Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 9

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 9
manna gjörbreytzt til batnað- ar, enda er þessi skóli talinn einna beztur í landinu — en þó er Garðyrkjudeildin við Bændaskóla Vesturlands á Reykhólum alveg með ágæt- um. En árangurinn af betri menntun, auknum vísindaleg- um rannsóknum og tilraunum sést vel í Garðyrkjumiðstöð- inni. Er hér um merka stofnun að ræða, sem starfrækt er í nánu sambandi við Garð- yrkju- og skógræktarskóla Ríkisins og Garðyrkjudeildina á Reykhólum, en allar þessar stofnanir hafa gert þjóðinni ómetanlegt gagn með starf- semi sinni. Nú eru Islendingar farnir að skilja hvers virði jarðhiti er fyrir gróðurhúsarækt og ræktun yfirleitt — og þeir hagnýta sér hann betur en nokkru sinni fyrr. Má að vísu segja að þetta hefur tekið langan tíma og að sinnuleysið, deyfðin og frændsemin hafi of lengi ráðið öllu í þessu máli. Árum saman höfðu garð- yrkjumenn, sem skildu og sáu hvert fór, skorað á ráðherra þann, sem með málin fór, að gera hér umbætur á. En eltk- ert gekk lengi vel. Þó kom að því, að skólanefnd var loks skinr.ð og í hana valdist m. a. atorku og dugnaðarfólk, sem hefur lyft Grettistaki síð- an. Nefndin sá sem var, að þannig mátti ekki lengur ganga og með dugnaði og samvinnulipurð leystust mörg vandamál, sem áður höfðu verið óleysanleg. Garðyrkjumenn í landinu lágu og ekki á liði sínu þegar þeir sáu, að hér var um stefnu- breytingu að ræða og með sameiginlegu átaki hefur þetta allt gengið með ágætum. Garðyrkjumenn landsins eru nú betur menntir en nokkru sinni fyrr. Garðyrkjustöðv- arnar eru til fyrirmyndar um snyrtimennsku, hagsýni og af- köst. Tilraunir þær, sem Garð- yrkju- og skógræktarskólinn lætur gera, hafa þegar borið ágætan árangur og er nú miklu meiri uppskera að magni og verðmæti í gróður- húsunum og útigróðri en áð- ur. Útflutningur á blómum hef- ur gengið vel, enda tókust til- raunirnar með ræktun við Ijós ágætlega og nýju gróður- húsin eru miklu hlýrri, rúm- betri og afkastameiri, en þó hægt að hafa færri starfsmenn við þau. Allt þetta tók lang- an tíma og mikið starf og verður brautryðjendunum seint fullþakkað. Þakklæti þekkjum við reyndar svo lítið til — enda var ekki að þessu unnið á sínum tíma til þess, að fá það fyrir, heldur af innri þörf, af áhuga var unn- ið fyrir hugsjón. Jarðhitinn okkar er sú orka, sem þjóðin notar nú hvað mest. Hitaveitur í borgum og bæjum, saltvinnslan, hitaveit- an í öll nýbýlin hjá Húsavík, Skálholti og í Krýsuvík tala skýru máli, sem þjóðin skilur og metur. Og svo eru öll gróð- urhúsin og útigróðurreitir hit- aðir upp með heitu vatni og stundum með gufu. Heilsuhælum er ekki gleymt þó síðast séu nefnd. Allt þetta hefur þjóðin áorkað síð- an nýja stefnan tók við — sameinuð og samhent þjóð vinnur kraftaverk. Gísli Sigurbjömsson ■ ■■■ • S ' ':;• : Hvert er förinni heitið? Faxarnir rata Engiand, Skotland, Danmörk, Noregur, Færeyjar.. . Flugféiagið sér yður fyrir fari á íslandi og u m víða veröid FLVGFELAG ISLANDS ICELANDAIR VXKAN 19. tbl. g

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.