Vikan


Vikan - 22.09.1966, Side 23

Vikan - 22.09.1966, Side 23
SUMARMOT RAGGARA í FURUVÍK <5 Skemmtikraftur á sænskum skemmtistað. Fataleysi stúlkunnar mundi víðast hvar þykja ósæmilegt á opinberum skemmtistað en þykir sjálfsagt og eðlilegt í Svíþjóð enda þótt nokkrir gamaldags móralistar hafi áhyggjur af því, að spilling- in svokallaða sé einhverskonar hlið- arverkun af velferðarskipulaginu. I Svíþjóð er mikill skari af rótlausum vandræðaunglingum, sem Svíar nefna raggara. Þeir voru mest á mótorhjólum fyrr nokkrum árum en nú munu þeir í samræmi við velferðina vera komn- ir á ameríska bíla, helzt stór tryllitæki. Þeir fara um landið eins og engisprettufaraldur, slá sér niður í smábæjum og gera allt vitlaust. Og stundum eru haldin allsherjar raggaramót, þar sem raggarar frá allri Svíþjóð reyna að koma sáman og þá bregzt ekki að eithvað sögulegt á sér stað. í ár var einhver staður sem Furuvík heitir fyrir valinu. Þetta mót mun hafa verið eitthvað Iíkt hinni frægu Þjórsádalssamkomu íslenzkra unglinga fyrir tveim árum, en það sem helzt var í frásögur færandi af þessu móti var það, að raggarar réðust á lögregluþjón einn sem þar var við skyldustörf og misþyrmdu honum svo að óvíst var hvort hann héldi lífi. Eftir það lét lög- reglan greipar sópa um staðinn og fjölda raggara var smalað og þeir settir undir lás og slá, en aldrei varð ljóst hver hafði misþyrmt lögregluþjóninum. ■ ^ o Svíar tala gjarnan um sænsku syndina með dá- litlu stolti og í sænskum biöðum er urmull af mynd- um ámóta við þessa hér, sem sýnir að fólk er held- ur frjálslega klætt á bað- ströndum þar í landi, og meðal kvenþjóðarinnar þykir það allt að því gam- aldags að hylja brjóstin. Sumir voru harðir og sýndu mótþróa og það þurfti jafnvel tvo eða þrjá lögregluþjóna til að ráða við þá. VIKAN 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.