Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 51

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 51
Eftir á reyndu blaðamenn i æði að breiða yfir þetta hneyksli. Það var talað um nýja hlutverkið henn- ar, að það hefði verið máluð mynd af henni í líkamsstærð, sem hefði kostað hálfa milljón króna. Það var sagt að klæðnaður hennar í mynd- inni kæmi til með að kosta um milljón krónur. Það var líka sagt að hún leggði hart að sér við æf- ingar, að hún . . . En þá kom reiðarslagið. Kvik- myndafé'agið sagði henni upp. Ekki vegna þjófnaðarins, heldur vegna þess að hún mætti ekki til æfinga, nú þegar hún hafði fengið þetta tækifæri eftir fimmtán ára fjarveru frá kvikmyndaverinu. Nú er hún á sjúkrahúsi. Hún seg- ir sjálf að hún þjáist af svefn- leysi ... ★ Nótt og dagur Framhald af bls. 17. — Það var fólk sem ég hitti við höfnina. — Bláókunnugt fólk? Hún brosti til móðurinnar, sem greinilega var áhyggjufull. Brosti róandi brosi. — Þeim? Hverjum? — Eg kynntist þeim. — Ungu fólki. Þau voru með bát, fallegan bát og við sigldum út á fjörð. Hafflöturinn var glóandi rauð- ur. — Og svo, hvert fóruð þið svo? (Þau höfðu gengið gegnum bæ- inn, út úr bænum, eftir mjórri götu og inn ( litla lundinn). — Ut í litla lundinn. Ég hefi aldr- ei komið þar áður. Það var yndis- legt, svo dimmt og hljótt. . . Móðirin horfði á andlit dóttur sinnar og hún varð mild á svip- inn. — Voru þau skemmtileg? (Fyrst hafði hún fundið fyrir höndum hans þegar hann tók um axlir hennar og hvíslaði: — Stúlka, — stúlka litla . . . og í mjúkri kyrrð- inni í lundinum hafði hann gefið henni þá tilfinningu að hún væri viðkvæmt blóm, blómhnappur, sem breiddi úr sér í myrkri nætur- innar . . . ) — Þau voru mjög skemmtileg, mamma. Það var hljótt um stund. Augu móðurinnar hvíldu á henni, rannsakandi, — undrandi, — en ó- endanlega mild. Svo andvarpaði hún og strauk með hendinni yfir kinn dótturinnar. — Þú ert undarleg stúlka — og stundum gerir þú mig hrædda. Hún stóð upp og slétti úr hvítri svuntunni. — Jæja, drekktu nú kaffið þitt. Þegar hún hafði lokið við að drekka kaffið, setti hún frá sér bakkann og smeygði sér aftur und- ir sængina. Sólskinsbirta hins nýja dags fyllti herbergið hennar . . . ★ BARA HREYFA EINN HNAPP oa iHÍ/%i4/%FULLIMTIC SJÁLFV RKA ÞVOTTAVÉLIN ÞVÆR, SÝÐUR, SKOLAR OG V NDUR ÞVOTTINN. FULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. - H A K A GERiR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST. SJÁLFSTÆÐ ÞVOTTAKERFI 1. Suðuþvottur 100' 2. Heitþvottur 90 3. Bleijuþvottur 100 4. Mislitur þvottur 60 5. Viðkvæmur þvottur 60 6. Viðkvæmur þvottur 40 7. Stífþvottur/Þeytivinda 8. Ullarþvottur 9. Forþvottur 10. Non-lron 90 11. Nylon Non-lron 60 12. Gluggatjöld 40 fl-fl^fl4/%FULLMATIC AÐEINS fl-fl/*flC%FULLMATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚIÐ EINUM SNERLI OG H A K A SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNTNUM. - SJÁLFViRKT HÍTASTIG OG VATNS.ViAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. - SJÁLFViRKAR SKOLANIR. - TÆM- ING OG ÞEYTIVÍN3UÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL- IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ GLANSSLÍPAÐ, SEGULVAR'Ð, RYÐFRÍTT STÁL. —— ábyrgð KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.