Vikan


Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 49

Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 49
r BIFREIÐAEIGENDUR /ULT I BENZIN- OG DIESELVELAR BIFREIÐAVERKSTÆÐI HBSlITE STIMPLAR, SLIFAR OG HRINGIR AUTDLITE KERTI, KERTAÞRÆÐIR, O.FL. VÉLAPAKKNINGAR ENDURBYGGJUM BENZfN- OG DIESELVÉLAR RENNUM SVEIFARÁSA BORUM VÉLABLOKKIR PLÖNUM HEDD- OG VÉLARBLOKKIR RENNUM VENTLA OG VENTILSÆTI ÚRVAL AF BIFVÉLAVARAHLUTUM í VERZLUN VORRI SENDUM í PÓSTKRÖFU -TRANCO VENTLAR OG STÝRINGAR Þ. JÓNSSON & CO BRAUTARHOLTI 6 - SIMAR 15362 & 19215 - REYKJAVIK að flýja óreglulega og leita skjóls í rústum Nesle-turnsins, meðan Rodogone Egypzki skipaði liði sínu á vörð hér og þar í hverfinu með- fram gömlu síkjunum og bökkum Signu. Menn Calembredaine söfnuðust saman í stóra salnum, umhverfis borðið, þar sem Trjábotn gnæfði eins og illur andi. — Ég sá fyrir um þetta fyrir nokkrum mánuðum siðan. Þetta er þér að kenna Calembredaine! Þú hefur látið skynsemina í skiptum fyrir þennan kvenmann. Þú ert enginn bardagamaður lengur, og þessvegna hefur hinn hópurinn vaxið þér yfir höfuð. Um leið og glæpamennirnir finna, að Þú ert að missa tökin, ganga þeir í lið með Rodogone til þess að vinna á þér. I fyrrinótt sá ég Bláa Matkurin. . . . Nicholas stóð fyrir framan eldinn og strauk blóðið af kviði sér. Hann æpti hærra en Trjábotn. — Ég veit, að þú ert svikarinn, Þú stendur í stöðugu sambandi við iþá, af þvi að Þú ert að búa Þig undir að taka við af Stóra-Coesre, en gættu þín! Ég skal vara Feita Rolin við. . .. — Þegiðu tíkarsonur! Þú getur ekkert gert mér! Gerðu engar vit- leysur, Calembredaine! E'f þú hörfar aftur, ertu búinn að vera. Rodo- gone sýnir enga miskunn. Það er ekki aðeins markaðssvæðið, sem hann vill komast yfir, heldur einnig konan, sem þú stalst frá honum i kirkjw- garðinum við Innocent. Hann er viti sinu fjær af þrá til hennar, og hann fær hana ekki, nema þú hverfir af sjónarsviðinu. öðrum hvorum ykkar er ofaukið. Það var eins og Nicholas róaðist. — Hvað viltu að ég geri? Allur þessi hópur, þessir andskotans Egypt- ar, eru þarna úti, rétt fyrir framan nefið á Okkur. Eftir útreiðina, sem við fengum hjá þeim áðan, getum við varla farið að biðja um meira. Okkur yrði öllum slátrað. Angelique fór til herbergis síns. Þreif yfirhöfn og setti yfir andlit sitt rauðu flauelsgrímuna, sem hún hafði geymt i skríni, ásamt ýmsu öðru smádóti. Þannig útbúin fór hún niður aftur. Hvorki hafði gengið eða rekið í deilunni milli Calembredaine og Trjá- botns. Calembredaine hefði auðveldlega getað ráðið niðurlögum manns- ins á timburplötunni, en vald Trjábotns var svo mikið, að það var hann, sem hafði töglin og hagldirnar. Þegar þeir sáu Angelique með rauðu grímuna, dró svolítið niður i þeim. — Hvaða karnival er nú þetta? urraði Nicholas. — Hvert ertu að fara? — Ég ætla að fara og reka hermenn Rodogone Egypzka á flótta. Eftir svo sem klukkutíma verður búið að hreinsa til á staðnum herrar mínir. Þá getið þið farið á ykkar varðstöður. Calembredaine leit á Trjábotn og sagði: — Finnst þér hún ekki verða skrýtnari og skrýtnari með hverjum deginum sem liður? — Jú, en ef hún fær góðar hugmyndir af því, skulum við láta hana eiga sig. Það er ómögulegt að skilja þessa bannsettu Marquise des Ang- es. Hún hefur gert þig blauðan eins og diskaþurrku. Það minnsta, sem hún getur gert, er að reyna að bæta skaðann. Angelique þaut gegnum myrkrið í áttina að hliðum Saint-Jacques og reyndi að komast þar yfir síkið. Einn af mönnum Rodogone Egypzka skaut upp kollinum fyrir framan hana. Á þýzkri mállýsku sagði hún honum, að hún væri sölukona á markaðinum i Saint-Germain, sem væri á leið aftur að sölubúð sinni. Hann leyfði þessari grímuklæddu konu í svörtu skikkjunni að fara framhjá. Hún hljóp beina leið til vinar síns, krypplings, sem átti þrjá risastóra tamda birni. Angelique hafði unnið UNGFRÚ YNDISFRÍÐ býður yður hið landsbekkta konfekt frá N Ó A. HVAR E R ORKIN HANS NOA2 Þa8 er alltat saml lelkurlnn I bénnl Ynd- isfríS okkar. lfíin hcfur íallS Brkina hans N6a elnhvers staSar i blaSinu og heittr góSum verSlaunum handa þeim, scm getur fundiS Brklna. Ver&Iaunln eru stör kon- fektkassi, fullur af hezta konfckti, og framlelSandinn er auSvitaS SœlgœtlsgerS- ln N61. Nata HelmiU örkln er A hU. SfSast er dregis var hlaut verSlaunln: HEIÐAR ÍIALLDÓRSSON, Vinninganna má vitja í skrifstofu Fö&rukinn 19, Hafnarf. Vikunnar. 52. tbl. VIKAN 52. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.