Vikan


Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 11

Vikan - 22.12.1964, Blaðsíða 11
settir, sem eðlilegt má teljast vegna þyrnirunnanna og hins grýtta lands- lags, en mjúkar hendur þeirra og grannir fingur með möndlulöguð- um nöglum, vel hirtum og gljáandi á borð við agatsteina, eru yfir- leitt framúrskarandi hvað fegurð snertir. Sá yndisleiki, sem þær hafa til að bera, er fágætur í öðrum heimshlutum." Enski ferðalangurinn Cook, sem síðar var drepinn á Havaí, er ekki einungis snortinn af fegurð kvenn- anna, heldur og karlmannanna. „Karlmenn á Tahiti eru fríðir sýn- um," segir hann, ,,og hið eina, sem brýtur í bága við okkar hug- myndir um fegurð, er að þeir eru yfirleitt heldur flatnefjaðir." Auð- vitað gleymir hann ekki heldur kvenfólkinu: „Augu þeirra eru mjög svipbrigðarík og má þar bæði lesa heitar ástríður og hjartnæma góð- vild. Þær hafa næstum undantekn- ingalaust fallegar tennur, hvítar og jafnar, og eru aldrei andfúlar. Hreyfingarnar vitna bæði um orku og léttleika ,og göngulagið er mjög þokkafullt." Mjög fannst hvítum mönnum og til um gestrisni Pólýnesa. Enski sjó- liðsforinginn King fékk sér til fé- lagsskapar, er hann kom til Havaí „hóp ungra kvenna, sem lögðu sig allar fram um að skemmta okkur með söng og dansi." Og Spánverj- inn Gonzales, sem kom til Páska- eyjar 1770, varð steinhissa á því, að „með lokkandi hreyfingum buðu konurnar ástríðufullum karlmanni allt það er hann gat óskað sér. Og það var ekki að sjá að menn þeirra hefðu neitt á móti því; þvert á móti ýttu þeir konunum til okkar af mikilli kurteisi." Ög iiðsmönnum franska hirðmannsins og stríðs- garpsins Bougainville, sem heim- sóttu Tahiti, „var þráfaldlega boðið inn á heimili hinna innfæddu til að taka þátt í máltíðum þeirra, og þar eð gestrisni Tahitinga á sér engin takmörk, enduðu samsætin alltaf á því að gestunum voru boðnar ungar stúlkur." Þegar þessir hamingjusömu ævintýramenn náðu aftur til Evrópu og sögðu frá reynslu sinni hinum megin á hnettinum, greip hina menningarþreyttu yfirstétt Norður- álfu áköf hneigð til „afturhvarfs til náttúrunnar," og varð Rousseau frægastur og áhrifamestur baráttu- maður fyrir því markmiði. Gerðust nú margir heimspekingar og áróð- ursmenn, sem voru á líkri línu og Rousseau, til að skrifa um Suður- hafseyjarnar, en létu sjaldnast fara frá sér neitt af viti, svo hæpið er að gefa ritum þeirra nokkurn gaum, er heimilda er leitað um forna lífshætti Pólýnesa. Stórum meira mark er takandi á lýsingum þeim, er trúboðar þeir, er snemma lögðu leið sína til eyjanna að turna Pólýnesum til kristindóms, létu eftir sig, þótt yfirfullar séu af fordóm- um og rógi um siði þessara heið- ingja, sem hinir ofstækisfullu kristsþrælar gátu auðvitað manna sízt metið af hlutlægum skilningi. Líkt og tamt hefur verið trúboðum margra tíma og trúarbragða, reyndu þeir eftir beztu getu að eyðileggja sem mest af fornri menningu hinna fagurbyggðu Þús- undeyinga, hvað mistókst að veru- legu leyti, sem betur fór. Enn í dag halda Pólýnesar — að vissu merki að minnsta kosti — tryggð við venjur forfeðranna í ástamál- um sem öðru, þótt kristnir séu að nafni, og eru því þjóðfræðingum þeim, er kynna vilja sér kynferðis- móral á algerlega öndverðum meið við hinn vesturlenzka, sannkölluð gullnáma. ARISTÓKRATAR Á STEIN- ALDARSTIGI. „Suðurhafsfarar muna að jafn- aði fátt af stjórnskipulagi og trúarbrögðum eyjaskeggja, en eru hins vegar fullir af dýrleg- um endurminningum um hin frjálsu lífsviðhorf þeirra og til- finningahita." R. P. Lesson: Voyage autour du monde. Einu sinni bjó einhversstaðar í Pólýnesíu Englendingur, sem rak plantekru stóra, hvar fjöldi inn- fæddra vann. Þótti honum þeir heldur hysknir við púlið og þorði því ekki annað en að standa yfir þeim, meðan vinnutími entist. Einn daginn var sérlega heitt og Eng- lendinginn dauðlangaði í kaldan bjór. Tók hann þá af sér einglyrni það, sem hann bar að hætti höfð- ingja sinnar þjóðar, lagði það á stein og sagði við verkamenn sína: „Nú þarf ég að bregða mér frá, en augað mitt hérna verður eftir og lítur eftir ykkur,- ef þið svíkist um, segir það mér frá, þegar ég kem aftur." Brá hann sér siðan á næstu krá og svalaði þorstan- um. Þegar hann kom aftur, sá hann sér til mikillar ánægju að verka- mennirnir strituðu eins og berserkir. Tók hann þá uppfrá þessu í vax- andi mæli að eftirláta einglyrninu Verkstjórnina, en lá sjálfur í bfórri- um á kránni. En svo var það einn dag, að hann kom að öllum Pólý- nesunum steinsofandi í miðjum vinnutíma. Einhverjum hugmynda- ríkum náunga í þeirra hópi hafði dottið í hug að breiða hatt yfir einglyrnið. Sögur sem þessar eru oft sagð- ar til að sýna og sanna, hvílíkir fálkar og einfeldningar þær þjóð- ir séu, sem Evrópumenn af ærnu mikillæti kalla frumstæðar. Verður seint ofsögum sagt af þeim for- dómum og hindurvitnum, sem svo- kallaðar menningarþjóðir eru stút- fullar af viðvíkjandi fjarlægum og fátækum smáþjóðum, og hafa ís- lendingar mátt eftirminnilega sanna það allt fram á þennan dag. Og til þess að fyrirbyggja, að lesend- ur líti á þann fróðleik, er hér verð- ur til tíndur um kynferðis- og fjöl- skyldulíf Pólýnesa, sem einhvern ditmarsróg, fer vel á því að skýra fyrst í örfáum orðum frá náttúru- fari því og menningu, er þjóð þessi býr við, en þar er auðvitað að finna grundvöll þeirra siðalögmála er hún hefur skapað sér. Heitið Pólýnesía er grískt að upp- runa og þýðir „margar eyjar" og er það sannnefni, því þær eru um 350 talsins. Að Páskaey, sem er al- gerlega einangruð, undanskilinni, liggja þær í klösum og hvirfing- um, sem oft eru langt frá hver annarri. Hvílíkt afrek það hefur verið að byggja eyjar þessar verð- ur manni Ijóst er haft er í huga, að þríhyrningurinn Havaí, Nýja Sjáland, Páskaey — en innan hans liggur Pólýnesía — er fjórum sinn- Framhald á bls. 31. VIKAN 52. tbl. — 1J

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.