Vikan


Vikan - 22.09.1966, Side 2

Vikan - 22.09.1966, Side 2
BARA HREYFA EINN HNAPPI FULLMATIC SJÁLrVIRKA ÞVOTTAVELSN ÞVÆR, SYÐUR, SKOLAR OG v:ndlr þvottinn. ■■ .FULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. - H A K A GERiR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST. SJALFSTÆÐ ÞVOTTAKERFI 1. Suðuþvottur 100 2. Heitþvottur 90 3. Bleijuþvottur 100 4. Mislitur þvottur 60 5. Viðkvæmur þvottur 60 6. Viðkvæmur þvottur 40 7. Stífþvottur/Þeytivinda 8. Ullarþvottur 9. Forþvottur 10. Non-lron 90 11. Nylon Non-lron 60 12. Gluggatjöld 40 * HA.KL%FULLMATIC AÐEINS Hy%i4k>%FlJLLIVIATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚIÐ EINUM SNERLI OG H A K A SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OG SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. — SJÁLFVIRKT HITASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU ÞVOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM- ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL- IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁL. —— ábyrgð KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANN RIST ULLRI ALVÖRU Bumenn og barlómur Atvinnurekendurnir eru seint og snemma að æja undan gífurleg- um launum, sem þeir verði að greiða starfsmönnum sínum, og segjast hreint vera að fara á hausinn, ekkert geti þrifizt með þessu áfram haldi. Vondri póli- tik er svo um kennt. Hitt vita þó allir, að kaup- textar hinna ýmsu stéttarfélaga eru ekki yfirgengilegir eða ó- sanngjarnir. í flesum tilvikum nægja þeir ekki nema rétt fyrir daglegu lífi starfsmannanna. Hitt er svo annað mál, að verkefnin eru svo mikil, að eftirvinna er nauðsynleg vinnuveitandanum, til að standa í skilum með af- köstin, og þá hækka vinnulaun- in að sjálfsögðu um leið. Og ann- að er hitt, sem einnig er á allra vitorði, að taxtar eru ekki nema lágmarkskaup, og fjölmargir ráða sig ekki upp á annað en yfir- borgun. En þrátt fyrir alla kaupskrúfu er vinnuveitendum smám saman að verða ljósara, að það borgar sig, já margborgar sig, að gera vnl við það fólk, sem þeir vilja raunverulega hafa i þjónustu sinni. Ljós vottur þessa hefur verið að gerast umhverfis síldar- vinnslustöðvarnar úti á landi upp á síðkastið, að því mér er tjáð. Þar hafa stöndugustu stöðvarn- ar látið í snarhasti setja upp Jítil einbýlishús í grennd við stöðv- ar sínar, þar sem eiginkonum skipstjóranna er síðan boðið að dveljast, meðan vertíðin stend- ur. Með þessu móti tryggja þær sér skipstjórana, og eins hitt, að þeir leggi eitthvað á sig til að leggja upp hjá þessum stöðvum í stað þess að sigla með aflann inn á fjörðinn við hliðina. Þetta hefur mælzt vel fyrir, að sögn. Og hér í höfuðborginni hafa sum- ir vinnuveitendur tekið upp þann sið að rétta sínum beztu starfs- mönnum nokkra fjárupphæð ein- hvern tíma á árinu, svona sem uppbót, án tillits til þess, ag beztu mennirnir eru oftast vel yfirborgaðir fyrir. Með svona rausn vinnst það, að starfsmaðurinn fyllist velvilja til vinnustaðarins og yfirmanna þar, og ósjálfrátt vinnur hann ennþá betur og meira fyrir bragðið. Þetta er góður siður og má gjarnan vera almennur, en hann vekur óneitanlega til um- bugsunar um það, hvort jarm- urinn um óhæfileg vinnulaun sé annað en barlómur. Og meðan barlómurinn er, geta menn verið tiltölulega Öruggir um atvinnurekendurna, að þeir kunni vel sitt fag °S stýri sínu sómasamlega, Þyí Þap er enginn búmaður, sem ekki kann að barma sér! SH.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.