Vikan


Vikan - 22.09.1966, Side 28

Vikan - 22.09.1966, Side 28
— Að bjarga lífinu „Um leið og ég sá manninn, snarhemlaði ég, en þrátt fyrir það, lenti maðurinn framan á bílnum og féll síðan í götuna“. Þessi setning er tekin orðrétt upp úr lögregluskýrslu um bana- slys. sem varð í umferðinni fyrir nokkrum árum. Maður um fimmtugt var á gangi eftir götu, þar sem engin lýsing var og gekk hann úti á sjálfri götunni, vegna þess að enginn afmark- aður gangstígur var. fví miður hafa mörg alvarleg slys orðið með svipuðum hætti í umferðinni: ÖkumaSurinn hefur ekki séð gangandi vegfar- anda fyrr en of seint, og þrátt fyrir það, að hann hafi góðan viðbragðsflýti, öryggistæki bílsins hafi verið í fullkomnu lagi og veður og færð ágæt, hefur slys orðið. Um þessar mundir hafa samtökin VARÚÐ Á VEGUM beitt sér fyrir því, að mikið af endurskinsmerkjum hefur ver- ið keypt hingað til landsins og hafa ýmis fyrirtæki og stofn- anir keypt merkin síðan til dreifingar, auk þess sem þau fást í allmörgum verzlunum. Endurskinsmerki hafa verið notuð allt of lítið í umferðinni, þrátt fyrir það, að allir eru á einu máli um, að þau geti gert mikið gagn og það er virðingarvert hjá framleiðendum að setja endurskinsmerki á vinnufatnað. En það er ekki nóg að setja endurskinsmerki á vinnufatnað; endurskinsmerki eiga allir að bera á sér; jafnt ungir sem aldn- ir. Fyrir nokkru gaf Slysavarnarfélag fslands út lítinn bækl- ing, sem félagið nefnir „Glitmerki" og segir þar frá rannsókn- um, sem framkvæmdar voru í Uppsalaháskóla og eiga niður- stöður hennar erindi til allra: „Við létum ökumennina aka á móti kyrrstæðum bíl á veg- inum og voru báðir bílarnir látnir vera með láguljósin á. Á veginum á milli bílanna settum við brúðu í fullri líkamsstærð, klædda dökkleitum fötum. Aðeins þeir ökumenn fengu að reyna sig, er vitað var, að voru þaulvanir í akstri í myrkri, og var þeim fyrirskipað að aka með 60 km. hraða og hemla fyllilega, ef þeim sýndist ástæða til þess. Um leið og ökumað- urinn spyrnti niður hemilstiginu, spýtti bíllinn hvítum lit á veginn. Þannig gátum við séð, hve langt frá hinum „gangandi vegfaranda“ ökumaðurinn spyrnti niður hemilsstiginu. Tilraun- irnar sýndu, að til jafnaðar hófu þeir ekki að hemla, fyrr en eftir voru aðeins 12 m. að brúðunni, en ökumaðurinn þarfn- ast minnst 25 m. til að komast í kyrrstöðu úr 60 km. hraða, við beztu aðstæður á þurrum vegi og með fullvirkum heml- um. Hinir þaulvönu ökumenn gátu því ekki stanzað fyrr en 10—20 m. eftir að þeir voru búnir að aka hinn „gangandi veg- faranda“ niður". Þetta var niðurstaða rannsóknanna. sem gerðar voru í há- skólanum í Uppsölum og þetta er aðal orsökin fyrir slysum á gangandi vegfarendum úti á þjóðvegum og á þeim vegum, þar sem lýsing er engin eða léleg og gangstéttir eða brautir eng- ar: Ökumaðurinii sér ekki gangandi vegfaranda fyrr en of seint. f athyglisverðri grein, sem Baldvin Þ. Kristjánsson, félags- málafulltrúi Samvnnutrygginga reit í dagblöðin á s.l. vetri sagði hann m.a.: „Til myrkurdauðans á vegum er enn hörmulegra og ömur- legra að hugsa fyrir þá sök, að til er — og hefir ekki verið not- að sem skyldi, heldur látið að mestu kyrrt liggja og í þagnar gildi hér á landi endurskinsmerki. Þeir í útlöndum kalla þetta tiltæka bjargráð hvorki meira né minna en ÓDÝRA LÍF- TRYGGINGU og hvetja að vonum alla vegfarendur að notfæra sér hana, til verndar, öryggis og bjargar sjálfu lífinu. á hvert bindindis- heimili Allt-í-eitt heimilistryggingin sameinar í eitt skirteini nauðsynlegustu tryggingar heimilisins og fjölskyldunnar. Allt-í-eitt heimilistryggingin kostar aðeins 400 krónur á ári í steinhúsi í Reykjavík, Akureyri og Hafnarfirði, sé miðað við 200.000 kr. trygg- ingarupphæð innbús, eða aðeins kr. 1.10 á dag. ÁBYRGÐP Tryggingarfélag fyrir bindindismenn Skúlagötu 63, símar 17455 — 17947 HVERJAR ERU ÓSKIR YÐAR? Vönduð og glæsileg bifreið? Bifreið, sem, sameinar kosti sportbifreiðar, stærð og þægindi lúxusbifreiðar? Vér höfum svarið :i reiðum höndum: BMW 1800 er bifreiðin, sem uppfyllir allar óskir yðar. 28 VIKAN KRISTINN GUÐNASON HF KLAPPARSTÍG 25-27, SÍMI 22675

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.