Vikan - 22.09.1966, Blaðsíða 31
var svo hljótt. Ekkert skerandi
ljós.
Ég elska sál hennar, við-
kvæma sál hennar, sem saknaði.
Nú dafnar hún í augum henn-
ar, eins og blóm, sem springur
út, og í greipar hennar, svo að
orð hennar verða skír.
Ég elska þessa tærðu arma og
innfallnar kinnar, þaðan ber því
fegurri bjarma, sem þær hvítna
meir.
Ef til vill er það henni fyrir
beztu að fá aldrei að kynnast
lífinu og bezt fyrir hana að deyja
áður en hún sér að fögnuður
þess er ekki heilbrigður, að kát-
ína þess fyrir innan ljósum
skreytta glugga er full af blygð-
un og örvæntingu.
Umhverfis okkur er fleira, sem
andar, grær, en það sem augun
sjá og eyrun heyra. Eins eru
líka til hljóð, sem við getum ekki
heyrt og litir og ljós, sem við
verðum ekki vör við. Viðkvæm-
um sálum sýnast þeir litir of
sterkir, sem öðrum finnast dauf-
ir og hljómar, sem þeim finn-
ast þýðir, þykja öðrum harðir
og ruddalegir.
í dag, þegar ég gekk fram með
vatninu fannst mér eins og ver-
öldin væri orðin ný. Og ég heyrði
raddir í blænum. Þær töluðu ekki
sama mal og ég og ekki heldur
mál fuglanna eða vindanna. Lit-
irnir höfðu líka fengið rödd og
mál. Þeir voru stærri og auð-
ugri og þar var fleira, barrið á
trjánum hafði fengið ótal tungur.
Meðan ég hlusta á hljómana
og söngurinn eykst með stígandi
hraða heyri ég eitt orð í hæsta
tón, sem berst mér yfir vatnið,
beykilaufið og grasið og allir
strengir í líkamsvefjum mínum
taka undir þetta eina orð, sem
losar mig við allan ilm og klið:
Hlíf!
Og öll hin ósýnilega sveimandi,
streymandi, vaxandi tilvera mæt-
ir mér í einni voldugri fagnandi
alheimssál: Hlíf!
ENN NÝR VARALITUR FRÁ
Christian Dior
ULTRA DIOR NÝI „HÁGLANS“
VARALITURINN
1966 BLÆBRIGÐI: 18-16-15-76-73
Ég sef nú uppi í herberginu
hennar til þess að vera sem mest
hjá henni.
Ég sef reyndar ekki mikið.
Það er svo undarlegt þegar ég
vakna svona af hálfgerðum
blundi og horfi út um litla þak-
gluggann að mér sýnist himinn-
inn svo nálægur mér. Og ég lít á
það öðrum augum en áður. Það
er því líkast, sem þar leynist
eitthvað, sem ég þekki.
Stundum er ég vakinn frá erf-
iðum draumum við annarlegan,
sáran grun, af rödd, sem hljóm-
ar svo undursamlega blítt í næt-
urkyrrðinni: Sefur þú?
Stundum er hvíslað: Faðir vor,
þú sem ert — þá langar mig til
að fela mig. Það er eins og í
þessum orðum felist eitthvað
sem ýmist seyðir mig til sín eða
ÚTSÖLUSTAÐIR í
REYKJAVÍK:
Gjafa- og Snyrtivörubúðin,
Bankastræti 8
Hygea, Austurstræti 16
Mirra, Austurstræti 17
Sápuhúsið, Lækjargötu 2
Skemmuglugginn, Laugavegi 66
Verzlunin Stella, Bankastræti 3
HAFNARFJÖRÐUR:
Apótek Hafnarfjarðar, Strandgötu 34
AKUREYRI:
Vörusalan, Hafnarstræti
Einkaumboð:
INGVAR SVEINSSON UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN, AUSTURSTRÆTI 17, SÍMI 16662
VIKAN 31