Vikan


Vikan - 19.05.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 19.05.1966, Blaðsíða 32
Nýstápleg ferð Sérstæð ferð Skemmtileg ferð 9. júní-24. júní 1966 Verð kr„ 15.900. Kaupraanna- höín Austurríki Ítalía FERÐAST MEÐ skipum, hraðlestum, bifreið- um og flugvélum. DVALIÐ á góðum hótelum og í tveggja manna svefnklefum á fyrsta farrými í hraðlestinni. STANZAÐ VIÐ KÖNIGSSEE, eitt fegursta vatn Alpafjallanna, VÍN, borg tónlistarinnar, FEN- EYJAR, hina sérstæðu suðrænu borg með vatnaleiðum sínum, og KAUPMANNAHÖFN sem ætíð heillar íslendinga. FERÐAÁÆTLUN liggur frammi. • • LOND & LEIÐIR SIJORNÖSPfl*^ $ HrútsmerklB (21. marz — 20. aprfl); Þú reiðist vini þínum vegna þess að hann veit alla hluti betur en þú eða lætur að minnsta kosti sem svo. Þú verður fremur úrillur og ættir því að reyna að halda geðvonzkunni fyrir sjálfan þig. Wf Nautsmerklð (21. aprfl — 21. maí); Nú um tíma verðurðu að sjá einn um verk sem þú hefur hingað til haft aðstoð við. en þú losnar líka við argaþras í staðinn. í>ú gerir kunningja þínum greiða. Heillalitur er rauður. IvlburamerkiB (22. maf — 21. iúnf)i Næstu dagar eru mjög jákvæðir fyrir þá sem eru í ástarhugleiðingum. Varpaðu af þér öllum áhyggjum eftir megni og helgaðu þig rómantíkinni. Þú vinnur á í samkeppni á vinnustað. KrabbamerkfS- (22. |únf — 23. I010t Eldri maður gerir þér gott tilboð. Þú leggur fé þitt í arðvænlegt fyrirtæki. Ættingi þinn gerir þér óleik. Maður nokkur sem hafði boðizt til að hjálpa þér, bregzt á síðustu stund. LlóncmerkiS (24. |úlf — 23. ágúst)i Þér gengur mjög vel með áhugamál þitt og velvilji kunningja þíns fleytir þér nokkuð áfram. Þú gerir ættingja þínum greiða. Kona nokkur færir þér hluti sem þú hefur mikið gagn af. MeylarmerklS (24. égóst — 23. septaraber)> Maður nokkur sem hefur óbeint komið þér í vand- ræði bætir mjög um fyrir þér. Þú steypir þér í nokkra skuld. Þú hefur mikið að gera og þarft ekki að kvíða aðgerðarleysi í nánustu framtíð. Vogarmerklð (24. septamber — 23. ektóber)i Vinna þín veitir þér innsýn í mál sem þú hefur aldr- ei hugleitt fyrr. Þú verður nokkuð mikið á ferða- lagi en aldrei nema stutta stund í einu. Þú hittir ættingja sem þú hefur ekki séð lengi. DrekamerklC (24. október — 22. nóvember); Vinkona þín færir þér staðfestingu á grun þínum. Maður nokkur sýnir þér meiri áhuga en þú kærir þig um. Þú reynir mikið til þess að breyta um vinnu. Þér ætti að verða nokkuð ágengt. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.); Þú hefur mikinn áhuga á að betrumbæta umhverfi þitt, en rétti timinn er ekki kominn. Vinkona þín lendir i skemmtilegu ævintýri sem snertir þig nokk- uð. Heillalitur er grár. £ StelngeitarmerkiS (22Í. desember — 20. |anúar>. Sambýlismaður þinn hefur verkefni með höndum sem hann er i vandræðum með. Þú ert nokkuð þreyttur af vanabundnu amstri daganna og átt því erfitt með að sjá spaugilegar hliðar tilverunnar. VatnsberamerkiS (21. janúar — 19 febrúa'r); Þú færð tækifæri til að þroska persónu þína innan um menntað fólk. Þú verður fyrir smá óhappi, en kunningi þinn kemur til hjálpar. Reyndu að skemmta þér eitthvað yfir helgina. Fiskamerkið (20. febrðar — 20 marz): Þú verður að vera ákveðin að halda fast um þitt ef þú vilt ekki missa allt út úr höndunum á þér. Þú verður að aðstoða vinafólk þitt langt fram eftir kvöldi síðari hluta vikunnar. 02 VIKAN 20. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.