Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 12

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 12
Fimm rilhðfumdar oo blafla- meia saurflir: „TELJIÐ ÞÉR, AÐ ÞÆR FJÖRAR SKALDSÖGUR, EFTIR rSL. HÖFUNDA, SEM ÚT KOMU A SlÐASTA ARI: DÆGURVfSA, ORGEL- SMIÐJAN, BORGARLlF OG SVÖRT MESSA, MUNI MARKA TÍMAMÓT I SKALDSAGNAGERÐ SVIPUÐ ÞEIM, SEM VEF- ARINN MIKLI OG BRÉF TIL LARU MÖRKUÐU A SÍNUM TÍMA?“ THOR VILHJALMSSON rithöfundur Á þetta að vera fyndni? Kannski skil ég ekki reikningsaðferð- ina sem hér ó að beita. Er spurt um hvort allir þessir höfundar fjórir samanlagðir tókni tímamót, hvernig er hægt að leggja þó saman sem eru ólíkir nema tveim þeirra svipar saman furðu mikið? Eða er spurt um hvort hver um sig tókni tíma- mót, og þó kannski um fernskonar tíma- mót að ræða? Að hverju leyti, — það skil ég ekki nema ef væri hvað snertir þó tvo sem svipar saman að hvor um sig tókni tímamót í ævi hins. En það er afskaplega ósanngjarnt gagn- vart þessu fólki að minnast á Laxness og Þórberg í sambandi við það og alveg ó- þarft. Hvort sem það er samanlagt eða í sínu lagi. Eg held áfram að reyna að skilja spurninguna úr því ég er lentur í því að eiga að svara henni. Skyldi geta verið átt við það að í þessum verkum er þjóðfélagsádeila, kannski í þeim öll- um að einhverju leyti? Er þjóðfélagsá- deila ný bóla hér? í landi Halldórs Lax- ness! í öllum hans bókum er þjóðfélags- ádeila en fyrst og fremst eru þær lista- verk sem gera aðrar bækur svo smáar í samanburðinum. Kannski álítur spyrjandinn ekkert hafi gerzt í íslenzkum bókmenntum síðan Vef- arinn mikli og Bréf til Láru komu út þar til þetta ágæta fólk bauð sig fram. '------------------------------------------------ EIÐUR GUÐNASON, fréttastjóri Því miður get ég varla talizt bær um að svara þessari spurningu Vikunnar, þar sem ég aðeins hef lesið eina af þeim fjórum nýútkomnu bókum, sem um er spurt. Takmarkast því svarið af sjálfu sér við hana. Borgarlíf, eftir Ingimar Erlend Sigurðs- son var auglýst með stórum fyrirsögnum, þegar hún kom út og hástemmdu lýsing- arorðin ekki spöruð. Almannarómur sagði, að persónur bókarinnar væru teknar svo gott sem hráar af ritstjórn stærsta dag- blaðsins f borginni, þar sem höfundur reyndi fyrir sér við blaðamennsku um skeið. Varla hefur sá almannarómur spillt fyrir sölu bókarinnar. Þessi bók olli mér vonbrigðum. Ég bjóst við að þarna væri jafnvel nýr og hress- andi blær á ferðinni, en því miður var þar aðeins um áttleysu að ræða. Á stöku stað í bókinni vottar þó fyrir skemmti- legri hugsun að baki skrifanna, en þeir staðir eru ekki margir. Ekki tjóar að bera þessa bók saman við Bréf Þórbergs til Láru eða Vefara Kiljans; hún á þeim ekk- ert sameiginlegt, nema ef til vill að vera prentuð í Víkingsprenti. Mér kemur þetta ritverk fyrir sjónir (skáldverk er það varla) sem örvænting- arfull tilraun til að gera upp einhverjar sakir við einhvern eða einhverja; tilraun, sem jafnframt rennur gjörsamlega út í sandinn. Heimur bókarinnar verður les- andanum aldrei raunverulegur, jafnvel þótt stuðzt sé við lifandi fyrirmyndir í ríkum mæli. Höfundi tekst aldrei að skrifa sig burt frá lágkúrunni og umhverfinu, hann situr á sama stað í bókarlok og í upphafi. „Listamenn eru eina fólkið í mannfél- aginu sem getur sagt mannfélaginu sann- leikann um sjálft sig", segir í tilvitnun í James Baldwin í upphafi þessarar bókar. Þetta er mikið rétt, en þetta geta þó ekki allir listamenn, og ekki eru allir lista- menn, sem svo vilja láta kalla sig. v___________________________________; VIKAN 19. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.