Vikan


Vikan - 19.05.1966, Blaðsíða 16

Vikan - 19.05.1966, Blaðsíða 16
o pssty BLAICP 8. hluti Efftir Peter OcDonald — SpyrSu ekki um byssuleyfi, sagði Modesty og gekk í áttina að timburþili við hliðina á byssuheng- inu. — Willie bjó til hreyfanlegt skotmark fyrir mig. Hún drap á rofa og þrýsti sfðan á hnapp. Tarr- ant sá hvítan leirdisk svífa í höfuð- hæð fyrir framan sandpokavegg- inn. — Mjög fallegt, sagði Tarrant. — Ég býst við að þetta herbergi sé hljóðeinangrað? - Já. — Ég býst einnig við, að Willie sé góð skytta. Hún hristi höfuðið og brosti. — Hann myndi ekki hitta hlöðu, þótt hann stæði innan í henni. Ekki með handbyssu. Og hann vildi ekki sjá þær. Hann er góður með riffli. — Þetta mark er þá bara fyrir Þig? — Já, ég var að segja þér það. Willie er mjög hugsunarsamur. Ég skrepp hingað stundum til að æfi mig. — Og líka á örvamarkinu? — Það finnst mér mest gaman. — Mér skilst, að það sé mikil fþróttagrein, en heldur ópraktísk, er ekki svo? Þú getur ekki dragnazt með boga og örvar með þér. Hún sagði ekkert, en brosti þessu snögga brosi, sem hann var nú far- in að þekkja og hlakkaði alltaf til að sjá. Honum var þó ekki ljós á- stæða þess, að þessu sinni. Hann gekk hægt með henni meðfram vopnaveggnum. — Hvaða byssu vilt þú helzt nota? — Ég er sjaldan með byssu, og nota þær ennþá sjaldnar. Það er ekki nauðsynlegt, nema þegar allt ætlar um koll að keyra. — Ég er sammála. En þú virðist taka mögulega notkun mjög alvar- lega. — Maður verður, sagði hún ein- faldlega. — Hversu sjaldan sem þú notar byssu, er um Iff eða dauða að tefla þegar þú gerir það. — Og hvaða byssu kýstu þá? — Það er undir ýmsu komið. Ef Jg VIKAN 20. tbl. ég býst ekki við að þurfa að nota hana í miklum flýti, vil ég helzt Brevete. — Er það ekki leikfang? — Hún dugar — ef skyttan dug- ar. Willie vill ekki sjá hana, vegna þess að hann er á móti sjálfvirk- um skammbyssum. Þær geta of auð- veldlega klikkað. — Og hvaða byssu viltu, ef þú býst við að nota hana f flýti? - Colt .32. — í axlarhulstri? — Nei, það er ekki hægt, þeg- ar maður hefur brjóst. Ég nota sér- stakt hulstur, sem Willie teiknaði og þá er byssan aftan á mjöðm- inni. Þá þarf maður að vera í stutt- um jakka til að hylja hana, að sjálfsögðu. — Og þvælist hann ekki fyrir? — Nei, ekki ef maður notar F.B.I. aðferðina. Þá lyftir maður jakkan- um frá í sömu hreyfingunni. Tarrant kinkaði kolli: — Willie hlýtur að vera mjög flinkur að geta teiknað allt þetta fyrir þig. — Hann er það. Hann gerir Ifka sérstakar kúlur fyrir mig. Þær gera mjög lítinn hávaða. — Gagnlegt. Tarrant litaðist um. — Mér skildist að við myndum finna Willie hér? — Hann er í vinnustofunni sinni, bak við dyrnar þarna f endanum. En hafðu ekki áhyggjur. Hann vænt- ir þess, að þú hinkrir við og skoðir safnið hans. — Ég er heillaður af því. Er þetta raunverulega höggstafur, sem ég er að horfa á núna. — Þú skalt ekki gera grfn að honum. Hún snerti sveran harðvið- arstafinn, sem hékk skáhallt f leð- uról. — Willie segir að þetta sé bezta handvopn af þeirri gerðinni, sem ekki springur, sem nokkurntfmae hefur verið búið til. Hann getur notað þennan staf svo hratt, að þú festir ekki auga á þvf. — Það er þó ekki hægt að dragn- ast með hann fyrirhafnarlaust með sér á þessum dögum og þéssari öld. — Ég veit það. Það þykir Willie verst. Hann er fæddur listamaður, og hann lítur á bardaga með byss- um á sama hátt og Rembrant myndi líta á það að mála eftir tölustöf- um. — Hann er liðtækur hnífakastari, gæti ég ímyndað mér. Modesty leit á Tarrant. — Ef þú sérð hann nokkurntíman kasta hnff- um, sagði hún hljóðlega, — hætt- irðu að kalla hann „liðtækan". Tarrant brosti afsökunarbrosi og þau héldu áfram að safni furðu- legra, villimannlegra vopna. Hann þekkti Samuraisverð og japanskt krossspjót, en öll hin vopnin voru honum framandi. Hann snerti hlut, sem var líkastur slátrarastáli, og hjöltun þakin með hákarlaskráp. Alla leið frá hjöltum og fram á odd lá grönn stáltönn. — Annað furðuvopn? spurði hann. — Langt f frá. Modesty tók vopn- ið niður. Þetta er gömul, japönsk jitte. Teinninn myndar kvísl móti blaðinu og þú getur gripið sverð andstæðingsins í kvíslina og afvopn- að hann með því að snúa snögg- lega upp á. Þú ættir að sjá Willie með þetta. Hún lækkaði röddina um tvær áttundir og kom með draf- andi Cockney, og um leið hvarf hennar venjulegi málhreimur: — Svo sannarlega Prinsessa, þú yrð- ir að vera fjandanum heppnari. Tarrant hló og horfði á hana hengja jitte aftur upp á vegg og hugsaði með sér, að eftirherma hennar hlyti að hafa verið dágóð, og vonaði, að hann yrði aldrei fórnarlamb hennar. — Dýnan, sagði hann og kink- aði kollinum í áttina að dýnunni f miðjum salnum: — Við hvern glím- ir Willie á henni? Ég get ekki í- myndað mér, að hann hleypi mörg- um hingað inn. — Engum, sagði hún. — Þú ert sá fyrsti. Við Willie glímum hér saman. Tarrant lét engin svipbrigði á sér sjá: — Ég trúi varla að það sé jafnræði. Ég er viss um, að þú ert mjög góð, en þyngdin ein út af fyr- ir sig . . . — Willie gefur alltaf forgjöf, þegar þannig stendur á. — Ég hefði gaman af að sjá það einhverntíman. Hún brosti: — Þú gætir fengið taugaáfall. Við gefum ekkert eftir. Þau gengu að dyrunum f fjarri endanum milli sandpokaveggsins og örvamarksins. Modesty opnaði dyrn- ar og Tarrant fylgdi á hæla henn- ar inn. Willie Garvin var klæddur f gallabuxur og T-skyrtu og var að horfa á örlftið málmstykki f gegn- um smásjá. Herbergið lá þvert yfir bygginguna og var uppljómað með dagsljósaflúrosentperum. Þetta var hreinlegasta vinnustofa, sem Tarr- ant hafði nokkurn tíma séð. Málmklæddur bekkur stóð veggja á milli, um þrjátíu feta langur, og á honum var stórt skrúfstykki og

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.