Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 6

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 6
Dásamlegur ilmur íyrir hverja konu ... í yndis- legum ilmkremum HIN SÉRSTÖKU ILMKREM FRÁ AVON. Sex ilmtegundir — indœlar, mildar og lokkandi, við hœfi hverrar konu. Svalandi, heit og rómantísk áhrif. Við öll tœkifæri er ILMKREM ávallt það bezta. Aðeins ögn á handleggi háls og herðar — kremið hverfwr, en ilmurinn verður eftir lengi — lengi. SPURT UM INGIMUND FIÐLU. Kæra Vika mín! Ég skrifa þér af því að ég er svo ósköp forvitin. Viltu segja mér hver yrkir kvæðin sem eru í hverri Viku. f>au eru svo snið- ug ég les þau alltaf fyrst þegar ég fæ Vikuna. Getur þú ekki sagt okkur meira um Ingimund Fiðlu. Afi og amma eru dáin en þegar ég var lítil hlustaði ég alltaf á þegar þau voru að tala um Ingimund. Afi kynntist hon- um á Eyrarbakka en amma á Sigló. Amma sagði að stelpa sem var mjög lagleg hefði verið hrif- in af honum, en hann hætti bara að tala við hana þegar hann vissi það, svo fór hann suður og kom með stúlku, sem hét Tobba og hún söng. Amma spurði hann hvort Tobba væri kærastan hans, þá svaraði hann og benti á fiðluna: „Þessi er kærastan mín“. Afi hélt að ekkert hljóð hefði verið til sem Ingimundur gat ekki náð á fiðluna. Hann hermdi eftir fugl- um og skepnum, svo gat hann komið fólki til þess að hlæja og gráta á víxl, bara með tónunum í fiðlunni. Vika mín getur þú ekki fengið æviágrip þessa undarlega manns og birt það í Vikunni. Mig langar svo að vita meira um þennan mann og ef það er ekki leyndarmál, segðu hvaða skáld yrkir í Vikunni. Hvernig er skriftin? Didda forvitna. Eitthvað mun þegar hafa verið skrifað um Ingimund fiðlu í Vik- una, en við skulum fúslega taka til athugunar hvort ekki sé hægt — í síðasta sinn, ætlarðu að koma að borða? að birta eitthvað meira um hann. Nafn Vikuskáldsins megum við því miður ekki gefa upp; því er haldið leyndu samkvæmt hans eigin ósk. Skriftin er í góðu með- allagi. HNEYKSLAÐUR. Kæri Póstur! Ég les þig alltaf lauslega þegar blaðið kemur. En tek ég mig til og les hvert orð í hverju bréfi og íhuga þau vel og vandlega. Og núna var ég að lesa Póstinn í febrúarblöðunum, og rakst þar á bréf í blaði útgefnu 24. febr. ‘66. Það er 8. tbl. Einhver náungi skrifar þar og gortar mjög af þeim mannkær- leika sem hann hafi til að bera. í neðstu greinarskilunum. segir orðrétt: „Ég þykist búa yfir á- gætu ráði sem mig langar til að lofa þér að heyra“, ráðið ætla ég ekki að hafa hér upp, því að mig langar ekki til að saurga þessar línur mínar með slíku. Ég er al- veg hissa á því, Póstur minn, að þú skulir ekki sjá sóma þinn í því að láta slíkt í ruslafötuna, heldur en setja þetta á prent. Ekki er ég í nokkrum vafa um að þessi náungi hver svo sem hann er, sé eitthvað bilaður á geðsmunum. Það er nú fyrir sig þótt menn rövli þegar þeir eru drukknir, en að þeir sem þykjast nú vera eitt- hvað betri skuli setja sig niður og rövla á prenti bláedrú, ef til vill hefur þessi náungi verið bú- inn að fá sér afréttara. Nei Póstur kær, þú ættir að leggja meiri áherslu á að birta bréf sem eru að spyrja um eitt- hvað skynsamlegra en í þessu bréfi þarna felst, að ég tali nú ekki um bréfi, sem ég er að skrifa núna og skammast í. Þá óska ég þér alls hins bezta í framtíðinni, og vona að blað- ið (Vikan) geti komið út án þess að birta fleiri bréf eins og eru í áttunda tbl. Ég hefi engu að leyna fyrir þessum gortara, nafnið er Jón Sigmundsson, Fáskrúðsfirði Það er háttur okkar hjá Póstin- um að birta sem flest þeirra bréfa, sem okkur berast, en að sjálfsögðu lítum við svo á, að efni þeirra sé á ábyrgð bréfritaranna og lýsi viðhorfum þeirra, en ekki okkar. En sem sagt, skoðana- g VIKAN 19. tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.