréð
lýsti upp allan garðinn með
ljóma sínum.
Þá heyrði hann fyrstu tóna
jólasálmianna hljóma frá kirkj-
unni.
„Heims um ból, helg eru
jól . . .“
Lengi stóð hann og hlustaði.
Biturleikinn, sem hafði ráðið svo
lengi í hjarta hans, hvarf nú, en
eftir var þreyta og tómleiki og
hann gekk hægt aftur inn.
Kirkjuklukkurnar hljómuðu
út í kvöldkyrrðina og hópar
fólks komu út úr kirkjunni og
gengu heim á leið. Jane heyrði
fólk vera að tala saman af ákafa:
„ . . . já, í garðinum hans
Roberts Elliotts . . jú það stóð
þar þegar við gengum þar fram
hjá áðan . . !“ „Ja, já, allt skreytt!
Englahár og bjöllur — og stjarna
á toppinum! Sá verður illur,
þegar hann kemst að því, hver
hefur gert þetta“.
Það rann ljós upp fyrir Jane.
Hún leit á Súsönnu og sá, að
grunurinn mundi hafa við eitt-
hvað að styðjast. Súsanna gekk
með merkissvip og leyndardóms-
fullu brosi við hlið hennar.
„Súsanna", sagði Jane og
reyndi að leyna geðshræringu
sinni, „hver skreytti tréð hans
herra Elliotts?"
„Það gerði ég! En þú mátt
ekki segja honum það og held-
ur ekki neinum öðrum. Það á
nefnilega að vera leyndarmál!
Ég talaði við hann um daginn
og spurði hann, hvers hann ósk-
aði sér í jólagjöf! Hann sagðist
óska sér bindis með gulum og
bláum köflum. Égg setti það líka
á tréð. Það gefur honum enginn
annar jólagjöf".
Hjarta Jane tók viðbragð. Til-
finningar, sem hún hélt að væru
iöngu kulnaðar, lifnuðu við á
ný. Jæja, svo Robert mundi þá
eftir bindinu!
Hún gerði sér til mikillar
skelfingar ljóst, að hann mundi
hafa hana grunaða um að hafa
skreytt tréð — það var meira að
segja hugsanlegt að hann rifi
skrautið af trénu í bræði. Hún
leit á ánægt andlit Súsönnu og
hugsaði: Hvað sem það kostar,
má hann ekki gera það — Sús-
anna gæti aldrei gleymt því!
„Við skulum flýta okkur heim,
Súsanna", sagði hún glaðlega og
leyndi uppnáminu, sem hún var
í. í tíu ár hafði hún reynt að
sætta sig við að lifa án Roberts,
en nú hafði Súsanna í einu vet-
fangi brotið niður þann varnar-
múr, sem hún hafði hlaðið um
sig.
En viðbrögð Súsönnu, þegar
hún sá tréð í glugganum heima
hjá þeim, var henni næg umbun
fyrir erfiðið við að halda skreyt-
ingunni leyndri — hún var him-
inlifandi!
„Gerðu þér í hugarlund, hve
herra Elliott hefur orðið glað-
ur, þegar hann sá sitt jólatré!“
sagði Súsanna sigrihrósandi.
..Hvernig datt þér þetta í
hug?“ spurði Jane.
„Hann var svo einmana, eins
og hann ætti engan að“, sagði
Súsanna. „Ég æftlaði bara að
gleðja hann . . .“
Það verður mér dýr gleði,
hugsaði Jane döpur. En hún
brosti til Súsönnu og strauk
henni blíðlega um hárið. Hún
varð að fá Robert til að skilja,
að Súsanna hafði aðeins gert
þetta til að gleðja hann.
Þegar Súsanna var háttuð, fór
Jane hljóðlega niður og tók káp-
una sína. Það mundi ekki taka
langan tíma, sem hún nú ætlaði
að gera, en það var eitt af því
óþægilegasta og erfiðasta, sem
hún hafði orðið að horfast í augu
við lengi, og hún var ekki einu
sinni viss um, að Robert vildi
tala við hana.
Þegar hún gekk út um hliðið,
rakst hún á Robert. Hann hafði
ekki getað hætt að hugsa um
litla tréð, sem lýsti út í myrka
desembernóttina, og hann gerði
sér ljóst, að það var gjöf til
hans — ef hann aðeins veitti
henni móttöku.
Hann rétti fram höndina til að
styðja Jane, sem hafði hrasað
við áreksturinn, og hún roðnaði
eins og skólatelpa.
,.Ég var á leið til þín“, sagði
hún lágt.
„Hvers vegna?“ spurði hann.
„Til þess að skýra fyrir þér,
hvernig liggur í þessu með jóla-
tréð. Ég heyrði fólk vera að tala
um það á leiðinni frá kirkju,
svo að ég vil að þú vitir, að þetta
var eingöngu hugmynd Súsönnu
sjálfrar. Hún hefur haft svo
miklar áhyggjur af þér — já, og
svo datt henni þetta í hug. Þeg-
ar hún sagði mér, að hún hefði
talað við þig, gerði ég mér ljóst,
að þú mundir kannski halda —
að þér mundi detta í hug . . .‘
Hann endaði setninguna fyrir
hana „ . . . að þú hefðir gert þetta
eða komið því inn hjá henni, er
það ekki?
„Jú“, hvíslaði hún.
„Það hélt ég líka — í fyrstu.
Ég varð reiður — ofsareiður“.
„Því bjóst ég líka við“, sagði
hún. „Ég var svo hrædd um, að
þú mundir rífa skrautið af trénu.
Það mundi hafa sært Súsönnu
hræðilega. Hún segist ætla að
fara snemma í fyrramálið og
skoða tréð. Ég hafði enga hug-
Njótið öryggls og
friðar um jólín
Stofnið ekkí hag ffölskyldunnar
f hættu vegna gleymsku eða
hugsunarleysis.
Heimilistrygging
er nauðsynleg hverri fjölskyldu,
sem vill búa við öryggi.
Látið ekki óvænt óhöpp skyggja
á jólagleðína. Kaupið heimilis-
tryggingu nú þegar.
Komið eða hríngið ■ síma 17700.
ALMENNAR
TRYGGINGAR f
PÓSTHÚSSTRÆTI 9
SlMI 17700
Þióðleikhaskiallarinn
óskar öllum gestum sínum gleðilegra jóla
með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti liðinna
ára. - Velkomin á jólafagnaðinn.
Þjóðleikhúskjailla.rinn
Sími 19636
VIKAN 52. tbl. —