Vikan


Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 10

Vikan - 12.05.1966, Blaðsíða 10
ER HÆGT AÐ TALA UM HLAKU f FAGURBÖKMENNTUM EFTIR SVO KALLAÐAR KERLINGABÆK- UR OG ÆVISAGNAÚTGAFUR í ÁRARAÐIR? MARKA FJÖRAR NÝJAR SKALDSÖGUR ÞAU TÍMA- MÓT, SEM AUGLÝSINGAR HERMA? GREIN EFTIR DAG ÞORLEIFSSON Teikning Baltasar Eitt mesta skáld síðastliðinnar aldar var Fransmaður að nafni Rimbaud, sem sumt fólk hér- lent kannast kannski við úr þýð- ingum Jóns Óskars. Hann hætti að yrkja jafnskjótt og hann komst til vits og ára og varð þrælasali. Þetta var skýrleiks- piltur og hefur ef til vill verið þó nokkuð á undan sínum tíma; núorðið freistast maður æ meir til að halda, að stöðugt fleiri manneskjur komist að þegjandi samkomulagi um að ljóðið sé „átofdeit"; það heyri til liðna tímanum líkt og galdrar, að ekki sé hægt að yrkja ljóð af verulegri alvöru, heldur sem einskonar föndur og fikt út úr makræði og iðjuleysi, líkt og háttur var pers- neskra höfðingja. í fullu samræmi við þetta virð- ist mér íslenzk Ijóðaframleiðsla síðustu ára hafa verið, en hitt er ekki síður uggvænlegt, að aðr- ar greinar bókmennta hafa á sama tíma átt álfka litlu gengi að fagna. Nú fyrir síðustu jól bregður hinsvegar svo við, að á markaðinn snjóar skáldsögum, sem vekja að minnsta kosti ó- skipta athygli og umtal, sem er viðkunnanlegt fráhvarf frá loð- mullu þeirri, sem fylgt hefur samtals- og kerlingabókum og ýmislegu andlegu pródúkti öðru, hvers framleiðendur þó ef til vill hafi talið sig eitthvað estit- ískari en Siggu frá Vik. Á und- JQ VIKAN 19. tbl. I

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.