Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 45

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 45
Aðalatriðið við kínverska matargerð er að bera réttina fram strax eftir að þeir eru búnir til. Það þekkist ekki þar I landi að hita matinn upp eða halda honum heitum lengi. Þess vegna er kjötið skorið mjög smátt, svo að auðvelt sé að elda það í flýti eða rétt áður en á að neyta þess. Kjötið er skorið þvert og grænmetið oftast á ská, hvort tveggja með kínverskum hníf eða beittum spaða, en það er flatur breiður hnífur. í Kína er geysi- leg fjölbreytni i öllu grænmeti og að- eins litið brot af því fæst i Evrópu, hvað þá hér á íslandi. í egta kín- verskum uppskriftum er gerður tölu- verður munur á tegundum af sömu grænmetistegund, t. d. eru til þar þrjár eða fjórar tegundir af selleríi og eftir því. Það verður þvi að heim- færa kínverskar uppskriítir upp á markaðinn í þvi landi, sem þær eiga að notast í. í Kina er aðalrétturinn borinn fram fyrst, sfðan súpan og loks ávextir eða ávaxtaábætir. Hrís- grjónin eru borin fram í stórri skál og smáréttir í minni skálum, venju- lega margir í senn. Matseðillinn hér á eftir væri því ekki óeðlileg máltíð — allt borið fram í einu. Bezt er að nota jarðhnetuolíu við matreiðslu kfnverskra rétta. Hún er auðveld í notkun og mjög auðmelt. Soya sósa er eiginlega salt, en heldur bragðmeiri en venjulegt salt. Mono- sodium glutamate, á kfnversku Ve- Tsin eða oftast kallað þriðja kryddið er gert til að draga betur íram bragð matarins. Ekki á að nota nema ca. >/4 tsk. í einu við máltíð fyrir 5—6 manns. Agar-Agar er þurrt, hlaup- kennt efni, mestmegnis notað tll að gera réttina þykkari. Venjulega selt í flögum. Hrísgrjón. 1 bolli (helzt löng) hrísgrjón eru sett í sigti og skoluð vel undir köldu vatni. Sett í pott með þykkum botni og lVz bolli af köldu vatni hellt yfir. Suðan látin koma upp og lok haft á pottinum. Aðeins efnu sinni má hræra i hrísgrjónunum, rétt eftir að suðan kemur upp. Þegar vatnið hefur gufað upp er potturinn hafður áfram á plötunni við mjög lágan hita, en þannig halda hrisgrjónin áfram að soðna við gufuna. Áður en þau eru borin fram, er hrært í þeim með stórri sleif, til þess að þau verði laus- ari og léttari. Selleri með agar-agar. 1 lengja agar-agar, ca. 5x15 cm., 2 selleríleggir. Sósa: 1 matsk. jarð- Kfn- verskur matur Nokkur grundvallaratriði og einfaldir réttir. hnetusmjör (peanut butter) y2 matsk. olívuolía, V2 matsk. soyasósa, \'2 matsk. edik, framan á hnffsoddi af þriðja kryddinu, y2 tesk. sinnepsduft, nokkrir dropar chilisósa (má sleppa). Skerið agar-agar í 5 cm. lengjur og látið liggja í volgu vatni í 20—30 mín. Þvoið selleríið og skerið það f sneið- ar á ská og sjóðið í 2—3 mín. Síðan sellerfið og setjið agar-agar saman við. Gerið sósu úr hinum efnunum og hrærið selleríinu og agar-agar sam- an við. Ef vill má bæta svolitlu af köldu svínakjöti i smáum lengjum saman við eða köldum kjúkling. Salat úr nýjum hreðkum eða gúrkum. Takið kálið og rótina af hreðkunum og skerið sundur eftir endilöngu. Berjið svo snöggt á hverja hálfa hreðku. að hún hálfsplundrist, stráið \'2 tsk. af salti á og látið standa í 20 mín. Kreistið vökvann úr hreðkun- um, bætið 2—3 tsk. sykur f, l'/2 matsk. hvítu ediki og 2 tsk. olívuolíu. Berið fram vei kalt. Gúrkan er matreldd þannig, að hún er skorin langsum í sundur, flysjuð og kjarnarnir teknir úr henni. Skorin í skástykki í meðal þunnar sneiðar, salti stráð yfir og farið með þær eins og hreðkurnar. Kartöflulengjur. 2 stórar kartöflur, 2 matsk. matar- olía, 1 tsk. salt, svolitill pipar, 1/4 tsk. paprika, \\ tsk. þriðja kryddið. Flysjið og skerið kartöflurnar i litlar lengjur. Látið liggja í hálftíma f köldu saltvatni og síið síðan. Hitið olíuna við meðalhita í 5 mfn. og bætið öllu hinu í og sjóðið í 2 mín. Kjöt i hrúnni sósu. l/2 kg. magurt svínakjöt, skorið í teninga ca. 2(4 cm. á hvern veg, 2 matsk. soyasósa, 1 matsk. sherry, svo- lítill pipar, 2 sneiðar af engiferi eða ef það fæst ekki, ca. tsk. af engifer- dufti, 2 matsk. edilc, 1 matsk. sykur, 2 litlir laukar, skornir í litlar lengjur. Setjið kjötið í pott með þykkum botni. Bætið soyasósunni, sherrýinu, piparnum og engiferinu út f. Setjið lok á pottinn og látið malla i klukkustund og hrærið öðru hverju i. Bætið stðan hinum efnunum í og látið halda áfram að malla við mjög lítinn hita f 40 mín. Ef nauðsynlegt er að hita þetta upp, verður að hætta að sjóða það 10 min. áður en það er fullsoðið, bæta síðan nokkrum drop- um af vatni I og hita f 10 mfn., sem á vantaði. Fleiri kínverskir réttir verða í næsta blaði. Sumankiúlai1 Samkvæmis- kiúlar Frá Englandi: SHUBETTE OF LONDON LADY COURT OF LONDON Frá Hollandi: DOOYES, Jersey kjólar Frá Danmörku: ELSON, dagkjólar Alltaf eitthvað nýtt. r Laugavegi 59 Sími 18646 CEiDiiciinn m TQfn íp atlKiðliill m m m II HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830. Tveggja manna svefnsóíi Stærð: 120 x 186 cm. VIKAN 19. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.