Vikan - 22.09.1966, Síða 7
Fyrsta flokks frá FÖNIX:
TLA
KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR
KÆLING er aðferðin, þegar geyma á matvæli ituttan
tíma. Þetta vita allir og enginn vill vera án kællskápi.
FRYSTING, þ. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stiga frost,
er auðveldasta og bezta aðferðin, þegar geyma á mat-
væli langan tíma. Æ fleiri gera sér ljós þæglndln vlð
að eiga frysti: fjölbreyttari, ódýrari og betri mat, mögn-
leikana á því að búa \ haginn með matargerð og bakstrl
fram í tímann, færri spor og skemmri tfma til innkaupa
— þvf að „ég á það í frystintlm".
Við bjóðum yður 5 stærðir ATLAS kæliskápa, 80—
180 cm háa. Allir, nema sá minnsti, hafa djúpfrysti-
hólf, þrír með hinni snjöllu „3ja þrepa froststillingu",
sem gerir það mögulegt að halda miklu frosti f
frystihólfinu, án þess að frjósl neðantil f skápnum;
en einum er skipt f tvo hluta, sem hvor hefur sjálf-
stæða ytri hurð, kæli að ofan með sér kuldastillingu
og alsjálfvirka þfðingu, en frysti að neðan með elgin
froststillingu.
linnfremur getið þér valið urn 3 stærðir ATLAS frystlkista
og 2 stærðir ATLAS frystiskápa
Loks má nefna liina glæsilegu ATLAS viðar-kæiiskápa f
hcrbergi og stofur. Þér gctið valið um viðartegundlr og
2 stærðir, með eða án vínskáps.
MuniS ATLAS einkennin:
■ír Glæsilegt og stllhreint, nýtízku útlit.
■fr Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand-
aðri markvissri innréttingu.
☆ Innbyggingarmöguleikar með sérstökum Atl-
asbúnaði.
☆ Sambyggingarmöguieikar (kæliskápur ofan á
frystiskáp), þegar gólfrými er litið.
■úr Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun.
☆ Hljóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar
á fótopnun
* 5 ára ábyrgð á kerfi og traust þjónusta.
sérstaklega fyrir þá sem ætluðu
að kaupa sér bifreiðir það árið
Þeir höfðu myndir og verð fyr-
ir framan sig en þurftu ekki að
eiða dýrmætum tíma og íyrir-
höfn i að ganga á milli bifreiða-
umboða og afla sér þessara upp-
lýsinga.
Ég vildi þess vegna fara þess
á leit við Vikuna, að hún birti
svona lagað einu sinni á ári, til
þæginda fyrir þá sem eru í hug-
leiðingum.
Virðingarfyllst,
„Væntanlegur bilakaupandi“.
P.S. Hvernig er skriftin?
Engu Iofum við. Öflun þessara
upplýsinga og úrvinnsla úr þeim
er erfitt verk og harðsótt, en
hvað getur gerzt — það sjáum
við eftir næstu áramót.
Skriftin er góð.
VOFF, VOFF.
Kæra Vika!
Við höfum heyrt, að í öðrum
löndum sé leyft að hafa hunda
á hemilum, jafnvel þótt búið sé
í fjölbýlishúsi.
Nú spyrjum við: Hvers vegna
má þá ekki hafa hunda hér í
borgum og bæjum íslands? Er
hægt að fá hundaleyfi og ef svo
er, hvernig er það þá gert og
hver yrði kostnaðurinn?
Við vonum að þú getir leyst úr
þessu vandamáli fyrir okkur.
Með fyrirfram þökk.
Þrjár sem elska hunda.
Lögreglusamþykktir hinna ein-
stöku staða segja til um, hvort
hundahald skal leyft eða ekki,
snúið ykkur til lögregluyfirvalda
viðkomandi staðar og fáið allar
upplýsingar þar. Að vísu er leyft
að eiga hunda í öðrum löndum,
en varla þurfum við að apa það
eftir fyrir því. Burtséð frá því,
hvað gæludýradekur í þurrabúð-
arheimilum er hvimleítt, finnst
okkur ómannúðlegt að taka dýr,
sem samkvæmt eðli sínu þarfn-
ast víðáttu og athafna, og loka
það inni í skrautbúnum íbúðum,
þar sem þeim er ekki hleypt
undir bert loft nema í böndum
og fylgd fullorðinna.
ANDRÓMEDA OG SABATÍNI.
Kæri Póstur, ég hef lengi haft
í huga að skrifa þér og ætla nú
loksins að láta verða af því. Svo
er mál með vexti að ég er mik
ill bókamaður og langar mig til
þess að spyrja þig hvort hægt
sé að ná í bókina ANDRÓMEDA
sem hefur verið framhaldssaga í
útvarpinu, en ég var svo óhepp-
inn að missa af nokkrum hlutum
ennfremur langar mig til að
spyrja þig um hvað Sabatíni hef-
ur skrifað markar bækur sem
þýddar hafa verið á íslenzku. Svo
þakka ég þér Póstur minn fyrir
skemmtilegt efni og óska Vik-
unni góðs gengis.
Bókaormur.
P.S. Hvernig er skriftin og staf-
setningin?
Bókabúðir Reykjavíkur útvega
flestar hverjar allar þær bækur
sem fáanlegar eru á heimsmark-
aðnum, svo það ættu að vera
hæg heimatökin. Sabatíni skrifaði
sand af bókum á sínum tíma, og
okkur er kunnugt um eitthvað
um 10 bækur, sem þýddar hafa
verið.
MANNFÓRNIR.
Pósturinn, Reykjavík!
Ég las með mikilli ánægju
grein VIKUNNAR um mannfórn
ir, þar sem rætt var um hús-
byggingar og vandamál þeirra,
sem eru að burðast við að koma
upp yfir sig þaki. Þar var hvert
orð satt og rétt; ég hef sjálfur
reynt þetta og það geri ég aldrei
aftur, það endaði með að ég varð
að selja kofann hálfkláraðan og
stórtapa þannig á fyrirtækinu, til
að borga konunni sinn hlut, þeg-
ar hún skildi við mig af því ég
gat aldrei verið heima. Það er
helvíti hart að verða að eyða öll-
um sínum beztu árum í að koma
yfir sig þaki í staðinn fyrir að
gera það, sem mann langar til
en hefur hvorki efni á né tíma
til, því þegar maður hefur svo
efni á og tíma til, þá langar mann
ekki til þess lengur. En svona
verður þetta, meðan lánakerfið
er í því kaldakoli, að það er varla
hægt að slá sér 40 þúsund króna
víxil í banka, ef hann á að fara
til íbúðabygginga. Hins vegar
væri hann sjálfsagt veittur út
á einhverja slorfabrikku sem
stæði aðgerðalaus milli þess sem
kviknaði í henni! Nei, við þurf-
um unga menn með hugmyndir
og þor í löggjafarsamkunduna í
staðinn fyrir strengbrúður!
Og vertu svo sæll.
Finnur fráskildi.
Um allt þetta fáið þér frekari upplýs-
ingar, með þvi að koma og skoða,
skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun-
um við leggja okkur fram um góða af-
greiðslu. — Sendum um allt land.
FÖNIX
SÍMI 24420. SUÐURGATA 10. RVÍK.
Sendið undirrit. ATLAS myndalista og nákvæmar upplýsingar. m.a. um verð
og greiðsluskilmála.
Nafn:..........................................................................
Heimilisfang: ................................................................
VIKAN 7