Vikan


Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 20

Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 20
í sumum af þessum löndum hefur sjálfstjórnin endurvakið þjóðlegar venjur. Annarsstaðar hafa valdhafarnir reynt að bæla allt slíkt niður svo það sjáist sem bezt, hve framfarasinnaðir þeir séu. T.d. hafa yfirvöld í Súdan, sem er undir miðjarðarlínu, krafist þess að mittisskýla sé lögð niður, en stuttbuxur teknar upp í staðinn. Stjórnin hefur látið úthluta stuttbuxum ókeypis. Jafn- skjótt og fólkinu eru fengnar buxurnar, er heimtað að það fari í þær. Allt gengur þetta að óskum, nema eitt vantar: buxurnar eru allar af sömu stærð. Þessir menn hér sitja á skólabekk, þó að fullorðnir séu. Eftir tveggja ára nám eru þeir útlærðir í veiðiskap, og mega ráða sig til að fylgja ríkum útlendum ferðamönnum á villidýraveiðar, safari. Hinir síðarnefndu skuldbinda sig til að borga ákveðið gjald fyrir hvert dýr, sem fellt er, en séð er um það að ekki sé gengið um of á stofninn, og þessum lærðu veiðimönnum kennt að hagnýta. sem bezt bráðina, svo sem sjá má hér á myndinni. Undirstaða þróunarríkis eru kosningar. Þessir kjósendur í Kenya eru hér að skila kosningaseðlinum. Seðlakassinn er gamall olíudunkur. Svo að ekki sé hætta á að neinn kjósi oftar en einu sinni, er fingrum hvers kjósenda dýft niður í rautt blek, sem ekki næst auðveldlega af, þegar hann hefur skilað seðli sínum. Þá þýðir ekki fyrir hanir að reyna að fá að kjósa annarsstaðar. Stundum er kjósenda fylgt inn í klefann, og sagt til hvernig hann eigi að fara með kjör- seðilinn. Ekki er það síður skoplegt, að flokkarnir auðkenna sig stundum með mynd af einhverju, sem þeir kunna að hafa lofað kjósendunum, svo sem síma, sjónvarpi, og þó ótrúlegt sé peningabuddu. 20 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.