Vikan


Vikan - 22.09.1966, Side 15

Vikan - 22.09.1966, Side 15
■ ,■ Jk-na Claude Raes @ Julkn V, d. Broeek (3) Jacques Vermeir <D Jau I>e Fanw (D I a*o Vanholk (§} Cyrkl Fa«wt*b © Marc Dc Pkrre Vaersnberi'h Foreldrar Van de Putte drengjanna óttu engar myndir af sonum sínum. Við jarSarförina vottuðu konungshjónin foreldrunum samúS sina. Síðasta kennslustund dagsins: Umferðarreglur. Fimmtán fjör- ugir og lífsglaðir smádrengir þustu út úr bekkjarstofunni. Samtímis ók brauðbíll einn af stað frá þorpskrá í nokkurra kiló- metra fjarlægð frá skólanum. Við stýrið sat bFstjórinn, fjörutíu og fjögra ára að aldri og fjögurra barna faðir — dauðndrukk'nn! Fimm mínútum síðar hafði hroða- iegasta slys ársins á þjóðvegum Evrópu skeð. Brauðbillinn ók á fleygiferð beint á drengjahopinn og síðan inn i husvegg skammt frá. Gatan leit út eins og vígvóllur. Sjö drengjanna létust samstundis, þrír í A/iðbót dóu í sjúkrabilnum á leiðinni á sjúkrahús og hinir fimm voru illa haldnir af meiðslum og taugaáfalli. í stórskemmdum bilnum sat bíl stjórinn — algerlega ómeiddur. Lög- reglan tók hann undireins höndum, sumpart vegna afbrotsins og sum- part til að koma í veg fyrir, að fólkið, sem safnazt hafði á slys- staðinn, tæki hann af lífi án dóms og laga. Þessi skelfilegi harmleikur skeði í vor í smáborginni Walwergen milli Brussel og Gent ( Belgíu. Eft- ir einhver merkilegustu réttarhöld ( belgískri sögu hefur nú bílstjór- inn, Emile Biebaut, fengið sinn dóm. Hann hljóðaði upp á eins árs og níu mánaða fangelsi og nálægt 16.000 kr. sekt. Við rannsókn málsins kom í Ijós, að maðurinn drakk yfirleitt ekki áfengi. Þennan dag var óvenju heitt og um morguninn átti Emile erfitt með að rífa sig upp. Til þess að hann gæti vaknað almenni- lega, gaf systir hans honum þrjá sjússa. A þeirri tvö hundruð mflna leið, sem hann kevrði svo fyrri- hluta dagsins gegnum Flandur, bætti hann á sig ellefu glösum af bjór, tveimur þeim siðustu fáein- um minútum fyrir slysið. Hugleiðingarnar um atburðinn sléppa honum ekki andartak. Við réttarhöldin sagði hann hvað eftir annað: — Hvern einasta dag hugsa ég um börnin sem ég drap og mín eigin börn. — Og þykir víst engum mikið. Hvaða refsing hefði beðið Bia- bauts, ef glæpur hans hefði verið framinn í einhverju öðru landi, til dæmis íslandi eða Frakklandi? Við skulum taka nokkur lönd til dæm- is. Svíþjóð: 1 ár. Þar í landi er greint á milli þess, að vera kenndur undir stýri eða fullur. Kenndir eru menn taldir ef þeir hafa 0.5 prómille alkóhol í líkamanum, og dugar að sanna það með blóðrannsókn. Lágmarksrefs- ing er tíu daga fangelsi og þriggja mánaða missir ökuréttinda, en við alvarlegri tilfelli er hægt að dæma menn í allt að sex mánaða fang- elsi. Svíar telja mann fullan, ef hann hefur 1.5 prómille alkóholmagn i blóðinu. Þá verður refsingin oftast mánaðar fangelsi og missir öku- réttinda i óákveðinn tíma. Hámarks- refsing: eins árs fangelsi og missir ökuréttinda ævilangt. Sá, sem situr í hjá fullum bílstjóra, er talinn meðsekur Refsidómum fyrir ölvun við akstur verður ekki áfrýjað. í Svíþjóð hefði Emile Biebaut því sennilegcst verið dæmdur í eins árs fangelsi og ökuréttindi hefði hann misst ævilangt. New York: 15 ár. í þeim stað er það ekki tal'ð refsivert, þótt maður aki ölvaður. En valdi maður slysi, verður refs- ingin hörð. Ef maður „veldur dauða annars fyrir glæpsamiega óvar- kárni við meðferð vélknúins öku- tækis", á hann yfir höfði sér al!t að fimm ára fangelsisvist, segja lögin. Við alvarlegri brot missir hann ökuréttindi ævilangt og fær fimmtán ára fangelsisdóm. Sá hefði orðið dómur Biebauts í New York. Frakkland: 2 ár. Þar sleppur ölvaður ökumaður réfsingarlaust, nema þvi aðeins að hann aki á mann og drepi hann. Lágmarksrefsingin verður þá þriggja mánaða fangelsi. í vissum tilfellum verður dómurinn miklu þyngri. Fyrir afbrot á borð við það, Framhald á bls. 41. Óhappamaðurinn Emile Biebaut ásamt konu sinni og fjórum börnum. Eft- ir slysið varð lögreglan að vernda hann fyrir æstum lýðnum. VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.