Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 36
I
HARÞUERKA HEIMILANNA
If
Wíílélkmá
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. RFYKJAVÍK
% Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprí!): Þú gerir þér alrangar hugmyndir um eitthvað sem er að gerast í kringum þig, en það skiptir miklu að þú reynir að fá rétta mynd af því. Trúlofunarfrétt kemur þér hressilega á óvart.
Nauísmorkið (21. apríl — 21. maí): Verkefni sem þú hefur með höndum vex þér 1 aug- um og áttu erfitt með að koma þér áð því. Þú verður að taka afstöðu um hluti sem þér finnst þú varla dómbær á. Þú hefur fengið fráleita sportshugmynd.
n Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú kemst að skoðunum kunningja þinna sem vekja þér mikla furðu. Þú gagnrýnir eitthvað í fari félaga þíns sem þú gætir kannski eins tekið til sjálfs þín. Þú móðgast út 1 skyldmenni þín.
# Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú tekur til við að kynna þér fræði sem dreifa á- huga þínum og verða þér til góðs. Þú ert meðlimur hóps sem þér finnst þú vera vaxinn upp úr. Þú ert neyddur til að draga skoðanir þínar til baka.
m Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú gerðir glappaskot um daginn sem veldur þér nokkrum áhyggjum. Þér er boðið í bíó, en þú átt mjög erfitt með að ákveða þig. Þú lærir eitthvað scm kemur þér aö talsverðu gagni.
'Wmr Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú ert of einangraður og skalt keppa að því að kom- ast í meiri snertingu við fólk. Þú ert í nokkrum vandræðum með að taka á móti fólki sem þú þekkir ekki, reyndu bara að vera eðlilegur.
Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú sætir talsverðri gagnrýni vegna einhvers sem þú sagðir í reiði í síðustu viku. Þú hefur grun um að það sé fylgst með þér af aðilum sem ekkert eiga meö hnýsni í þinn garð.
& Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Nú er rétti tíminn til framkvæmda fyrir þig. Leggðu þig nú fram og þú kemur öllu þínu í verk á skömm- um tíma. Sunnudagurinn verður í flesta staði mjög sérstæður. Heillalitur er rauður.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Það ríður á að þú vandir þig á vinnustað, það er ekki erfitt að fá mann í þitt verk. Fylgstu vel með og vertu útsofinn. Eyddu kvöldunum heima hjá þér og dittaðu að umhverfi þínu.
£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Lánið mun leika við þig en þó er nokkuð sem fer öðruvísi en þú ætlaðir. Þú færð góð tilboð og ættir ekki að hafna þeim öllum. Á vinnustað verður gert betur við þig en hingað til.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúarl: Þú teflir á tvær hættur og sigurinn getur verið á báða bóga, úr því fæst ekki skorið fyrr en eftir lang- an tíma. Skapsmunir yfirboðara þinna draga úr þér kjarkinn. Heillatala er fjórir.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Útkomur í prófum sem þú hefur þreytt nýlega ættu að vera þér hvatning til aukinna átaka. Því miður njóta aðrir verka þinna mest, þú ert í skugganum sem stendur. Heillalitur er blár.
3ö VIKAN
10. tbl.