Vikan


Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 45

Vikan - 09.03.1967, Blaðsíða 45
Þér hafið því aðeins smekklegt nýtízku heimili að TRINTON BAÐ- SETTIÐ sé í húsinu — TRINTON BAÐSETTIN eru úr ekta postulíni TRITON Umboðið enda Vestur-þýzk SIGHVATUR EINARSSON&CO SÍMI 24133 SKIPHOLT 15 vitað ókaflega óheppilegt að -þetta skildi henda á brúðkaupsferð henn- ar. Ef Sara og Hank hefðu eignazt barn, eða ef að hún hefði haft meira að gera ó heimilinu, þá hefði Hugh McDowell dáið eðlilegum dauðdaga í huga hennar. En eins og málin snerust hafði Sara í raun og veru verið Hank ótrú í þessi átta ár sem hún hafði verið gift honum. Hún var auðvitað góð eiginkona, eftir sem áður, reyndi að sporna við því að Hank fitnaði, með því að gefa honum ekki fitandi mat, en bjó samt til uppáhaldsrétti hans á sunnudögum. — Guði sé lof fyrir sunnudagana, var Hank vanur að segja á hverj- um sunnudegi. Sara hafði tamið sér að láta þetta ekki fara f taug- arnar á sér, en gat ekki komizt hjá því að hugsa, að heilaskurð- læknir gæti örugglega aldrei slapp- að þannig af á sunnudögum, hann yrði alltaf að vera upplagður og alltaf til staðar, jafnt sunnudaga sem aðra daga. — Eg held ég nenni ekki að raka mig í dag, bætti Hank líka við á sunnudögum. Skildi Hugh nokkru sinni láta hjá líða að raka sig? hugsaði Sara. — Þú verður þó að raka þig í kvöld, sagði hún, einn sunnudag- inn, — við erum boðin í veizlu hjá Kathy f kvöld. Kathy var elzta vinkona þeirra, og það var hún sem hafði bent þeim á hótelið f Sweetbriar í sína tíð, þegar þau fóru í brúðkaups- ferðina. Kathy og maðurinn hennar voru með tímanum orðin bezt stæða fólkið í bænum og Kathy hélt fín- ustu boðin. — Já, það er rétt, sagði Hank, — en ég rakaði mig nú í gærkvöldi, og það var eins og hann vonaðist til að sleppa við raksturinn. Þetta stóð heima, Sara hafði neytt hann til að raka sig, kvöldið áður, þá höfðu þau farið á hljóm- leika og þar sem þau áttu von á því að hitta alla kunningja sína, þar á meðal Kathy, gaf hún honum ekki eftir með raksturinn. — Það eru bara glaumgosar, sem raka sig tvisvar á dag, lýsti Hank yfir. — Drottinn minn, hugsaði hún með sjálfri sér, — er þetta eina sam- talsefnið okkar? Hvort hann þyrfti að raka sig einu sinni eða tvisvar, með rafmagnsrakvél? Þetta var allt of smámunalegt. — Eg bið þig nú samt um að raka þig vel í kvöld, sagði Sara, — þú vilt líklega ekki að við lítum út eins og niðursetningar? Það leit út fyrir að Kathy ætlaði að gera eitthvað sérstakt þetta kvöld .... Það var eitthvert sérstakt tilefni til þessarar veizlu, það fundu þau þegar þau komu. Allsstaðar voru blóm, nýfægt silfur og glitrandi kristall. Fólkið pískraði sín á milli um það hvað það væri, sem Kathy ætlaði að láta koma flatt upp á þau, og flestir voru á þeirri skoð- un að það væri stjórnandinn frá hljómleikunum í gær, sem ætti að vera heiðursgesturinn. Og þess- vegna var undrunin fullkomin, þeg- ar Kathy kynnti, — ekki le maestro, heldur hinn fræga heilaskurðlækni, Hugh McDowell! Við förum árlega til Sweetbriar, sagði Kathy, — og það gerir Mc Dowell líka. Þótt hann sé mjög hlé- drægur, höfum við samt kynnzt á þessum ferðum, og það eru mörg ár síðan hann lofaði að heimsækja okkur, ef hann væri hér á ferð ... Þannig skeði það, að Sara stóð loksins, eftir öll þessi ár, andspæn- UNGFRU YNDISFRIÐ býður yður hið landsþekkta konfekt frá NÖA. HVAR E R ÖRKIN HANS NOA? Það er alitat sami leikurinn i henni Ynd- isfríð okkar. Hún hcfur falið ðrKliia hans Nóa einhvers staðar í blaðintt og heitir góðUm verðlaunum handa þoim, sem getur fundið örkina. Verðlaunin eru stór'1 kon- fektkassi, fúUur af hezta konfekti, og framleiðandinn er auðvitað Sœlgætisgerð- in Nði. Nafn Ilcimill Örkln er & bls. Síðast er dregið var hlaut verðlaunin: Hrefna Gissurardóttir, Skólastíg 26. Stykkishólmi. Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. io. io. tbi. VIKAN 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.