Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 13
En þaS er eins og eitthvað haldi
aftur af mér.
Þegar ég heyri til hennar úti
á tröppunum, get ég ekki að
því gert þótt ég fái hjartslátt.
En mér gremst það.
Ég fékk bréf frá Albert. Það
minnir mig á liðna sumardaga.
Já, dagana þá.
— Þegar grænn vatnsflöturinn
var lognkyrr og gufaði upp að
fjallshlíðinni, svo tær að við sá-
um skóginn á botninum úti á
milli hólmanna — og ég sé fyrir
mér gráan skuggan af berum
armi hennar á vatnsfletinum.
Hann segir að hún hafi talað
um mig.
Talað um mig —
Þetta er orðið mér svo fjarlægt.
Heitar, rjóðar kinnar hennar,
hláturinn 1 augunum, brennandi
af löngun til að hlaupa beint út
í lífið, hvað svo sem það væri,
hvort heldur sorg eða gleði —
bjartar nætur þar heima — allt
er þetta orðið svo undarlega
fjarlægt mér. Eins og ljúf æsku-
minning.
Magda, Magda. — nei, nú
óska ég þess ekki framar. Ég vil
ekki fara heim aftur, ekki mörg
næstu ár.
Sú djúpa kyrrð, sem hér ríkir,
er mér miklu meira virði og
miklu göfugri. Ég sá í henni mörg
augu björt og skær, og brostin,
sem hafa skilið og þjáðst. Þau
horfa á mig um nætur og ég
finn að ég tilheyri þeim.
Nei, Magða, þú skalt hlæja útí
sólskinið og loftið blátt, — ég —
ég er í skóla. —
Þegar hún klifraði upp á Rín-
ardalshnjúkinn, var rödd hennar
svo skær. Þegar hún söng var
eins og sjálf náttúran tæki und-
ir.
Seint á kvöldin, já stundum
um eittleytið, heyri ég trítlað
berum fótum um gólfið yfir mér.
Hún hendist upp í rúmið. Svo
slekkur hún ljósið, ég ímynda
mér það, og leggst til hvíldar. Þá
leggst ég líka út af. Því þegar
hún er háttuð verð ég svo ó-
umræðilega einmana, og svo get
ég ekki haldið áfram að vinna.
Við förum einnig á fætur á sama
tíma á morgnana. Og ef til vill
hugsum við bæði um hið sama.
Skyldi hún hlæja að mér ef
ég færi upp til hennar og segði
henni að ég væri líka einmana,
og að þrátt fyrir það að ég væri
ókunnur maður ætti ég sömu
gleði, sorgir og langanir og hún.
En hver segir að hún sé ein-
mana? Hún, sem er úti allan
daginn. Sjálfsagt hittir hún ýmsa.
og enda þótt hún væri einmana,
hver segir þá að hún sé föl? —
að hún hafi athugul augu og
grannar hendur?
— — — Klukkan er orðin
ellefu. Sennilega er hún úti í
veizlu. Ekki er ég í veizlu.
Hversvegna ætti hún þá að vera
þar?
Svo kemur sjálfsagt einhver,
sem fylgir henni heim, elsk-
hugi, glæsilegur stúdent.
Fótatak. Það er hún. Hún er
alein. Uss! Hversvegna skyldi
það gleðja mig?
Kannske hefur henni leiðzt
eitthvað í kvöld og farið út í
rokið og rigninguna til að gráta
og hugsa um liðna daga.
Hún háttar strax. Ég get ekki
heyrt það greinilega, en það er
eitthvað öðruvísi en vanalega.
Hún er hjá rúminu, það er ég
viss um, en hún hefur ekki lagzt
uppí það ennþá.
Vesalingurinn. Nú skil ég það.
Hún krýpur á kné, grúfir höf-
uðið ofan í rúmfötin og spyr
sjálfa sig aftur og aftur: Hvers-
vegna er ég til?
í dag kom ég til halta málar-
ans. Gamalt hús með skakkar
niðurbrotnar tröppur. Tvö kvist-
herbergi með skáþaki. Hann varð
svo undrandi þegar ég kom.
stamaði og eldroðnaði, þar sem
hann stóð, roðnaði og stamaði.
Lítil, gömul og hrukkótt kona
gekk þar um og dundaði við eitt-
hvað. Hún var svo sakleysisleg,
hló að öllu og kyssti soninn á
raunaleg augun hans.
Á borðinu stóðu myndir af
rússneskum skáldum og þýzkum
jafnaðarmönnum. Á öllum veggj-
unum héngu málverk af eyði-
mörkum með myrkan himin,
svart haf um nótt, þunglyndisleg,
dreymandi andlit.
Ég verð svo dapur í sinni þegar
hann horfir á mig með angist í
augum. Ég get ekki svarað spurn-
ingum hans og veikum vonum.
Eða sitja þar liðlangan daginn
og horfa út um þakgluggann,
sökkva mér niður í að skoða
skuggalegar myndir, sem ekkert
kom lífinu eða daglegu starfi
við — — —
Sitja og spyrja sjálfan sig dag
eftir dag: Hversvegna lifi ég?
Hvað getur það verið? Fóta-
tak hennar er ekki lengur létt
og fjörlegt. Og sjálfur verð ég
svo órólegur og get ekki starf-
að.
Hér er orðið svo tómlegt, —
ekkert kunnuglegt fótatak, ekk-
ert skrjáf í silkikjól: Það er líkast
því að allir séu farnir burtu og
húsið standi tómt. Stundum þyk-
ist ég heyra kveinstafi og niður-
bæld óp. Ég hef setið of lengi ein-
Framhald á bls. 29.
VIKAN 13